Vera - 01.08.1992, Qupperneq 15

Vera - 01.08.1992, Qupperneq 15
Kristín á Vatnajökli. karlar. Þær taka undir það og telja að ein ástæðan sé sú að karlar tengist siður vináttubönd- um en konur og eigi þvi erfiðara með að taka upp þráðinn þegar þeir verða einir. Konur eigi líka auðveldara með að flnna sér eitthvað að gera og að hóa til sín fólki. Karlar kunni oft ekki að taka á móti gestum. MÁTTUR BÆNARINNAR Kristín liflr fyrir trúna á Guð. Fyrir henni er það líflð, en þetta jarðneska er aðeins tímabil og hún segist hlakka til þegar því lýkur. Pálína bendir henni á hún verði samt að nota vel þann tíma sem hún er hérna. „Vissulega, það er það sem Hann ætlast til. En ég þakka Guði í öllu mínu lífi, m.a. með borðbæn, ferðabæn og kvöldbæn." Sumar höfðu aldrei upplifað það fyrr en í ferðinni vestur að beðin væri borðbæn, en fannst það yndislegt. Rannveig segir að það komi mér kannski á óvart hve bænin er þeim mikils virði. Hún segist oft biðja þegar hún gengur til náða. Þá færist yfir hana friður, hún ýtir öllu til hliðar sem angrar hana og einbeitir sér að bæninni. Hún segist vera viss um að ef fleiri gerðu það liði fólki mun betur. AÐ VERÐA EKKJA Það eru mikil viðbrigði að missa maka sinn. „Ég missti manninn minn um vor og fór aftur að kenna um haustið," segir Rann- veig. „Ég leit yflr hópinn og hugsaði með mér: Allar þessar konur sem eru búnar að missa menn sína á undan mér, enginn veit nema sá sem lendir í því hvað það er í raun og veru. Vinkona mín, sem hafði misst manninn sinn átta árum fyrr, kom til mín og spurði hvernig mér liði. Bara þokkalega, segi ég. Þá segir hún að þetta fyrnist aldrei, en það sem henni hafl fundist erfiðast, þegar hún var orðin ein, var að finna sjálfa sig. Þegar maður hefur lifað langa ævi í hjónabandi er maður orðinn hluti af hvort öðru. Þegar við erum orðnar einar þurfum við að leggja áherslu á það að flnna okkur. Hver er ég nú þegar ég er orðin ein? Þessi orð hennar hjálpuðu mér mikið þvi að mér fannst eins og ég hefði verið klofin i herðar niður. En það verður að vinna úr þessu. Það þýðir ekkert að verða einsemdinni að bráð. Hún þarf ekki að verða allsráðandi í lífi manns og þá gerir maður eins og Kristín, að fara sjálfur af stað, eiga frumkvæði." Þær segjast aldrei hafa velt því fyrir sér að giftast aftur. „Ég hefði ekki nennt því,“ segir Rannveig, „það hefði verið svo mikið álag. Aðlögunarhæfileikinn minnkar með aldrinum, þannig að maður getur best aðlagað sig sjálfum sér og ferðalögunum. Margar konur gifta sig aftur og það er ekkert athugavert við það. En það er sorglegt hve margar eru í raun að leita að manninum sínum. “ fCristín minnir á að margar vilji eignast góða vini til að fara út með, þó að það sé ekkert kyn- ferðislegt við það. „Auðvitað væri gaman að verða ástfangin," skýt- ur Pálina inn í, „en ég færi að vega og meta hvort ég vildi láta frelsið og sjálfstæðið sem maður hefur vanið sig á.“ Rannveig telur þær vera orðnar of seinar, þetta verði að gerast strax og bendir á hvað karlmenn, sem missa maka sinn, eru fljótir að ná sér í nýja. Kristín segir það stafa af þvi að þeir geti ekki verið einir. Þeir eru svo háðir hjálpinni, þjónustunni. „Það er vissulega visst frelsi í þvi að vera orðin ein og sjálfstæð og þurfa ekki að taka tillit til annarra sem hafa kannski alls ekki sömu áhugamál," segir Pálina. RV 15

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.