Vera - 01.12.1994, Page 12
frekskonur og hvu
A hverju ári -já, á hverjum degi — vinna konur um heim allan afrek,
hver á sinn hátt. Sumar ná ákveðnum áfanga á leið að settu marki,
aðrar vinna persónulega sigra og enn aðrar ná árangri sem skiptir allar
konur máli ogfleytir okkur áfram í baráttunnifyrir jöfnum rétti allra.
Islenskar konur eru engar undantekningar frá þessu
og VERUþótti við hcefi að hitta að máli nokkrar konur sem hafa gert
það gott á árinu sem er að líða. Þessi umjjöllun er að sjálfiögðu enginn
tœmandi listiyfir afrekskonur og hvundagshetjur, við höfiim bara
látib hugann reika oggerum okkur grein fyrirþví að úti í samfélaginu
eru miklu fleiri konur sem hafa líka náð langt.
Sú kona sem fyrst kemur t hugann þegar lit-
iö er yfir atburöi líðandi árs er Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir borgarstjóri. Árangur hennar
er ekki einungis persónulegur sigur fyrir
hana heldur er hann einnig sigur allra ís-
lenskra kvenna og árangur kvennabaráttu
síðast liðinna áratuga.
„Það var mjög sérkennilegt að koma úr
stjórnarandstööu og í svo viðamikiö stjórn-
unarstarf sem borgarstjóraembættið er,"
segir Ingibjörg Sólrún, „en það er bæði
ögrandi og spennandi og margt aö takast á