Ljósmæðrablaðið - 01.12.1981, Blaðsíða 7
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
111
Árni V. Þórsson, læknir:
Þegar börn
fæðast meö
afbrigðileg
kynfæri
Inngangur:
Þegar barn fæðist með vansköpuð kynfæri þannig að erfitt er
að greina kyn þess, veltur á miklu að rétt sé á málum haldið. Líf
barnsins og hamingja getur verið í veði. Því miður verður að segja
að alloft hafi orðið misbrestur á og þvi eru á meðal okkar nokkrir
einstaklingar sem með réttum ákvörðunum og aðgerðum í upp-
hafi hefði mátt forða frá óeðlilegu og óhamingjusömu lífi. í þess-
ari grein verður rætt stuttlega um hvað ræður kynþróun í fóstur-
lífi og hvernig hún getur farið úrskeiðis. Þvi næst verður drepið á
þá helstu sjúkdóma, sem valda því að barn fæðist með afbrigðileg
kynfæri. Rætt verður stuttlega um viðbrögð ljósmæðra og lækna
er staðið er frammi fyrir þessu vandamáli við fæðingu og að
lokum meðferð þessara barna í grófum dráttum. Vegna sérstakra
aðstæðna hérlendis, verður ekki farið út í að lýsa sérstökum til-
fellum og tekið skal fram að engar af þeim myndum sem fylgja
þessari grein eru af íslenskum börnum.
Kynþróun í fóstulífi
Þegar „kappsundi” sæðisfrumanna lýkur, og sigurvegarinn
nær að frjóvga eggið, hefst atburðarrás sem venjulega lýkur með
þvi að fóstrið tekur á sig greinilega karlkyns eða kvenkynsmynd.
Erfðir, hormónar og umhverfisþættir í fósturlífi hafa áhrif á
þessa þróun. í þriðju til fimmtu viku eftir getnað fósturs, myndast
frumur sem síðar verða að kynkirtlum fóstursins og geta þær