Ljósmæðrablaðið - 01.05.1990, Side 37
fyrr en um kynþroskaaldur og eru þau
brjóstastækkun, lítill hárvöxtur í andliti
og á líkama, renglulegur líkamsvöxtur
og lítil kynfæri. Það að einkenni koma
svona seint fram gerir greiningu í
bernsku erfiða. Venjulega er greind
eðlileg en væg andleg þroskahömlun
getur verið til staðar. Greinist með
rannsókn á litningagerð.
XW syndrome
Tíðnin er 1 fæðing af hverjum 1000
sveinfæðingum. Engin líkamleg ein-
kenni eru til staðar og greind er oftast
eðlileg. Þessir einstaklingar eru frjóir og
greinast ekki nema með rannsókn á litn-
ingagerð.
xo syndrome (Turner’s syndrome)
Tíðnin er 1 fæðing af hverjum
10.000 meyfæðingum og ekki háð aldri
móður. Líkamleg einkenni eru ekki til
staðar við fæðingu en koma fram við
kynþroskaaldur og eru einstaklingar
lágvaxnir og með sérkennilega strekkta
húð á hálsi. Hárvaxtarlínan nær lengra
niður á hálsinn en venjulega og annars
stigs kyneinkenni koma ekki fram.
Eggjastokkarnir samanstanda aðeins af
þunnum bandvef og tíðablæðingar
verða ekki. Þessar stúlkur eru ófrjóar.
Onnur einkenni eru þrenging á aortu,
vaxtarþroski nagla er óeðlilegur og eru
nýru óeðlileg. Greind er eðlileg. Hægt
að fá fram annars stigs kyneinkenni
með ostrogengjöfum á kynþroskaaldr-
inum.19 bls- 227-230
TAFLA 2.
Tíðni fæðingargalla annarra
en litningagalla
Fæðingargallar Tíðni per
1000 fæðingar
Miðtaugakerfisgallar:
a. Heilaleysi (anencephaly) b. Klofinn hryggur (spina bifida) c. Vatnshöfuð (hydrocephaly) 1-3 1-3 1-2
Gallar á hjarta og æðakerfi: 2-5
Gallar á munni og meltlingarvegi: a. Klofin vör, klofinn gómur b. Meltingarvegur 1-2 1-3
Gallar á þvagfærakerfi: 0,5-1
Gallar á beinum: 1-3
Klumbufótur (talipes): 1-3
Mjöðm úr lið við fæðingu: 2-6
Aukafingur, aukatær: 0,5-1
Fósturgallar vegna
umhverfisáhrifa
Sykursýki
Fóstur sykursjúkra kvenna eru í
meiri hættu á að fæðast með galla en
fóstur kvenna sem ekki þjást af sjúk-
dómnum, tíðnin er allt að sexföld.20
Gallarnir sem helst koma fyrir eru
hjartagallar og gallar á neðri útlimum
og miðtaugakerfis. Ástæður þessar eru
taldar vera breytingar á blóðsykurgild-
um móður mjög snemma á meðgöngu.
Gott eftirlit með verðandi sykursjúkum
mæðrum kemur að mestu í veg fyrir
þetta. Viðvarandi há gildi er þó skað-
leg.19 bls. 847
UJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
35