Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1981, Blaðsíða 6

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1981, Blaðsíða 6
110 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ auðveldlega þegar hann tók sig til og stríddi okkur, en það kom fyrir við og við, og auðvitað var reynt að borga fyrir sig. Samstarf okkar Guðmundar var margþætt, við störf á deild- inni, kennslu í Ljósmæðraskólanum og svo vorum við gjarna sett í skemmtinefnd er haldnar voru árshátíðir, þar sem við tróðum upp sem leikarar. Við útskrift í Ljósmæðraskólanum var ég vön að koma honum til að halda smáræður og fékk svo skammir frá honum á eftir fyrir að ota honum út í svona lagað. Það var hins vegar óþarfi, því tölur hans vöktu almenna gleði viðstaddra. í raun er þetta ekki minningargrein um Guðmund, aðeins flett upp í bók liðinna ára og þar er Guðmundr á mörgum blaðsíðum. Vinnusamur, fullur áhuga á öllu mannlegu, læknandi, bæði and- lega og líkamlega. Á gleðifundum var hann manna glaðastur og hreif alla með sér. Trúmaður, án þess að bera það utan á sér. Það eiga margir um sárt að binda vegna fráfalls Guðmundar Jóhannessonar læknis. Sjúklingar hans, samstarfsfólkið á mörgum stöðum, en þó fjölskyldan fyrst og fremst. Guðrún mín, frá mér og öðrum ljósmæðrum færð þú og börnin innilegustu samúðarkveðjur okkar, um leið og við þökkum Guðmundi fyrir allt. Megi minningin um mikilhæfan og góðan mann lifa með okkur. Kristín I. Tómasdóttir Staða Ijósmóður við Sjúkrahúsið á Hvammstanga er laus frá 15. febrúar n. k. Upplýsingar gefur sjúkrahúsráðsmaður í sima 95-1348 eða 95-1429.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.