Ljósmæðrablaðið - 01.12.1981, Blaðsíða 25
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
129
Hulda Jensdóttir:
Fundur norrænna
Ijósmæðrasam-
bandsins árið
1981
Árlegur fundur norræna Ijósmæðrasambandsins, var að þessu
sinni haldinn á Álandseyjum, Mariehamn. Fundurinn hafði þá
sérstöðu nú að taka yfir tvo heila daga, frá árla morguns til síðla
kvölds, í stað eins dags áður, auk þriðja dagsins, sem notaður var
til landkynningar og skoðunarferða um eyjarnar.
Fundi norræna sambandsins er fyrst og fremst ætlað að styrkja
norræna samvinnu og kom öllum saman um mikilvægi þessa
árlega fundar. Umræðan snýst gjarnan um: menntun ljósmæðra,
starfsréttindi ljósmæðra og framtíð þeirra sem stéttar, með meiru
' þá veru, og svo var og nú.
Menntun ljósmæðra á Norðurlöndum er um margt ólíkt, sem er
að sjálfsögðu bagalegt. Öllum kom því saman um að æskilegt
væri að samræma námið meir en nú er, sem þá mundi væntanlega
létta af ýmsum hömlum og opna leiðir til meiri atvinnuréttinda og
atvinnumöguleika landanna á milli, og vandamálin mörg og sum
flókin að leysa. Til dæmis að nefna. Finnskar ljósmæður eiga
bágt með að sætta sig við að starfsheiti þeirra sé í raun úr sögunni
og Ijósmæðraskólinn, sem slíkur, allur. Lítt vongóðar eru þær
uni, að úr þessu verði aftur snúið. Sænski ljósmæðraskólinn sem
slíkur heyrir einnig fortíðinni til, en starfsheiti sínu halda sænskar
ijósmæður fast, og þeir karlmenn sem taka þetta sérnám heita
óhagganlega kvenkynsheitinu „barnmorska”. Sænskar Ijósmæð-
ur eru vel menntaðar og standa fast saman um starfsréttindi sín,
þar fá engar aðrar heilbrigðisstéttir að koma inn fingri. Endur-