Ljósmæðrablaðið - 01.05.1990, Síða 4
Fréttir irá stjórn
Nú er nýtt starfsár byrjað og mikið sem liggur fyrir. Við lukum síðasta ári
með vinnu við útgáfu á handbók ljósmæðra — Fylgja — sem kom svo út
nú eftir áramót. Ritstjóri bókarinnar er Helga Birgisdóttir ljósmóðir. Ætlunin
er að bókin komi út árlega. Bókin hefur selst vel, þó eru nokkur eintök eftir
og þið, sem ekki hafið enn keypt hana, skuluð endilega láta verða af því
sem fyrst.
Nýja árið byrjaði með samningalotu um kaup og kjör. Þessir samningar
eru að því leytinu sérstakir að verið er að reyna nýjar leiðir. Hvort það tekst
veit enginn, en það þótti þess virði að reyna. Nú, ef þetta gengur ekki, þá
er samningum sagt upp og við byrjum upp á nýtt.
Heilbrigðisráðuneytið ætlar að hætta að reka fagskóla sem tilheyrt hefur
því ráðuneyti og fer því Ljósmæðraskóli Islands yfir í menntamálaráðuneytið.
Starfað hefur nefnd um framtíð Ljósmæðraskólans. I þessari nefnd starfa
eftirtaldir fullrúar: Ljósmæðrafélag íslands: Margrét Guðmundsdóttir, Guð-
rún Guðbjörnsdóttir og Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir. Hjúkrunarfélag Is-
lands: Elínborg Jónsdóttir og María Finnsdóttir. Hjúkrunarfélag
Háskólamenntaðra: Þórhildur Ágústsdóttir og Ingibjörg Einarsdóttir. — Mjög
gott samstarf hefur verið innan nefndarinnar. Nefndin hefur haldið nokkra
fundi og verkinu hefur miðað þokkalega áfram, en of snemmt er að segja
til um árangur.
Kringlan verður með heilsudaga eins og undanfarin ár og bauð Ljósmæðra-
félaginu þátttöku. Heilsudagar verða á tímabilinu 01.03. —17.03. Kjörorð
heilsudaganna er: Bætt heilsa betra líf.
2
I—IÓSMÆÐR ABLAÐIÐ