Vera - 01.08.1992, Page 39

Vera - 01.08.1992, Page 39
EES-SAMNINGURINN ER EKKIVEGABRÉF FYRIR KONUR Hingaö til hefur umrœöan um EES-aðiid og aölögun aö Evrópubandalaginu fyrst og fremst miöast viö hags- muni atvinnulífs og fyrir- tœkja en aörir þœttir hafa oröiö út undan. í umrœðu erlendis um aöild einstakra ríkja aö EB hefur veriö bent d aö hún muni líklega hafa allt önnur dhrif d stööu kvenna en stööu karla. Fullyröa má aö viö gerö Rómarsátt- málans áriö 1957, sem er nokkurs konar stjórnarskrá EB, og endurskoðun á hon- um síðar hafi hagsmunir kvenna ekki verið haföir aö leiöarljósi fremur en endra- nœr þegar mikilvœgar ákvaröanir hafa veriö tekn- ar. Konur hafa verið nœsta áhrifalausar þar sem ráöum hefur verið ráöiö. Þaö er því ekki aö ástœðulausu aö fjöl- margar konur í Vestur- Evrópu og samtök þeirra hafa sett spurningarmerki viö þœr breytingar sem nú eiga sér staö um alla álfuna. Er líklegt aö sú hugmynda- frœði, sem lögö er til grund- vallar í Evrópubandalaginu og evrópsku efnahags- svœöi, sé til hagsbóta fyrir konur? Eöa er e.t.v. eins líklegt aö hagur þeirra sé hreinlega fyrir borö borinn? Hreyfanlegt vinnuafl Einn þeirra þátta sem taldir eru til mikilla bóta fyrir fólk með aðild að EES er að hægt Verður að fá vinnu hvar sem er á svæðinu án nokkurra hindr- ana. Konur nota ekki slíkan rétt í eins miklum mæli og karlar. Þær eiga yflrleitt erfið- ara með að ílytja búferlum vegna meiri bindingar af fjölskyldu, sérstaklega meðan börn eru ung og á skólaaldri. Einnig taka þær meiri ábyrgð á eldri fjölskyldumeðlimum og þeim sem eiga við veikindi að stríða og eru af þeim ástæðum bundnar við ákveðna staði. Konur á Norðurlöndum hafa enn sem komið er nokkra sérstöðu miðað við kynsystur sínar annars staðar í Evrópu. Norrænar konur vinna al- mennt utan heimilis og er atvinnuþátttaka þeirra sú hæsta í heiminum. Atvinnuleysi Undanfarið ár hefur atvinnu- leysi aukist hér á landi og er það meira meðal kvenna en karla. Það sama er uppi á teningnum í löndum EB, nema þar er atvinnuleysi viðast hvar langtum meira en hér á landi. Konur í EB eru minna úti á vinnumarkaðinum en konur hér á landi og vinna mjög margar óreglulega vinnu við hlutastörf og heimavinnu. Þær hafa í ilestum tilvikum litið atvinnuöiyggi og búa við rétt- leysi að því er varðar trygg- ingar og annað. Af þeim sem búa við slíkt öiyggisleysi eru 75-95% konur. Fjölskyldupólitíkin innan EB byggir fyrst og fremst á því að karlmenn séu fyrirvinnur heimilanna en konur eigi að gæta barna, sjúkra og aldr- aðra. Nauðsynlegt er fyrir ís- lenskar konur að reyna að gera sér grein fyrir hvaða áhrif það muni hafa á stöðu kvenna á vinnumarkaði hér á landi ef ísland verður hluti af 380 milljón manna vinnumarkaði EES, þar sem ofangreind við- horf eru ríkjandi. Ég er ekki bjartsýn á að það muni verða til hagsbóta fyrir konur. Launamisrétti Hér á landi hafa konur í fullu starii að meðaltali aðeins um 60% af þeim launum sem karlar fá fyrir sitt vinnufram- lag. Innan EB er launamunur milli kynja álíka mikill (Dan- mörk er undanskilin), en ann- ars staðar á Norðurlöndunum er munurinn miklu minni. í lögum EB er ákvæði um launa- jafnrétti sem sett var inn árið 1975 vegna þrýstings frá Frökkum. Þeir töldu að kynja- jafnrétti væri meira hjá þeim en í öðrum aðildarlöndum. Vegna samkeppnisstöðu töldu þeir því nauðsynlegt að slíkt ákvæði yrði