Vera - 01.08.1992, Page 17

Vera - 01.08.1992, Page 17
eins og vatni sé skvett á gæs. Ellin verði úrelt. „Þú er bara ungleg!" sagði bekkjarsystir mín við mig á 14 ára ai'mælinu mínu og svo brá við að við þessi huggunarríku orð fannst mér ég allt í einu vera gömul. Hún var ekki orðin 13 ára. Fordómarnir fylgja okkur allt lífið! - Mikið ertu ungleg! segir fólk enn við mig. Ég verð himinlifandi! - Mér eru allir vegir færir. - Ég er í sérflokki og á nú ekki mikið sameiginlegt með gamlingj- unum sem ég hitti á síðustu bekkj arskemmtuninni. - Maður en nú ekki deginum eldri en manni finnst maður vera - eða hvað? Spegill, spegill, ■ herm þú mér! Spegillinn verður, þvi miður, ekki umflúinn. Á sjötugsaldrinum er hann farinn að gefa svo skýlaus skilaboð um hvað sé að gerast í líkamanum að fram hjá því verður ekki horft - ljós augnanna dofnar, hrukkunum ijölgar, hárið orðið hvítt og líllaust, viðbrögðin hægari, hreyfingarnar ekki eins fjaðurmagnaðar og vöxturinn - æi, æi! Hringrás náttúrunnar lætur ekki að sér hæða. Við erum óum- flýjanlega hluti af náttúrunni. Líf - vöxtur - hrörnun - dauði. - Tíminn liður og lífsklukkan tifar, segir spegillinn. Viðbrögðin við sannleika speg- ilsins eru margslungin. - Ótti. Þú þekkir aldursfor- dómana - ert sjálf haldin þeim. Verður hætt að taka mark á mér - horft fram hjá mér eins og ég sé ekki til eins og ég hef sjálf gert þegar gamalt fólk hefur átt í hlut? - Sálarkreppa vegna glataðra tækifæra. - Þunglyndi vegna óumflýjan- legrar hrörnunar. - Flótti. Þú ert bara ungleg - hárlitun - andlitslyfting - ofurlítið silikon hér og þar - fötin skapa manninn. Það eru bara hinir sem verða gamlir. - Vilji til að takast á við það sem er að koma fyrir þig með raunsæi og opnum huga, vega og meta nýja möguleika og takmark- anir, flnna styrkleika og veikleika. Aldursfordómarnir við veginn Flóttaleiðin er auðveldust, vörðuð aldursfordómum samfélagsins og sjálfrar þín. Gallinn er bara sá spegillinn leyflr þér ekki að gleyma óttanum, sálarkreppunni og þunglyndinu þrátt fyrir allar fullyrðingar um hressileika og unglegt útlit. - Hversu lengi getur þú haldið þessu gangandi? - Hvern ert þú eiginlega að blekkja? Raunsæisleiðin er torrötuð. Aldursfordómarnir skyggja á hana. Hvað eftir annað hefur mér orðið á sú skyssa að segja, þegar ég hef verið í hópi mér yngri kvenna, að ég sé orðin of gömul til að gera eitthvað eða eitthvað sé ekki við hæfl fyrir konu á mínum aldri. Þá hefur orðið vandræðaleg þögn eins og ég hafl sagt eitthvað óviðeigandi, jafnvel eilítið dóna- legt. Síðan segja þær hver í kappi við aðra: - Hvaða vitleysa er þetta! Og svo er farið að tala um eitthvað annað. Það er eins og þær hafl helst viljað að orð mín væru ósögð. - Hvers vegna? - Er það vegna þess að þau minna þær á að elli og hrörnun verður ekki umflúin, eða vegna þess að þær verða að endurskoða hugmyndir sínar um mig? - Hvers vegna þessi afneitun? Ég á öll þessi ár að bakl og ég vil ekki týna einu einasta þeirra, ekki einu sinni þeim sem voru erfiðust og sársaukafyllst. - Er ekki hægt að ræða um aldur minn, hvað ég og minir líkar getum og getum ekki? - Er ég farin að bera þess merki að ég sé byrjuð að týna sjálfri mér, að komast í hóp ,hinna nafnlausu’, að verða ,kerl- ingin’ eins og ég var einu sinni .krakkinn’ og .unglingurinn’, sem ekkert mark var tekið á. Fer fólk kannski bráðum að tala um mig eins og ég sé ekki til staðar eins og það gerði um mömmu rnína. - ftíikið lítur mamma þín vel út! Hvað er hún orðin gömul? - Finnst þér ekki ermarnar of langar á henni? Búðarkonan leit á mig á meðan mamma horfði á hana skærum, greindarlegum augum og ég sá að hún týndi svolitlu af sjálfri sér og lét mig um að hafa skoðun á ermalengdinni. Eigum við ekki að kasta for- dómunum, fara að horfa í kringum okkur, sjá gamlar konur eins og þær eru raunverulega, lofa þeim að hafa sínar skoðanir á ermalengdinni? GÓ módel 1930

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.