Ljósmæðrablaðið - 01.05.1990, Blaðsíða 40
hafa myndað mótefni gegn veirunni
áður en þær verða barnshafandi, eru
ekki útsettar fyrir fósturgöllum, þó þær
haldi áfram að bera veiruna í sér. Við
sýkingu er móðirin einkennalaus. Eftir-
farandi einkenni koma fram hjá fóstr-
inu: heilaskemmdir, fæðist vangefið,
of lítill heili, vatnshöfuð, stækkun lifrar
og milta, truflanir á hreyfitaugakerfi,
spastiskar hreyfingar og lamanir.5
Fæðast oft andvana. Veiran greinist í
blóði móður.
Einfrumungurinn Toxoplasma
gondie veldur Toxoplasmosis. Þetta
sníkjudýr er mjög útbreitt í hitabeltis-
löndum og finnast mótefni í blóði gegn
Toxoplasma í nærri 100% tilvika hjá
fullorðnum þar. I Svíþjóð hafa nærri
20% fullorðinna mótefni gegn Toxo-
plasma. Toxoplasma finnst í flestum
dýrum með heitt blóð. Hundar, kettir
og kindur eru talin sýkja menn. Sýking
á sér oftast stað þegar neytt er kjötmet-
is sem er ekki nógu vel steikt eða soð-
ið. Toxoplasma er skipt í meðfætt form
og áunnið. Meðfætt form er þegar
sýking á sér stað á meðgöngutíma, en
áunnið form er sýking eftir fæðingu. A
fyrsta þriðjungi meðgöngu getur sýking
valdið fósturdauða og fósturláti. A
tveimur seinni þriðjungum meðgöngu
eykst hættan á meðfæddu Toxoplasm-
osis hjá fóstrinu. Einkenni hjá móður
eru oft lítil og því erfitt að sjá fyrir fóst-
urskemmdir fyrir fæðinguna. Þeir fóst-
urgallar sem geta komið fram eru
eftirtaldir: of lítill heili, vatnshöfuð,
kalkanir í heila, heilahimnubólga, bólg-
ur í augum, og stækkun á lifur og milta.
Batahorfur eru slæmar fyrir barnið þótt
reynd sé meðferð og fá börn lifa án mik-
38 ___________________________________
illa skemmda á miðtaugakerfi. Ef kon-
an hefur eignast barn áður með
Toxoplasmosis, er hættan á með-
fæddu Toxoplasmosis ekki til staðar í
seinni meðgöngu, vegna ónæmis-
myndunar móðurinnar. Greinist í blóði,
til að vinna á sýklinum er barninu gefið
blanda af Sulfa og Bactrim lyfjum.5
Listeria Monocytogensesis orsakast
af Gramjákvæðum B-hemolytiskum
bakteríum. Kemur aðallega fyrir í kvik-
fénaði, hænsnum og nagdýrum. Getur
borist í menn með ógerilsneyddri mjólk
eða í kjöti. Rannsóknir hafa sýnt að sýk-
ing er algeng, en fullorðnir eru oftast
einkennalausir. Fóstrið sýkist með
blóðbraut um fylgju. Afleiðing sýkingar
getur orðið vatnshöfuð, sem kemur
vegna heilahimnubólgu. Greinist með
blóðrannsókn og er meðhöndlað með
lyfjum.
Sárasóttarsýkillinn Treponema pall-
idum fer ekki yfir fylgju og í fóstrið fyrr
en eftir 16. viku meðgöngu. Sé Lues-
próf jákvætt, er hægt að gefa Penicill-
in. Omeðhöndluð sárasótt veldur alvar-
legum göllum eða fósturdauða.5 Örfá-
ar konur mælast alltaf jákvæðar í
meðgöngu. Niðurbrotsefni úr
HCG-hormóninu getur villt mælingu.
Konan mælist svo neikvæð 6 vikum eft-
ir fæðingu.7
4. FYRIRBYGGJANDI
AÐGERÐIR
Flestir fósturgallar eru þess eðlis að
1—IÓSMÆÐRABLAÐ1Ð