Ljósmæðrablaðið - 01.05.1990, Side 21
/ móðurkviði
(Þýðing Freyju Magnúsdðttur, ljós-
móður úr greininni „Darinne i magen
sker livets under“, sem birtist í sænska
blaðinu Viföraldrarnr. 10, okt. 1989).
Æ fleiri vísindamenn beina sjónum
sínum að rannsóknum á fósturþroska
og nýfæddum börnum. Það þarf e.t.v.
ekki að koma á óvart því vissulega er
það kraftaverk sem á sér stað þegar
nýtt líf kviknar. Rannsóknir á þessu
sviði geta varla talist gamlar. Það eru
ekki nema u.þ.b. tveir áratugir síðan lit-
ið var á hið nýfædda barn sem óþrosk-
aða og vanhæfa veru. Um fóstrið var
enn minna vitað. Það var t.d. fyrst árið
1970 sem hægt var að segja með vissu
að fóstrið andaði, en fóstrið byrjar að
æfa öndun einhvern tíma í 11. viku.
I dag beinast rannsóknir vísinda-
manna að því að geta nánar sagt til um
það hvernig hinn ótrúlegi þroski fósturs
úr frumuböggli í fóstur og síðan mann-
eskju gengur til. Prófessor Hugo
Lagercrantz við Karolinska sjúkrahúsið
í Stokkhólmi gaf út núna í haust bók
sem hann nefnir ,,Den ofödda mánn-
iskan“. Hann gerði örlitla samantekt úr
þessari bók fyrir blaðið ,,Vi föráldrar".
Ekki allt vitað
A vissan hátt er það svolítill léttir að
vita að ennþá eru ekki til svör við öllu.
Það er t.d. ekki alveg vitað hvernig
upphaf fósturmyndunar gengur fyrir
sig, en þremur dögum eftir frjóvgun
myndast frumuhópur með 32 eins
frumum sem stjórnar hvaða frumur
verða að taugafrumum, hverjar verða
vöðvafrumur, hverjar verða meltingar-
frumur o.s.frv. Það er heldur ekki vitað
hvað ræður því að fóstrið vex og af
hverju það vex ekki meira. Hið frjóvg-
aða egg skiptist aðeins 44 sinnum á
meðgöngutímanum á meðan t.d. bakt-
eríufrumur geta skipt sér 44 sinnum á
sólarhring. í 4. til 8. viku fósturþrosk-
ans þrefaldar fólstrið lengd sína og
margfaldar þyngd sína 50 sinnum. Ef
vöxturinn héldi áfram í þeim takti þá
yrði hið nýfædda barn 100 metra langt
og 14 tonn að þyngd við fæðingu!
Hvað það er sem fær vöxtinn til að
hægja á sér er sem sé ekki vitað.
Rannsóknir eru gerðar á hinum
flóknu þáttum er liggja að baki þroska
heilans. Frumumyndun hans hefst í 3.
viku eftir frjóvgun og heilinn heldur
áfram að þroskast allt lífið. Hröðust er
þróunin í 10.—2Ó. viku meðgöngu en
þá myndast 250 þúsund nýjar heila-
ljósmæðrablaðið
19