Ljósmæðrablaðið - 01.05.1990, Side 10
Á þriðjudags-, miðvikudags- og
fimmtudagseftirmiðdaga verður þing-
haldinu skipt upp í fjóra samtímafundi,
sem hver um sig fjallar um sjálfstætt efni
samanber dagskrá fundarins. Að öðru
leyti verða þingfundir sameiginlegir öll-
um þátttakendum.
Sýning
Sýning muna sem tengjast ljósmóð-
urstarfi verður opin á sjöttu hæð (fifth
floor) í Ráðstefnumiðstöðinni dagana
8. —11. október. Gestgjafar ásamt
WHO (Alþjóða heilbrigðismálastofnun-
in) og UNICEF (Barnahjálp Samein-
uðu þjóðanna) munu leggja til muni á
þessa sýningu. Þar verður starf jap-
anskra ljósmæðra einnig kynnt.
Uppsetning sýningarinnar er í
höndum:
Nippon Administrative Management
Association
3-11-8 Sendagaya Shibuya-ku
Tokyo, Japan 151
Sími: (03)403-1331,
Fax: (03)403-1710.
Úrdrættir úr fyrirlestrum
Væntanlegum þingfulltrúum er boð-
ið að halda fyrirlestra, setja upp vegg-
spjöld eða sýna kvikmyndir. Þeir sem
vilja nýta þetta boð verða að senda úr-
drátt úr fyrirhuguðum fyrirlestri eða
kynningu á veggspjaldi eða mynd til
undirbúningsnefndar fyrir 28. febrúar
næstkomandi. Fyrirlestrar í fullri lengd
berist fyrir 30. júní n.k. Nánari upplýs-
ingar um þetta atriði fást á skrifstofu
LMFÍ.
Faglegar kynnisferðir
Efnt verður til faglegra kynnisferða til
fæðingarheimila, sjúkrahúsa og
Ijósmæðraskóla um eftirmiðdaginn þ.
9. október. Þátttöku verður ráðstafað í
þeirri röð sem umsóknir berast. Allar
ferðirnar hefjast kl. 13.30 við ráð-
stefnuhúsið og enskumælandi túlkur
verður með í för. Krafist verður far-
gjalds í allar ferðirnar nema til Borgar-
sjúkrahúss Kobe. Þátttöku í þessar
ferðir þarf að gefa til kynna í tilkynn-
ingu um þingsetu, samanber tákn hér á
eftir. Hámarksfjöldi gesta í hverja ferð
er tilgreindur.
Svæðafundir
Síðdegis 8. október er gert ráð fyrir
sérstökum fundum þingfulltrúa frá hin-
um einstöku heimshlutum þar sem þeir
geta rætt sérstök áhugamál varðandi
þann heimshluta.
Guðsþjónustur
Upplýsingar um helgihald hinna
ýmsu trúarbragða í Kobe fást á hót-
elunum.
8 __________________________________
1—IÓSMÆÐRABLAÐIÐ