Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1981, Blaðsíða 12

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1981, Blaðsíða 12
116 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ tilvik þar sem testosteronframleiðslan er í góðu lagi en kynfæra- frumurnar sem eiga að skynja boð þess eru ónæmar að hluta eða öllu leyti. Hermaphroditismus er það kallað þegar til staðar eru í sama einstaklingi bæði eistu og eggjastokkar. Þessi börn geta fæðst mismunadi mikið vansköpuð, bæði á ytri og innri kynfærum. Litningagerð getur verið af ýmsu tagi. Stundum er eista öðrum megin og eggjastokkur hinum megin eða þessir vefir eru blandaðir beggja vegna (ovotestis). Orsakir þessa eru ekki vel skýrðar. Fyrstu viðbrögð Það fyrsta sem venjulega er spurt um við fæðingu barns er hvors kyns það sé og það er því að vonum mikið áfall fyrir for- eldra og veldur miklum kviða þegar stendur á svari. Á miklu velt- ur að halda rétt á málum allt frá upphafi. Allar vangaveltur og getgátur gera aðeins illt verra og geta haft langvarandi og slæmar afleiðingar. Eðlilegast er að skýra foreldrum frá því að kynfæri barnsins séu ekki fullkomlega mynduð og geri það kyngreiningu erfiða. Leggja skal áherslu á að barnið fari þegar í fullkomna rannsókn hjá viðeigandi sérfræðingum og að henni lokinni verði skorið úr um hvors kyns barnið sé. Taka skal skýrt fram, að að lokinni þ'essari rannsókn muni ekki lengur vera vafi á kyni barns- ins. Eitt það versta sem hægt er að gera, er að kyngreina barn til bráðabirgða með það fyrir augum að breyta því svo ef þörf væri á síðar. Þess eru mörg dæmi að foreldrar hafa átt afar erfitt með að sætta sig við slíka breytingu, jafnvel þó aðeins sé um fáar vikur að ræða. Helstu rannsóknir Eins og nærri má geta er litningarannsókn ein af fyrstu og mikilvægustu rannsóknunum, þegar um er að ræða barn með óeðlileg kynfæri. Sú rannsókn tekur þó alla jafnan nokkra daga. Ef grunur leikur á að barnið geti haft svokallað adrenogenital syndrom, bráðliggur á að greina það rétt og setja barnið á viðeig- andi meðferð strax. Þá þarf að fylgjast vel með blóðsöltum því að hætta er á h yponatremiu og hyperkalemiu. Til nánari greiningar er sent serum til mælinga á 17-hydroxyprogesteron en það er forstig karlhormóna frá nýrnahettuberki og hækkar jafnan í þess-

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.