Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.05.1990, Page 31

Ljósmæðrablaðið - 01.05.1990, Page 31
andlegrar líðanar konunnar en þó þyk- ir víst að ef konunni líður illa andlega verður sjúkdómsástandið oft verra. Álit- ið er að andleg líðan hafi áhrif á stöð A í heila. Ahættuhópar: — Konum með fleirbura virðist hætt- ara við að fá hyperemesis, — konum með trophoblastiska sjúk- dóma, s.s. mola, — konum sem hafa sögu um endurtek- in fósturlát, — konum með erfiðar andlegar og fé- lagslegar aðstæður. Einkenni: Eru mjög mismikil eftir alvarleika sjúkdómsins, við uppköst og svelti koma fram eftirtalin einkenni: Dehydration, vökva- og elektrolytaójafnvægi, metabolisk acidósa, hypopróteinaemia, hypovitaminosis, gula og blæðingar vegna B og C víta- mínskorts, hypoprothrombinaemia sem getur leitt til blæðinga í slímhimnum, fósturdauði og óafturkræfar metabol- iskar breytingar hjá konunni. Rannsóknir: Blóð- og þvagprufur eru teknar til að fylgjast með vökvabúskap konunnar. Fylgjast þarf vel með niðurstöðum beirra og grípa fljótt inní ef með þarf. Eftirlit á deild: Konur eru lagðar inn til að koma í veg fyrir að ástandið verði mjög slæmt. Því fyrr sem gripið er inní því betri eru horfur fyrir móður og fóstur. Fylgjast þarf með: — magn og tíðni uppkasta, — vökva- og fæðuinntekt, nákvæm vökvaskrá, — vigta daglega, — fylgjast með rannsóknarniður- stöðum, — hlusta eftir fósturhljóðum, — fylgjast með vexti og þroska fósturs, — fylgjast með líðan konunnar, and- lega og líkamlega, — fylgjast með infusion, — fylgjast með merkjum um gulu, — fylgjast með blæðingum úr slím- himnum, t.d. blæðir við tannburst- un, marblettir o.þ.h. Hjúkrun og meðferð: Miklu máli skiptir að útskýra vel fyrir konunni tilgang meðferðar og fullvissa hana um að meðferðin auki líkur á að meðgangan gangi vel og fóstrið bíði ekki tjón af sjúkdómnum né með- ferðinni. Hafa konuna á rólegri, góðri og huggulegri stofu. Velja stofufélaga m.t.t. rólegheita. — Gefa vökva í æð og vítamín til að leiðrétta vökvabúskap líkamans. — Hafa fastandi til að byrja með til að hvíla konuna. — Etv. róandi lyf (sjá nánar seinna). — Reyna að ná góðu sambandi við konuna og fá hana til að tala um að- stæður sínar. — Leggja áherslu á að þetta sé einung- is tímabil meðgöngunnar sem komi til með að ganga yfir. ljósmæðrablaðið 29

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.