Ljósmæðrablaðið - 01.05.1990, Side 46
vel með tilliti til sköpunargalla og hægt
að staðsetja fylgjuna í leginu með mik-
illi nákvæmni. Við 19 vikna skoðun er
mælt þvermál höfuðs (biparietal dia-
meter) og lengd langra beina fóstur,
þ.e. lærleggs og upphandleggs. Öll
helstu líffærin heilahólf, mæna, hjarta-
hólf, magi, nýru, þvagblaðra og útlimir
eru skoðuð vandlega og einnig er at-
hugað legvatnsmagn.
Þjálfuð augu þess sem annast óm-
skoðunina ásamt nákvæmum tækjum
hafa gert það kleift að greina ýmsa fóst-
urgalla með ómun. Þeir eru helstir:
— Gallar á höfði (anencephaly, hy-
drocephaly microcephaly og andlitsgall-
ar).
— Gallar á mænu (spina bifida).
— Nýrnagallar.
— Gallar á meltingarvegi (garnir bunga
út í kvið og lokun á meltingarvegi).
— Utlimagallar.
— Slæmir hjartagallar.
— Vökvasöfnun í kviðarholi (accitis),
lifrar- og miltisstækkun.
Ómskoðun á fyrstu 12 vikum með-
göngu er aðeins gerð ef meðgöngu-
lengd er óviss eða ef meðganga er á
einhvern hátt óeðlileg s.s. blæðingar,
mikil ógleði eða afbrigðileg þykkt. Þá
er hægt að:
— Greina afbrigðilegar þunganir, dáið
fóstur, fósturvisnun, blöðrufóstur og ut-
anlegsfóstur.
44 _____________________________________
— Ákvarða meðgöngulengd.
— Greina fleirbura.
— Staðfesta meðgöngulengd m.t.t.
legástungu og fylgjuvefssýnitöku.
Ómskoðun á síðari hluta meðgöngu
er gerð:
— Ef grunur er um vaxtarseinkun hjá
fóstri.
— Til að greina lágstæða/fyrirsæta
fylgju og mögulega orsök blæðingar.
— Til að greina fósturstöðu vegna
gruns um sitjandi stöðu eða þverlegu.
— Fá síðabúna greiningu á fóstur-
göllum.21
Legástungur og
legvatnsrannsóknir
Legástungur til greiningar á fóstur-
göllum hófust hér á landi árið 1973.
Legvatnssýnin voru í fyrstu send til
Danmerkur til greiningar, þar sem
tæknilega kunnáttu skorti hér á landi til
slíkra rannsókna. Þegar sýnum fór að
fjölga þótti sýnt að koma yrði upp að-
stöðu hér og var þá hafist handa í
áföngum og frá árinu 1978 hafa allar
litningarannsóknir verið gerðar hér
heima. Mælingar á AFP (alfa fósturpró-
teinum) hófust hér á landi árið 1977.2
Litningarannsóknir og mælingar á
AFP eru algengustu ástæður fyrir leg-
ástungu en ýmsar fleiri rannsóknir,
efnaskipta- og erfðarannsóknir, er
hægt að gera á legvatni og legvatns-
frumum.
Helstu ábendingar fyrir legástungu
eru:
— Konur sem eru 35 ára og eldri við
_________________ I—IÓSMÆÐRABLAÐIÐ