Ljósmæðrablaðið - 15.11.2002, Blaðsíða 23
Reykleysismeðferð og tóbaksuarnir
Handbók fyrir heilbrigðisstarfsfólk
Nú á haustdögum kom út handbók fyrir
heilbrigðisstarfsfólk, er fjallar um
reykleysismeðferð og tóbaksvarnir. Handbók
þessi lítur nú í íyrsta sinn dagsins ljós á íslandi.
Hún er unnin með hliðsjón af breskri handbók
„Clearing the air“ frá Royal College of Nursing
í Bretlandi og staðfærð miðað við íslenskar
aðstæður.
Handbókin gefur greinargóðar leiðbeiningar
fyrir heilbrigðisstarfsfólk um hvemig það getur
aðstoðað fólk við að hætta að reykja á sem
áhrifaríkastan hátt.
Tilgangur handbókarinnar er að:
* Auka þekkingu heilbrigðisstarfsmanna á
áhrifum reykinga á lýðheilsu.
* Kynna helstu ákvæði tóbaksvarnalaga.
* Veita heilbrigðisstarfsfólki upplýsingar um
reykleysismeðferð í því skyni að bæta
hæfni þeirra og öryggi á því sviði.
* Styðja heilbrigðisstarfsfólk til að veita
markvissa aðstoð til reykleysis.
* Kynna úrræði og helstu leiðir við
framkvæmd reykleysismeðferðar.
* Bæta þekkingu heilbrigðisstarfsfólks á
lyflameðferð við tóbaksfíkn með og án
nikótíns.
* Auka hæfni þeirra til að ráðleggja
reykingamönnum notkun lyfjameðferðar
og í gerð áætlunar fyrir hvern og einn
einstakling.
Megináherslan er á reykleysismeðferð. Ekki
má þó líta framhjá þeirri staðreynd að reyklaust
tóbak er einnig skaðlegt heilsu manna. Fjallað
er sérstaklega um reyklaust tóbak í bókinni og
jafnframt vísað í frekari heimildir.
Það er ekkert launungamál að tóbaksnotkun
er alvarlegasta ógn nútímans við heilbrigði
fólks. Hún hefur mikil áhrif á lífsgæði og
lífslengd einstaklinga. Mikilvæg forvörn
sjúkdóma næst fram með því að byrja aldrei
að nota tóbak og styðja þá til reykleysis sem
þegar eru byrjaðir að reykja.
Á Alþingi íslendinga í maí árið 2001 voru
samþykkt ný og breytt lög um tóbaksvarnir.
Þar er kveðið fastar en áður um rétt fólks til
reyklauss andrúmslofts, sem og takmarkanir á
markaðssetningu og sölu tóbaks.
Heilbrigðisstarfsfólk er hvatt til að fræða um
áhrif tóbaksneyslu og leiðir til að draga úr
henni.
Handbók þessi er gefin út til minningar um
Ingileif Ólafsdóttur hjúkrunarfræðing og
ffæðslufulltrúa Krabbameinsfélagsins. Ingileif
vann ómetanlegt starf í þágu tóbaksvarna á
Islandi og sýndi mikla þrautseigju við að brýna
heilbrigðisstarfsmenn og yfirvöld í glímunni
við tóbakið. Hún lést í ágúst 1999.
Heilbrigðisstarfsfólk er í lykilaðstöðu til að
veita ráðgjöf til reykleysis
Það er gleðiefni að jafnvel einstaklingar sem
eru mjög háðir tóbaki geta hætt að reykja ef
hugur fylgir máli, með aðstoð lyfja og stuðningi
fagfólks. Að hjálpa reykingamanni að hætta
að reykja gæti verið eitt mikilvægasta ffamlag
heilbrigðisþjónustunnar til að efla heilbrigði
einstaklingsins.
Meðal efnis í handbókinni má finna
ráðleggingar fyrír sjúklinga, konur á meðgöngu
og unglinga sem reykja.
Ymsum spurningum er svarað s.s.
Hvemig er nikótínfíkn metin?
Pakkaár, hvernig eru þau reiknuð út?
Hvað ávinnst við að hætta að reykja?
Hvernig er unnið út frá breytingaferlinu?
Hver er fráhvarfseinkenni tóbaksleysis?
Útgefendur handbókarinnar eru:
Samtök hjúkrunarffæðinga og ljósmæðra gegn
tóbaki, Krabbameinsfélag Reykjavíkur,
Hjartavemd, fagdeild lungnahjúkrunarffæðinga,
fagdeild hjartahjúkrunarfræðinga og fagdeild
hjúkrunarfræðinga á krabbameinssviði.
Styrktaraðilar: Landspítali - háskólasjúkrahús,
Tóbaksvarnanefnd, Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið, Rannsóknasjóður
lungnalækningaskorar LSH, Félag íslenskra
hjúkrunarfræðinga, Loftfélagið, Glaxo Smith
Kline og Thorarensen-Lyf.
Handbókina er hægt að nálgast hjá
Krabbameinsfélagi Reykjavíkur, Skógarhlíð
8, 105 Reykjavík. Sími 540 1900. Einnig má
senda tölvupóst á alda@krabb.is.
Ljósmæðrablaðið
Nóvember 2002