Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1981, Síða 32

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1981, Síða 32
136 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ Fréttir frá landshlutadeildum Skýrslur afhentar á aðalfundi ’81 Skýrsla Suðurlandsdeildar í Suðurlandsdeild voru haldnir þrir fundir frá síðasta aðalfundi LMFÍ. Aðalfundur 1980 var haldinn 13. júní. Þar sem félagssvæði okkar er stórt, er oft erfitt fyrir félaga að hittast. Var því tekið það ráð, að fjölmenna í rútu austur í Álftaver til Arndísar Salvars- dóttur. Á fundinn mættu 11 ljósmæður. Þar kom fram áhugi fyrir að koma á fót foreldrafræðslu i tengslum við mæðravernd og var í það mál kosin nefnd. Gjaldkeri gerði grein fyrir kaupum á Bilirubintæki, sem deildin, ásamt sambandi sunnlenskra kvenna gefur sjúkrahúsi Selfoss. Næsti fundur var haldinn á Selfossi 19. 02. ’81. Gestur fundar- ins var Vilborg Einarsdóttir. Var þar sérstaklega rætt um væntan- legar breytingar sem verða á fæðingarhjálp og aðstöðu ljósmæðra með tilkomu nýja sjúkrahússins. Samþykkt var að senda til rekstrarstjórnar SHS, fyrirspurn um, hvort fjölga eigi stöðum ljósmæðra þar og hvernig vinnutilhögun þeirra verði háttað. Ástæðan fyrir þessari fyrirspurn er sú, að undanfarin ár hefur þeim konum fjölgað, sem kosið hafa að fæða í Reykjavík. Má nefna, að árið 1979 voru 272 fæðingar á þjónustusvæðinu, þar af aðeins 86 á sjúkrahúsi Selfoss, eða um 30%, og stefnum við að því að snúa dæminu við. Svar við þessu bréfi hefur enn ekki borist, þar sem ekki hefur verið ráðinn yfirlæknir. Aðalfundur 1981 var haldinn á Selfossi 26/4 ’81. Mættar voru 14 ljósmæður, auk gesta, sem voru Vilborg Einarsdóttir, Eva Einarsdóttir og Sigurbjörg Guðmundsdóttir. Á fundinum var ákveðið að kaupa hlustunartæki (DOPTONE) til að gefa Heilsugæslustöðinni til minningar um Georgínu Stefánsdóttur ljósmóður, er lést árið 1977, en hún átti frumkvæði að ungbarnaeftirliti á Selfossi og var mjög áhugasöm um alla heilsugæslu. Elín Stefánsdóttir sagði af sér formennsku, nýr formaður

x

Ljósmæðrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.