Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1983, Blaðsíða 5

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1983, Blaðsíða 5
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 5 ATLI DAGBJARTSSON, GUNNAR BIERING og HÖRÐUR BERGSTEINSSON, barnasérfræðingar á Vökudeild Barnaspítala Hringsins Eftirlit með áhættubörnum (High risk infants) Erindi flutt á ráöstefnu um mæöravernd og nýburaþjónustu 21.05.82 í upphafi skyldi endinn skoða. Enda þótt miklar framfarir hafi orðið í fæðingarfræði og nýburafræði á undanförnum árum, verður því markmiði aldrei náð að unnt verði að forða öllum börnum frá því að fæðast með varanlega fötlun. í mjög mörgum tilfellum er fötlunin ógreinanleg strax eftir fæðinguna, en kemur smám saman í ljós þegar barnið eldist. Samdóma álit þeirra, sem vinna með andlega og/eða líkamlega þroskaheft börn er, að því fyrr sem börnin koma til meðferðar, þeim mun betri árangurs er að vænta af meðferðinni. Á Barnaspítala Hringsins á Landspítalanum hefir verið starf- rækt nýburadeild frá því í ársbyrjun 1976. Göngudeildareftirlit með þeim börnum, sem dvalið hafa á deildinni, hefir farið fram í Göngudeild Landspítalans. Segja má að göngudeildareftirlit okk- ar hafi verið með dálítið öðru sniði en gengur og gerist, því að með athugun okkar á börnunum, erum við að leita að einkennum, sem bent geta til skemmda, og þá fyrst og fremst taugakerfis- skemmda, sem afleiðingu af sjúkdómi eða ástandi á meðgöngu eða við burðarmál. Áhættuböm Áhættubörn köllum við þann hóp barna, sem líklegust eru til þess að sýna einkenni um skemmd. Það gefur auga leið að við skilgreiningu á þessum hópi leitumst við við að ná í hann öllum börnum, sem síðar verða að einhverju leyti i smáu eða stóru fötl- uð.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.