Ljósmæðrablaðið - 01.04.1983, Side 30
30
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Frá Kjaranefnd Ljósmæðrafélags íslands
um sérkjarasamninga Ljósmæðrafél. ísl.
Fyrsti fundur með fulltrúum ríkisins um sérkjarasamninga
Ljósmæðrafélags ísl. var haldinn 29. jan. ’82. Á þessum fundi var
lögð fram kröfugerð félagsins.
KRÖFUGERÐ LJÓSMÆÐRAFÉLAGS ÍSLANDS
um sérkjarasamning, sbr. II. kafla 7. gr. laga nr. 29 frá 1976 um
kjarasamninga Bandalags starfsmanna ríkis og bæja.
Ljósmæðrafélag íslands gerir þær kröfur nú, að í þessum sér-
kjarasamningum verði leiðrétt það launaflokkamisrétti sem Ijós-
mæður hafa orðið að þola í gegnum árin.
Þess vegna fer félagið fram á, að störfum ljósmæðra sem vinna
hjá ríkinu eða stofnunum þess skuli raðað í launaflokka þannig,
að laun ljósmæðra verði hin sömu og greitt er fyrir sambærileg
störf innan heilbrigðisstétta, þ.e.a.s. hjúkrunarfræðingar.
Ljósmæðrafélagið gerir þann fyrirvara:
Að áskilinn sé réttur til að leggja fram ferkari kröfur meðan á
viðræðum stendur.
F.h. Ljósmæðrafélags íslands
Vilborg Einarsdóttir
formaður
Á móti bauð ríkið 0,5—0,7% launahækkun sem fulltrúar
félagsins höfnuðu alfarið.
Annar fundur með fulltrúum ríkisins var haldin 18. 02. ’82 án
árangurs, og fóru því sérkjarasamningar félagsins þar af leiðandi
fyrir kjaranefnd, og voru þeir lagðir þar fram af fulltrúum félags-
ins og ríkisins e.h. þann 18. 02. ’82.
Rökstuddu þar kröfugerðina fulltrúar í kjaranefnd ásamt for-
manni félagsins.