Vera - 01.08.1992, Qupperneq 31
SÚPUR VIÐ ÖLL TÆKIFÆRI
„Yndisleg súpa! Hver kœrir sig um fisk, kjöt eða eitthvaö annaö? Hver gœfi ekki aleigu sína fyrir góöan
súpudisk?" spyr Lísa í Undralandi. Hér koma tvœr góðar súpur. Önnur er af spœnskum uppruna og
hentar vel ó heitum síösumarkvöldum, Hin er gerö úr gulrótum enda er þeirra tími núna og sjölfsagt
að nota þœr sem mest og best.
GAZPACHO
6 stórir velþroskaðir tómatar
2 rauðar paprikur
2 meðalstórir gulir laukar
2 stórir skalotlaukar
2 agúrkur
1/2 bolli rauðvinsedik
1/2 bolli ólífuolía
1 1 /2 dós tómatsaíl
3 egg, léttþeytt
cayenne pipar framan á hnífsoddi
salt og nýmalaður svartur pipar
að smekk
1 /2 b ferskt dill
1. Takið kjarnann úr tómötun-
um og grófhakkið kjötið (geymið
safann), paprikuna og laukana.
Flysjið gúrkurnar, takið steinana
úr og grófhakkið kjötið.
2. Þeytið saman edik, olíu,
tómatsafann (bæði úr tómötunum
og dósunum) og egg.
3. Hakkið grænmetið (purée) í
mixara, bætið tómatsafanum (2)
við. Blandan má ekki verða alveg
að mauki.
4. Hrærið kryddinu saman við.
Geymið í lokuðu íláti í kæli í
a.m.k. 4 klst.
5. Hrærið í súpunni áður en hún
er borin fram, smakkið og kiyddið
meira ef þarf. Berið fram í köldum
skálum eða krúsum.
Uppskriftin ætti að nægja 8
manns.
GULROTA- OG
APPELSÍNUSÚPA
4 msk smjör
2 bollar finhakkaður gulur
laukur
12 stórar gulrætur (tæpt kíló),
afhýddar og hakkaðar
4 bollar kjúklingasoð
1 bolli ferskur appelsínusafi
salt og nýmalaður svartur pipar
að smekk
fínt hakkaður appelsínubörkur til
bragðbætis.
1. Bræðið smjörið í potti. Setjið
laukinn í, lokið pottinum, sjóðið
við vægan hita í um 25 mínútur,
uns laukurinn er mjúkur og
gylltur.
2. Bætið út i gulrótum og soði og
látið suðuna koma upp. Lækkið
hitann aftur, lokið pottinum, látið
sjóða uns gulræturnar eru
mjúkar (um 30 mín).
3. Sigtið, setjið grænmetið i mix-
ara. Bætið við 1 bolla af soði og
hrærið uns blandan verður þykk
og mjúk undir tönn.
4. Setjið blönduna aftur í pott-
inn, bætið í appelsínusafa og 2-3
bollum af afgangssoði uns súpan
verður nógu þykk.
5. Kryddið, bætið appelsínuberki
út í. Hitið í gegn. Berið strax fram.
Uppskriftin er fyrir 4.
Kjúklingasoð
Það þarf víst ekki að taka það
fram að heimalagað kjúklingasoð
er mun betra en það sem kemur
úr teningum. Hér er góð grunn-
uppskrift. (Má fiysta.)
1 /4 bolli olía
1 kg kjúklingapartar (háls og
bak)
4 bollar hakkaður laukur
2 bollar hakkaðar afhýddar
gulrætur
steinselja
2 dósir kjúklingasoð, vatn eftir
þörfum
1 msk þurrkað blóðberg
4 lárviðarlauf
1. Kjúklingabitarnir steiktir við
háan hita í 15 mínútur.
2. Laukur og gulrætur settar út í,
hrært vel í uns grænmetið fer að
brúnast.
3. Afgangurinn settur út í og
vatni bætt í þannig að það þekji
vel. Soðið hressilega í 15 mín,
skánin tekin af, hitinn lækkaður,
pottinum lokað og soðið í 2 klst
(skánin tekin annað slagið).
4. Soðið kælt smávegis, sigtað
(þiýstið vel á grænmetið og kjúkl-
ingabitana til að ná sem mestu úr
þeim).
5. Geymið í lokuðu íláti í ísskáp
yíir nótt. Fjarlægið fltubrák íyrir
notkun.
%
31