Vera - 01.08.1992, Side 22
Er amma þín eins og S í laginu? Kengbogin og brotnar
jafnvel ef strcetisvagninn fer harkalega yfir hraöahindrun?
Eru aldraöar frœnkur þínar sífellt aö brjóta einhver bein?
Úlnliösbrotnaöi mamma þín í hdlkunni í fyrra? Ef svo er œttir
þú aö gd aö þér, þér gœti verið hcett við beinþynningu.
BEINBROT AF MINNSTA
TILEFNI
Beinþynning eykur líkur á
vissum tegundum beinbrota, t.d.
framhandleggsbrotum, samfalli á
hiyggjarliðum (konur verða bogn-
ar í baki og með stöðugan verk) og
brotum á lærleggshálsi. Brotin
valda viðkomandi einstaklingi
sársauka og jafnvel sjúkrahús-
vist, sem er mjög dýr fyrir sam-
félagið. Því er hagkvæmast að
finna sem fyrst þá einstaklinga
sem eru í mestri hættu og hefja
fyrirbyggjandi aðgerðir. Augu vis-
indamanna hafa einkum beinst
að kaiki í fæðunni þar sem töiu-
vert kalk er í beinum og magn
þess í réttu hlutfalli við styrkleika
beinsins.
STERK OG GÓÐ BEIN
Bein er lifandi vefur sem er í
stöðugri breytingu alla ævi. Bein-
þéttni (magn steinefna á rúm-
einingu beins) nær hámarki um
þrítugt og því er mikilvægt að
byggja vel upp beinin fyrstu ævi-
árin og halda þeim svo við. Um
miðjan aldur (40-50 ára) minnkar
þéttleiki beinanna því að bein-
myndunarfrumur fylla ekki upp í
eyðurnar sem beinúrátur mynda.
Það hversu sterk beinin verða er
háð kyni, erfðum, líkamsáreynslu
og næringarþáttum. Beinþynning
gerir ekki upp á milli kynja, en
kemur fyrr fram hjá konum og
gerist hraðar. Hún verður því
stærra vandamál hjá eldri kon-
um.
KVENNASJÚKDOMUR
í Bandaríkjunum hefur komið i
ljós að mismunandi þjóðfélags-
hópar, sem búa við sömu lífskjör,
hafa misþétt bein. Bein i svörtum
konum eru þéttust, það er minna
af steinefnum í beinum hvítra
kvenna og minnst hjá konum af
Asíuuppruna. Þessi mismunur er
ekki að fuilu skýrður. íslenskar
konur verða allra kerlinga elstar.
Þess vegna er þetta meira vanda-
mál hjá þeim en hjá íslenskum
körlum sem fá sjúkdóminn mun
síðar á lífsleiðinni og þjást þvi
ekki eins lengi.
ÍSLENSKAR KONUR
RANNSAKAÐAR
Nú er í gangi viðamikil rannsókn
á beinþéttni í íslenskum konum.
Þetta er fyrsta úttektin sem gerð
er á beinþynningu hérlendis. Haft
var samband við hátt í 500 konur
á aldrinum 35-64 ára sem búa á
stór-Reykjavíkursvæðinu. Að lok-
inni heilsufarskönnun kom i ljós
að um helmingur þeirra var
frískur og var beinþéttni þeirra
mæld til að fá staðal fyrir ísland.
Síðan var valinn enn smærri
hópur sem fýlgst verður með
áfram. Ætlunin er að bjóða kon-
um, sem virðast ætla að verða
beinþynningu að bráð, upp á
meðferð til að sjá hvort hægt er að
stöðva hana eða hægja á henni.
Birna Jónsdóttir röntgenlæknir á
Landakotsspítala er ein þeirra
sem unnið hafa að verkefninu.
Hún var fús að deila hugmyndum
sínum og þekkingu með lesend-
um VERU. „Rannsóknin er sam-
vinnuverkefni lyfja- og röntgen-
deildar Borgarspítalans og nýtur
aðstöðu röntgendeildarinnar þar.
Við mælum magn steinefna í
hryggjarliðum með tölvusneið-
myndatæki. Síðan fylgjumst við
með konunum, mataræði þeirra
og ýmsum öðrum þáttum.“
KVENHORMÓN OG KALK
- Mataræði á að geta breytt ýmsu,
en það er erfitt að sanna það. Það
er ekki nóg að borða kalk, líkam-
inn verður að geta nýtt það, en
það er meðal annars háð frásogi
frá meltingarvegi. Hinsvegar hef-
ur verið sýnt fram á að kvenhor-
mónið östrogen hefur mjög mikið
að segja, en það hefur verndandi
áhrif á beinin. Eftir tíðahvörf
lækkar östrogenmagn í blóði og
steinefnamagn í beinum snar-
lækkar einnig. Sama er uppi á
teningnum ef eggjastokkarnir
hafa verið íjarlægðir. Margar kon-
ur taka hormónalyf árum saman
eftir breytingaskeið, það er m.a.
gott íýrir slímhúð í fæðingarvegi
og svo auðvitað beinin. Sumar
taka östrogen rétt eins og lýsi,
þeim líður betur án þess að vita
hvers vegna. Hormónið er dýrt og
margar konur þurfa ekkert á því
að halda og ættu þess vegna ekki
að taka það. Mér finnst að konur
eigi rétt á þvi að vita hver
beinþéttni þeirra er áður en þær
ákveða hvort þær ætli að þiggja
eða aíþakka hormónalyf. Ef bein-
þéttni þeirra er í lægra kanti,
móðir þeirra með marga brotna
hryggjarliði og amma þeirra keng-
bogin, þá væri hormónið liklega
mjög gott fyrir þær. En ef allt er í
lagi með beinþéttnina er það
jafnvel óþarfi beinanna vegna.
22