Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1981, Side 34

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1981, Side 34
138 L J ÓSMÆÐRABL AÐIÐ slökunar og öndunaræfingum fyrir verðandi mæður, hér í höfuð- stað Norðurlands. Fundurinn telur einnig, að nauðsynleg sé samvinna milli þeirra, sem kenna á námskeiðunum, og hinna, sem aðstoða konur í fæðingu og sængurlegu. Bestu kveðjur. f.h. Norðurlandsdeildar L.M.F.Í. Margrét Þórhallsdóttir formaður (Þessi námskeið eru nú hafin á Heilsuverndarstöð Akureyrar, þegar þetta er ritað 6. maí ’81.) 1. apríl ’81 var fundur haldinn að Hamarstíg 37. Valgerður Bjarnadóttir félagsráðgjafi, sem starfar við sjúkrahúsið á Akur- eyri, var fengin til að flytja erindi. Kynnti hún nám og störf félagsráðgjafa, og var fróðlegt að fá innsýn í þeirra störf. Á þessum fundi var tekið til umræðu, hve seint gengi að koma Ljósmæðratalinu út. Þótti það all illt, hve lengi það hefur dregist. Einnig voru tekin til umfjöllunar starfsskilyrði og fyrirkomulag við mæðraskoðun í Heilsuverndarstöð Akureyrar. Þótti þar úrbóta þörf, sem og stendur vist til að gera. Stjórn deildarinnar er þannig skipuð: Formaður: Margrét Þórhallsdóttir. Varaformaður: Gjaldkeri: Ritari: Meðstjórnandi: Ingibjörg Björnsdóttir Heba Ásgrímsdóttir Þóra Pálsdóttir Freydís Laxdal ▲ ▲ Minningargjöf í tilefni af útskrift ljósmæðra frá Ljósmæðraskóla Islands, afhentu 11 ljósmæður útskrifaðar 1951, peningagjöf til Ljós- mæðrafélags íslands, til minningar um skólasystur sína Þuríði Guðmundsdóttur ljósmóður, er lést 1974. Fénu, kr. 1100,00 skal varið til styrktar stéttartali ljósmæðra.

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.