Ljósmæðrablaðið - 15.11.2002, Side 9
aðalnámsgreinar skuli kenndar við skólann en
þær eru; fæðingarfræði og fæðingarhjúkrun,
barnalæknisíræði og hjúkrun, líffræðaíræði,
fósturfræði, lífeðlisfræði, erfðafræði,
heilsugæsla, sálarfræði, félagsráðgjöf og
heilbrigðislöggjöf (Lög um Ljósmæðraskóla
íslands. Stj.tíð. nr. 35/1964). Skipulag námsins
var með þeim hætti að nemendur voru 1 heilan
dag í viku í bóklegu námi og verklegt nám var
þannig að þeir unnu hina 4 dagana vaktavinnu
á hinum ýmsu deildum Kvennadeildar
Landspítalans. Námið tók 2 ár (24 mánuði).
Ljósmóðumámið við Háskóla Islands í dag er
60 eininga starfsmiðað nám eftir fyrstu
háskólagráðu (BS gráðu í hjúkrunarfræði) og
tekur 2 ár (22 mánuði). Grunnnámskeið í
ljósmóðurfræði eru kennd á 1. ári samtals 30
einingar og eru heiti námskeiða Inngangur að
ljósmóðurfræði, Ljósmóðurfræði I, II. og III,
Heilbrigði kvenna, Heilsugæsla á meðgöngu
og Umönnun sængurkvenna og nýbura, Á 2.
ári er lögð áhersla á klínískt nám og
starfsþjálfun á heilbrigðisstofnunum samtals
30 einingar, Klínísk starfsþjálfun í
ljósmóðurfræði I og II eru námskeið þar sem
ffæðileg og klínísk vinnubrögð eru þjálfuð og
lýkur þeim með embættisprófi sem felur í sér
mat á faglegri færni til að geta stundað
ljósmóðurstörf (Námsskrá í Ljósmóðurfræði
2001-2002).
Hér hafa áherslur greinilega breyst og þó
ljósmóðurffæði hafi verið kennd áður var hún
ranglega kölluð fæðingafræði (Olöf Ásta
Ólafsdóttir 1995). Vægi ljósmóðurffæði er nú
mun meira en í gamla náminu, engin
læknisffæði er kennd og þaðan af síður hjúkrun
enda er hjúkrunarnám undanfari námsins.
Munurinn sést kannski best á því að áður
kenndu læknar nær allar námsgreinar en
ljósmæður gera það í dag. Ef til vill er hér
einblínt um of á hvað námsgreinarnar heita,
ffekar en innihald þeirra eða það hver var og
er fagvitund og hugmyndaffæði ljósmæðranna
sem útskrifast úr hvoru náminu sem er. Sjálf
er ég ekki í nokkrum vafa eftir að hafa kynnt
mér núverandi námskrá og kennt
ljósmæðranemum í mæðravernd að
hugmyndaffæði ljósmæðra sem útskrifast úr
náminu í dag er allt önnur en til að mynda mín
var þegar ég útskrifaðist úr Ljósmæðraskóla
íslands árið 1979. Þá var hugmyndafræði
læknisfræðinnar og mikil trú á kynngimátt
tækninnar allsráðandi og viðhorfið var að konan
vissi minnst um sig og sitt bameignaferli, enda
ekki sérfræðingur (Oakley 1993, Raeburn
2000).
Þróun nýrrar námskrár og
þekkingargrunns
í námsskrá í Ljósmóðurfræði við Háskóla
Frá útskrift Ijósmæðra 2002
íslands 2001 -2002 , er kafli um uppbyggingu
og þróun námsskrár þar sem áherslur em í anda
þess að ljósmæður starfi eftir skilgreiningu
WHO, ICM og FIGO, á störfúm þeirra og eftir
þeirri hugmyndafræði að barneignaferlið sé
náttúrulegt lífeðlislegt ferli. Þessar áherslur
sjást einnig greinilega í kaflanum um
hugmyndalfæðilegar áherslur námsins, þar sem
kemur fram „...að það sé hlutverk ljósmæðra
að skapa þau skilyrði að barnsfæðing verði
einstakur atburður í lífi fólks, sem það upplifi
á jákvæðan, einstaklingsbundinn og
persónulegan hátt” (Ólöf Asta Ólafsdóttir
1995). Þetta sýnir að fræðigreinin
ljósmóðurfræði er til og skilgreind í námskrá
námsins.
Jeanne Siddiqui (1994) telur að það sé svo
mikilvægt að greina ljósmóðurfagið sem
fræðigrein, að alls ekki megi detta í þá gryfju
að reyna að byggja upp kenningar um hana
með vísindarannsóknum eingöngu. Að skoða
ljósmóðurfagið útfrá orsaka- og afleiðinga-
hugmyndum getur verið að greina listina frá
hinum hörðu vísindum þeim í hag og þannig
sé algjörlega misst af grundvallarhugmyndum
fagsins eins og það birtist í starfi og reynslu.
Linda Bergstrom (1997), segir að það sé
nauðsynlegt fyrir ljósmæður að skilgreina
fræðigreinina ljósmóðurfræði, vegna þess að;
a) nemendur sem koma í námið með
mismunandi bakgrunn (hér á landi hjúkrun),
þurfa að fá skýr skilaboð um það hvað það sé
sem þeir munu læra sem verður til þess að þeir
verða ljósmæður
b) það eru til staðar nú og munu verða til staðar
klínísk sem og fræðileg vandamál sem eru
Vœgi Ijósmóðurfrœði
er nú mun meira en í
gamla náminu, engin
lœknisfrœði er kennd
og þaðan af síður
hjúkrun enda er
hjúkrunamám undan-
fa ri námsins.
Munurinn sést
kannski best á því að
áður kenndu lceknar
nœr allar náms-
greinar en Ijósmœður
gera það í dag.
Ljósmæðrablaðið
Nóvember 2002