Ljósmæðrablaðið - 01.05.1990, Qupperneq 24
Brautryðjendastarf í sögu
ljósmæðra á Islandi
Rætt við Helgu Birgisdóttur Ijósmóður og ritstjóra nýútkominnar handbókar ljós-
mæðra ,,Fylgju“.
VIÐTAL: GÍGJA SVEINSDÓTTIR, ljósmóðir
Út er kornin á vegum Ljósmæðrafé-
lags íslands, handbók fyrir ljósmæður.
Þetta er í fyrsta sinn sem bók af þessu
tagi kemur út hér á landi og er útgáfa
hennar því merkur áfangi í sögu Ljós-
mæðrafélagsins.
Sú manneskja sem borið hefur hit-
ann og þungann af útgáfu verksins er
Helga Birgisdóttir ljósmóðir, sem með-
al annars sá um efnisöflun, ritstjórn og
hönnun bókarinnar.
Hver er aðdragandinn að útgáfu bók-
arinnar?
Hugmyndin að útgáfu handbókar fyr-
ir ljósmæður kom upphaflega frá Hildi
Kristjánsdóttur ljósmóður. Hún bar
hana upp við mig í mars ’89 og leist
mér strax vel á og var til í að vinna að
gerð slíkrar bókar, þó að ég hefði ekki
tíma þá. I september síðastliðinn ákvað
ég svo að drífa bókina af stað svo að
hún gæti komið út um áramótin. Það
varð því að setja allt á fullt strax í byrj-
un, því bókin þurfti að vinnast á
methraða.
Eg fékk Margréti Guðmundsdóttur
formann Ljósmæðrafélagsins til að
vinna að bókinni með mér og fékk hún
22 ___________________________________
samþykki stjórnar félagsins fyrir útgáfu
hennar. Ég byrjaði síðan á að skrifa
niður hugmyndir um efni í bókina og
fékk einnig ýmsar góðar ábendingar frá
öðrum. Við Margrét unnum svo að efn-
isöflun og leituðum við til margra aðila
um að leggja fram efni og tóku þvi flest-
ir vel. Mesta vinnan fólst síðan í því að
,,fínpússa“ efnið og virtist sem að
endalaust væri hægt að betrumbæta
og bæta við.
Hver er tilgangurinn með útgáfu bók-
arinnar?
Tilgangurinn var að sameina hagnýt-
ar upplýsingar fyrir ljósmæður í litla
I—IÓSMÆÐRABLAÐIÐ