almennt í gildi innan bandalagsins. Það var þvi ekki af umhyggju íýrir konum sem jafnlaunaákvæðið var sett. Þetta ákvæði hefur ekki haft þau áhrif innan EB að laun kvenna hafi hækkað frekar en hér á landi. Ákvæðið er meira að segja svo veikt að þótt EB-dómstóllinn dæmi konum í hag sem kærðu launamisrétti breytti það engu, konurnar fengju eftir sem áður lægri laun en karlar í því íyrirtæki. í flestum EB-löndum er verkalýðshreyfingin mjög veik. Aðeins 20% launamanna eru í verkalýðsfélagi. Konur á ís- landi hafa margar hverjar ekki talið ráðandi öfl í verka- lýðshreyfingunni taka tillit til kvenna, en hvaða aíleiðingar mun það hafa ef samstaða launafólks verður brotin niður í enn meira mæli en nú hefur verið gert? Velferðarkerfið í flestum ríkjum EB er vel- ferðarkerfið veikara en hér á landi. Konur eru almennt háð- ari velferðarkerfinu vegna stöðu sinnar innan Qölskyld- unnar. Skattlagning fýrirtækja í EB er minni en hér á landi og mun samræming á sam- keppnisstöðu fyrirtækja leiða af sér lækkun skatta á þeim. Slík samræming mun þurfa að eiga sér stað að einhverju leyti óháð þvi hvort við gerumst aðilar að EES eða ekki. Hingað til hefur ekki verið lögð fram nein áætlun um hvernig skuli bregðast við vegna lækkunar skatta á fyrirtækjum. Er ætlunin að skera enn niður í velferðarkerflnu eða á að skera niður annars staðar? Þótt fæðingarorlof hér- lendis sé allt of stutt er það þó lengra en í flestum EB- löndum. Nýlega ákvað fram- kvæmdastjórn EB að mæla með því að fæðingarorlof verði stytt í löndum þar sem það er lengra en 14 vikur. Konur eru éhrifalausar Áhrifa kvenna hefur gætt allt of lítið í heiminum, gildir þar einu um hvers konar stjórn- skipulag er að ræða. Menn eru nú í auknum mæli að gera sér grein fyrir því að ef takast á að snúa mannkyninu af braut þeirrar sjálfseyðingar sem það er nú á verður að veita sjónar- miðum kvenna hlutdeild í stjórn samfélagsins. Það stjórnkerfl sem er við lýði i EB tekur ekki mið af þessum sjónarmiðum. Konur eru fáar í æðstu stöðum, hvort sem um er að ræða embættismanna- kerflð eða það pólitíska. í miðstýrðum kerfum er hlutur kvenna fyrir borð borinn og gildir þá einu hvort hagkerfið er kennt við fijálsan markað eða sósíalisma. Konur hafa rnest áhrif þar sem eining- arnar eru minni og valddreif- ing er höfð að leiðarljósi. Hug- myndafræðin að baki EB og EES er langt frá því að taka mið af þörfum kvenna. Stjórn- kerfið sem þar á að rikja er bæði miðstýrt og ólýðræðis- legt. Segja má að flestar konur innan EB séu enn í kjallara þjóðfélagsins. Konur á Íslandi eru að jafnaði betur settar og annars staðar á Norðurlönd- unum hafa þær verið að flkra sig hægt en örugglega upp á efri hæðir þjóðfélagsbyggingar- innar. Mun aðlögun að Evrópubandalaginu með þátt- töku í EES verða til þess að auðvelda konum að ná bættri stöðu? Fátt bendir til að svo muni verða. Þar sem hámarksgróði og aukinn hagvöxtur er höfuð- markmiðið lúta jafnréttissjón- armið í lægra haldi og lítið tillit er tekið til barna og þeirra sem eldri eru og veikburða. Afleið- ingar slíkrar stefnu bitna frekar á konum en körlum. Það þarf þvi ekki að koma á óvart að konur eru íjölmennari í hópi þeirra sem efast um ágæti aðlögunar að Evrópu- bandalaginu og þeirrar stefnu sem þar er ríkjandi. Kristín Einarsdóttir, þingkona Kvennalistans 39

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.