Vera - 01.08.1992, Page 29

Vera - 01.08.1992, Page 29
Fóstureyðing er alltaf erfið ókvörðun. ...Það mó ekki gleyma því að þessi mól snerta orðið hverja einustu fjölskyldu í landinu. Fólk skyldi því fara varlega í að dæma, þú gætir verið að dæma þína nónustu ón pess að hafa hugmynd um það. * Eg trúi því að það geti þrifist róttæk kvenna- hreyfing innan vébanaa Kvenna- listans, sem er í eðli sínu mjög róttækur. Hvers vegna koma svona margar konur til þín? Bera konur ábyrgð á eigin lífi eða láta þær reka á reiðanum? - Konur bera upp til hópa ábyrgð á eigin lííi. Þær lenda kannski í ákveðnum ógöngum, t.d. konur sem koma til mín og eru að íhuga fóstureyðingu. Þær eru á aldrinum 14 til 48 ára, úr öllum stéttum og hópum. Fóstur- eyðing er alltaf erflð ákvörðun. Þetta er ekkert sem nokkur kona gerir að gamni sínu. Mér flnnst mikilvægast að konur taki þessa ákvörðun beinar í baki. Þær bera fulla ábyrgð. Það skiptir mestu máli að styðja konur í þeirri ákvörðun sem þær telja réttasta, hvort sem það er að fara í fóstur- eyðingu eða eiga barnið. Þær sem fara í fóstureyðingu gera það að vel ígrunduðu máli. Þær hugsa málin i botn. Meta aðstæður sínar. Það hvernig við vinnum málin í dag kemur i veg íyrir að margar konur verði mjög brotnar á eftir. Við eignumst auðvitað allar okkar trega, án tillits til þess hvaða ákvörðun við þurfum að taka. Og spurningin er hvernig við getum látið tregann og erflðleikana gera okkur sterkari. Gera okkur að betri manneskj- um, skilja bæði sjálfar okkur og aðra betur. Dæma ekki aðra. Hver hefur forsendur og leyfi til þess að dæma? Það má ekki gleyma þvi að þessi mál snerta orðið hverja einustu Qölskyldu í landinu. Fólk skyldi því fara varlega í að dæma, þú gætir verið að dæma þína nánustu án þess að hafa hug- mynd um það. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Þvi miður tala konur ekki um þessa reynslu sína, þetta er enn tabú. Oft heyrist það sjónarmið að stúlkur eigi frekar að gefa börn sín en að fara í fóstureyðingu. Fólk veit ekki hvað það er að tala um. Ég skynja það stundum sem hreina og klára mannvonsku að halda að það sé ekkert mál að gefa barnið sitt. Það er þvílík neyð og mikill sársauki. Hvað með allar unglingamæð- urnar? Það er einkennandi fyrir þær að margar eignast ekki annað barn fyrr en í fyrsta lagi 35 ára eða eldri. Þetta var i raun miklu meiri martröð en þær vilja horfast í augu við, of mikil ábyrgð. Þeim var hent inn í ákveðinn heim sem þær höfðu engar forsendur til að skilja. Fólk hélt að þær skildu hann, en þær gerðu það ekki. Mér flnnst ekki að konur eigi að eignast börn fyrir tvítugt. Sjálfra sin vegna og barnanna. Allra vegna. Maður þarf að vita hvað maður ætlar að gera við líf sitt áður en maður eignast barn. Það er aldrei lögð of mikil áhersla á getnaðarvarnir og kynlífsfræðslu. Aldrei. Ég skil ekkert í því að Sighvatur skuli ekki skera upp herör. Gott kynheilbrigði, gott kynlíf án ótímabærra barneigna, það er eitthvað sem samfélagið græðir á þegar fram í sækir. Ný kvennahreyfmg hefur því beðið þín þegar heim kom. - Kvennaframboðið var að líða undir lok þegar ég kom heim. Ég fór mjög varlega, byrjaði á þvi að fara í ritnefnd VERU, sem var mjög skemmtilegt þvi að hópur- inn var svo góður. Það er svo skrýtið að ég var eitthvað svo óörugg og fannst eitthvað ógn- vekjandi við Kvennalistann. Ég skil vel konur sem eru ragar við að koma inn. Það eru svo margar pólitískt klárar konur í Kvenna- listanum að okkur hinum flnnst við þurfa að vera svo ofboðslega gáfaðar til að hafa einhverju við að bæta! En það eru svo margar skemmtilegar konur þarna að maður verður bara að yfirstíga eigin vanmáttarkennd. Reynsla okkar er mismunandi og við höf- um allar eitthvað að segja um það í hvernig þjóðfélagi við viljum búa. Finnst þér Kvennalistinn hafa breyst mikið? - Ég skynjaði það svo vel á vorþinginu á Seyðisfirði hve mikill kraftur er í Kvennalistanum. Um- ræðan var svo málefnaleg og skemmtileg. Kvennabaráttan er ekki bara pólitískt tæki hún er líka ákveðin skemmtileg samvera. Það má ekki gleymast. Við verð- um að gera meira óformlegt saman, því þá verður hugarflug og einhver orka leysist úr læðingi. Konur kasta af sér hamnum. Við gerum þetta alltof sjaldan. Við reynum alltaf að komast yflr allt of mikið efni í einu. Við eigum að standa fyrir ráðstefnum, þema- fundum og opnum fundum. Ekki endilega bara með konum úr okkar röðum heldur að fá aðra með. Skapa umræður. Kvenna- listinn er mjög fær um það og við megum ekki missa sjónar á þannig starfl og sjá mikilvægi þess. Þannig náum við til fleiri. Það er sosum ekkert nýtt undir sólinni. Margt af þvi sem Rauðsokkahreyfingin vann að kemur upp aftur og aftur, bara í örlítið breyttri mynd. Ég fór til dæmis út 1976 með Elísabetu Gunnarsdóttur á festival í Kaup- mannahöfn þar sem verið var að ræða um konur í fiskvinnslu á Norðurlöndunum. Við vorum í debattjaldi með Grænlendingum og Færeyingum. Þetta var ekkert frábrugðið kvennaþinginu sem verður fyrir austan í sumar. Þessi hátíð var mikil upplifun. Lesbí- urnar spruttu úr felum. Fælled- parken var fullur af lessum! Þær elskuðust uppi á borðum og undir borðum - alls staðar. Ég hafði aldrei séð annað eins. Mig dreymdi brjóst í marga mánuði á eftir! Þessi umræða hafði varla verið hér og ég var eins og sveita- stúlka í fyrsta skipti í kaupstað! Þetta var stórkostleg upplifun. Nei, eins og oft er sagt þá er ekk- ert nýtt í þessari kvennabaráttu. Nema að núna erum við farnar inn í þessar borgaralegu stofnanir til að reyna að breyta einhverju þaðan. Áður vorum við bara í grasrótinni. Nú finnst mörgum að kvenna- hreyfingin og þar með Kvenna- listinn þurfi að vera róttækari. - Ég trúi þvi að það geti þriflst 29

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.