Ljósmæðrablaðið - 01.05.1990, Síða 9
Almennar upplýsingar
Mótsstaður:
Kobe Port Island Hall
(Sýningarhöllin)
6-12-2, Minatojima Nakamachi
Kobe, Japan 650
Sími: (078) 302-8781
Intemational Conference Center Kobe
(Ráðstefnumiðstöðin)
6-9-1 Minatojima Nakamachi
Kobe, Japan 650
Sími: (078) 302-5200
Kobe
Kobe er heimsleg stórborg með um
1,4 millj. íbúa. Hún er miðsvæðis í jap-
anska eyjaklasanum og því auðvelt að
komast þangað hvort sem er landveg,
sjóveg eða um loftin blá. Þangað er 40
mínútna akstur frá alþjóðaflugvellinum
í Osaka. Frá Tokyo má komast þangað
með sérstakri lest á 3 klt. og 20 mín.
Kobe er ólík bæði Kyoto og Tokyo.
Borgin hefur fjölþjóðlegt yfirbragð, hef-
ur orðið fyrir margvíslegum erlendum
menningaráhrifum allt frá þeim tíma er
hún varð hlið Japans að umheiminum
1868 á endurreisnartíma Mutsuhito
keisara. Alla tíð allt frá komu fyrstu
kaupmannanna og kristniboðanna hef-
ur Kobe boðið velkomna alla gesti
hvaðan sem þeir komu úr heiminum.
Hin miklu erlendu áhrif sjást alls staðar
í fjölskrúðugum verslunargötum, vel
búnum tískuvöruverslunum og veit-
ingahúsum með góðan mat og evr-
ópsk vín. Meðal áhugaverðra staða má
nefna skógi vaxinn þjóðgarðinn í
Rokko-fjöllum, en þangað má komast
með strengjakláf, Suma-ströndina,
hverasvæðið í Arima, nautgripabúin
— nautakjöt frá Kobe er þekkt um all-
an heim sem gæðavara —og ,,sake“-
brugghúsin í Nada.
Port-eyja
Ráðstefnumiðstöðin og Sýningarhöll-
in sem hýsir þingið standa á Port-eyju
sem gerð er af manna höndum. Þetta
er fyrsta menningarborg heimsins reist
á hafi úti og markar braut Japana inn í
21. öldina. ... Þangað er 10 mínútna
ferð frá miðborg Kobe með Port-braut-
inni, nýtísku sjálfvirk járnbraut, sú fyrsta
sinnar tegundar í Japan.
Tungumál þingsins
Opinber tungumál þingsins eru
enska, franska og spænska. Túlkað
verður yfir á þessi mál og japönsku í
Sýningarhöllinni þar sem almennu
fundirnir svo og einn af samtímafund-
unum verða. Hinir þrír samtímafundirn-
ir fara fram á ensku og japönsku eða
ensku eingöngu.
Afgreiðsla
Afgreiðsla þingsins verður opin í
sýningarhöllinni frá og með laugardeg-
inum 6. október kl. 09.00.
Þátttökustaðfesting
Þátttökustaðfesting verður gefin út
fyrir alla ráðstefnugesti sem sitja meira
en einn dag á þinginu.
Fyrirlestrar
Allir fyrirlestrar sem fluttir verða á
þinginu verða gefnir út á ensku í sér-
stakri bók. Bókina verður unnt að
kaupa á þinginu fyrir 3.000 yen stykk-
ið. Gerast má áskrifandi að bókinni um
leið og þátttaka um þingsetu er tilkynnt.
_____________________________________ 7
ljósmæðrablaðið