Ljósmæðrablaðið - 15.11.2002, Blaðsíða 4
verður hún ritstjóri faglegs eínis og verður það
að sjálfsögðu til að auka veg blaðsins á faglegu
sviði. Það er sá þáttur sem við þurfum að
sinna af krafti ásamt félagslega þættinum til
að Ljósmæðrablaðið sé það blað sem það þarf
að vera. Ég sé það fyrir mér að ljósmæður
framtíðarinnar noti Ljósmæðrablaðið til að
birta ritverk sín um fagleg efni hvort sem það
er skrifað sem áfangi í frekari menntun eða
sem hugleiðingar um ljósmóðurstarfið.
Þær ljósmæður sem eiga efni í fórum sínum
ættu að setjast niður og skrifa grein til birtingar
í næstu blöðum. Þannig verðum við seint
uppiskroppa með efni.
Þá má ekki gleyma þætti fræðslunefndarinna
í efhisframlagi til blaðsins. En nánast allt sem
fræðslunefnd tekur sér fyrir hendur er í raun
efni til birtingar í blaðinu. Án þess að ég sé
að gera lítið úr öðru er sérstaklega gaman að
sjá þann áhuga sem ljósmæður sýna
nálastungunámskeiðunum sem byrjað var með
s.l. vor. Það er þegar búið að fylla það
námskeið sem byrjar í febrúar 2003 og einnig
hefst námskeið á Selfossi undir haust 2003.
Myndir frá fyrsta námskeiðinu og grein eftir
tvo af þátttakendunum eru hér aftar í blaðinu.
Það er von mín að blaðið haldi áfram að þróast
og dafna, það er ekkert vandamál að halda
útgáfunni áfram með öflugan og áhugasaman
hóp ljósmæðra á bak við sig sem hafa metnað
og áhuga á að auka veg Ljósmæðrablaðsins.
Sem nýr formaður félagsins vil ég þakka þeim
sem veittu mér stuðning til þess embættis
Formaður hefur fasta viðveru á skrifstofu
félagsins á fimmtudögum frá kl.13-17. Hins
vegar er hægt að ná sambandi við hann símleiðis
alla daga og þessi viðvera er alls ekki eini
tíminn sem hægt er að ná í formann. Ég hvet
ljósmæður til að hafa samband ef þeim liggur
eitthvað á hjarta því formaður er í vinnu hjá
þeim ljósmæðrum sem eru í
ljósmæðrafélaginu. Verkefni formanns eru
að sjálfsögðu margvísleg, margt er hægt að
afgreiða símleiðis eða með tölvusamskiptum.
Það er einnig hluti af þessu starfi að mæta á
ýmisskonar fundi, bæði vegna kjara- og
samskiptamála, en einnig vegna aðildar okkar
að ýmsum samtökum s.s. BHM og SHS.
Sem dæmi má nefha að nýlega var undirritaður
samningur við SPRON vegna bókunar- og
innheimtumiðstöðvar fyrir BHM aðildarfélögin
en LMFÍ er aðili að henni.
Framundan er vinna við endumýjun samnings
við Tryggingastofnun Ríkisins og verður að
heíja undirbúning sem fyrst. Þessi samningur
er okkur mjög mikilvægur og haxm er einnig
mikilvægur fyrir þær sjúkrastofhanir sem hafa
útskrifað sængurkonur snemma m.a. vegna
kröfu um sparnað í heilbrigðiskerfinu. Þær
ljósmæður sem hafa einhveq'ar hugmyndir um
hvað mætti betur fara eða hverju mætti breyta
í þessum samningi em beðnar að senda félaginu
tölvupóst eða ræða við undirritaða símleiðis.
Það er von mín að ljósmæður vinni áfram að
eflingu síns félags og hafi það hugfast að engin
keðja er sterkari en veikasti hlekkur hennar.
Með kveðju,
Ólafla Margrét Guðmundsdóttir
Formaður LMFÍ
Helgarleiga á sumarbústaö félagsins
Kjarrhúsi
Haustið er vinsæll tími í sumarbústaðnum og hefur hver helgi verið
upptekin fram í desember. Þá er búið að falast eftir að leigja hann um
jólin.
Lítið er farið að bóka eftir áramótin svo nú er tækifærið. Hafið samband
við skrifstofu LMFÍ á opnunartíma sími 564 6099 eða skiljið eftir skilaboð
á símsvaranum eða sendið e-mail lmfi@ljosrnaedrafelag.is
Helgarleiga á vetrartíma er ekki skráð í punktakerfi orlofsnefndar og
verðið er kr. 6000 fyrir kjarafélaga en kr. 8000 fyrir fagfélaga.
Góð slökun í fallegu og sögufrægu umhverfi.
Ljósmæðrablaðið
Nóvember 2002