Ljósmæðrablaðið - 01.05.1990, Blaðsíða 45
hana annast nú barnalæknir sem er
sérmenntaður í meðfæddum sjúk-
dómum.
Enn eigum við langt í land að greina
alla þá fjölmörgu meðfæddu galla sem
þekktir eru, en hægt er að fylgjast með
vexti og þroska fóstursins í meðgöng-
unni á ýmsa vegu. Má þar nefna röntg-
enrannsóknir, ómun, legástungur,
fósturspeglun og fylgjuvefssýnatökur.
Aðgerðir til að greina fósturgalla hafa
flestar hverjar áhættu í för með sér fyrir
fóstrið og því má ekki beita þeim nema
í völdum tilvikum. Slíkar aðgerðir verð-
ur að skipuleggja þannig að arðsemi
þeirra verði sem mest og áhættan sem
minnst.11
Röntgenrannsóknir
Röntgenmyndataka af fóstri í með-
göngu er elsta aðferðin til fósturskoð-
unar.11 Með röntgenmyndatöku er
hægt að greina mjög fáa t.d. útlima-
galla og heilaleysi (anencephalus) en
þó aðallega óeðlilegan beinvöxt. Suma
galla í mjúkvefjum, s.s. ytri sköpulags-
galla, er hægt að greina með því að
sprauta inn í legvatnið skuggaefni. Slík
rannsókn kallast ,,Amniography“ ef
notað er vatnsleysanlegt skuggaefni og
>,Fetography“ ef notað er fituleysan-
legt skuggaefni. Skuggaefnið sest á
húð fóstursins og sýnir útlínur þess
mjög vel. Hætta á fósturláti fylgir þó
þessum rannsóknum. Öllum röntgen-
myndatökum á þunguðum konum
þarf að stilla í hóf vegna áhrifa geislun-
ar á fóstur, sbr. um geislun hér að fram-
an. í dag eru röntgenrannsóknir til
greiningar á fósturgöllum lítið notaðar.
Hefur ómskoðun að mestu leyti leyst
þær af hólmi.
Omun
Árið 1956 var byrjað að kanna nota-
gildi örbylgna í fæðingarfræði, fyrsta
áratuginn í tilraunastigi en 1970 var
notkun þeirra orðin útbreidd. Það var
síðan 1975 sem farið var að nota óm-
skoðun á Kvennadeild Landspítalans.15
Örbylgjur eru hljóðbylgjur með hærri
tíðni en mannseyrað greinir. Ómtækið
sendir frá sér hljóðbylgjur og tekur síð-
an við bergmáli þeirra og breytir því í
mynd. Þannig er hægt að skoða fóstrið
með mikilli nákvæmni. Ekki hefur ver-
ið sýnt fram á nein skaðleg áhrif af
notkun örbylgna á fóstrið.
Þróun ómtækja hefur orðið mjög
mikil á síðustu árum og hefur notkun
þeirra aukist að sama skapi. í fyrstu var
notaður hér B-scanner eða stillimynda-
tæki en árið 1982 kom Realtime-scann-
er eða hreyfimyndatæki á Kvennadeild-
ina.
Með hreyfimyndatækinu er hægt að
sjá hjartað slá og hægt að sjá fóstrið
hreyfa sig, sjúga puttana og jafnvel
brosa. Hreyfimyndatækið spannar yfir
minna svæði en stillimyndatækið og er
því hægt að skoða einstök líffæri mjög
vel.18
í dag fara allflestar konur hér á landi
í ómskoðun á 18, —19. viku með-
göngu. Á þeim tíma nýtist skoðunin
best, þá fæst góð vitneskja um með-
göngulengd, hægt er að skoða fóstrið
ljósmæðrablaðið
43