Ljósmæðrablaðið - 01.12.1981, Blaðsíða 24
128
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
„Kæru vinir, hjartans þakkir, en ég vil að þið vitið að þessu hefði
ég aldrei komið til leiðar án framlags samstarfsmanna minna á
deildinni.”
Ég vil að lokum þakka samkenurum mínum við skólann fyrir
gott starf, en þó sérstaklega þeim Kristínu Tómasdóttur, yfirljós-
móður og Evu Einarsdóttur, ljósmæðrakennara, fyrir þátt þeirra í
stjórnun, skipulagningu og kennslu við skólann. Eins og áður
hefur samstarfið verið sem best og allir hafa lagst á plóginn með
áhuga. Einnig þökkum við frábærar veitingar frá eldhúsinu og
yngri nemendum fyrir að ganga svo glæsilega um beina.
Og að lokum kæru ungu ljósmæður, fyrir hönd kennara ykkar
og skólans og allra annarra viðstaddra — til hamingju með
daginn.
▲ ▲▲
Þakkirtil Gísla Sigurbjörnssonar
forstjóra
Undanfarin ár hafa ljósmæður orðið áþreifanlega varar við
mikla velvild og rausn frá velunnara Ljósmæðrafélags íslands,
Gísla Sigurbjörnssyni, forstjóra á Elli- og hjúkrunarheimilinu
Grund.
Nú í sumar sýndi hann öldruðum ljósmæðrum sérstakan sóma,
með því að bjóða 6 öldruðum ljósmæðrum til vikudvalar að Ási í
Hveragerði.
Stjórn Ljósmæðrafélagsins metur mikils alla virðingu við þær
ljósmæður, sem skilað hafa löngu og erfiðu starfi.
Stjórn félagsins þakkar Gísla Sigurbjörnssyni fyrir þetta
rausnarlega boð, og ljósmæðurnar sem nutu dvalarinnar, senda
alúðarþakkir fyrir ánægjulega dvöl og frábæra umönnun.
Stjórnin