Ljósmæðrablaðið - 15.11.2002, Qupperneq 12
Frá útskrift Ijósmœðra 2002
virðist þingmaðurinn álíta að
hjúkrunarfræðingar gangi í störf ljósmæðra og
sinni mæðravemd á heilsugæslustöðvum, en
svo er ekki víðast hvar í dag. Hér sýnist mér
að sé á ferðinni enn eitt dæmið um hversu
ósýnilegar og hógværar ljósmæður eru í
stjórnkerfinu.
Veikur hlekkur
Ijósmœðra sem
fagstéttar er fyrst og
fremst sjálfrœði
stéttarinnar. Löng
hefð er fyrir því að
lœknar séu yfirmenn
Ijósmœðra og náms
þeirra.
Siðareglur
Virðingu fylgja völd og ákveðin stjórn á
skjólstæðingahópnum sem kannski er ekki
alltaf til góðs og leiðir okkur beint í umræðu
um siðareglur og siðfræði. Ljósmæðrafélag
Islands hefur samþykkt Alþjóðasiðareglur
ljósmæðra (1999) sem samþykktar vom 1993
á alheimsþingi ljósmæðra sem haldið var í
Vancouver í Kanada. Ljósmæður á íslandi
starfa eftir þessum siðareglum og nám í
ljósmóðurfræði tekur mið af þeim við gerð
námsskrár. Hugmyndafræði og stefna
Ljósmæðrafélags íslands byggir einnig að
hluta á þessum siðareglum (Hugmyndaífæði
og stefna 2000). Siðareglurnar fjalla um
samskipti ljósmæðra innbyrðis, um störf
ljósmæðra, um faglegar skyldur ljósmæðra og
um endurmenntun ljósmæðra. Þær hvetja til
gagnkvæms trausts og virðingar og byggja á
þeirri meginhugsun að sérhvern einstakling
beri að virða sem mannseskju
(Alþjóðasiðareglur ljósmæðra 1999).
Innan Ljósmæðrafélags íslands er starfandi
siðanefnd sem hefur það hlutverk að veita
félagsmönnum sínum ráðgjöf og gefa umsögn
þegar um er að ræða fagleg eða persónuleg
álitamál sem tengjast starfi ljósmæðra. Nefndin
er stjórn félagsins til ráðgjafar um siðfræðileg
efni sem stjórn þess hefur til umfjöllunar og
undir þetta fellur m.a. umfjöllun um frumvörp
að lögum um hvaðeina sem kann að tengjast
störfum ljósmæðra. Einnig getur hér verið um
að ræða álit siðanefndar á rannsóknum sem
snerta störf ljósmæðra eða skjólstæðinga þeirra.
Sjálfræði
Að síðustu þarf að fjalla um sjálfræði
stéttarinnar og ábyrgð gagnvart samfélaginu.
Abyrgðin hefur verið rædd lítillega áður í
umræðu um siðfræði og virðingu. Ljósmæður
er hægt að lögsækja vegna starfa þeirra allt ffá
þeim degi að þær öðlast leyfi til starfa og eru
þær meðal annars á þann hátt ábyrgar fyrir
störfum sínum. Megintilgangur lögvemdunar
fagstétta er sú frumskylda að tryggja að sú
þjónusta sem veitt er sé veitt af fagfólki sem
uppfyllir ákveðin skilyrði og að aðrir sinni ekki
þessum störfúm. Þannig er aukið enn á traust
almennings á fagstéttinni.
Sjálfræði stéttarinnar felst í því að hafa áhrif
á til dæmis hversu margir hafa aðgang að henni,
og þar er lögverndun mikilvæg sem og því að
hafa áhrif á hversu margir hafa aðgang að námi
hennar. Það að geta haft áhrif á lagasetningar
um starf og starfsumhverfi er mjög mikilvægt
og ljósmæður eiga enn mikið eftir til að svo
verði. Það er þó móast við, Ljósmæðrafélag
Islands er virkt 1 að sjá til þess að sem flest
lagafrumvörp sem viðkoma stéttinni og
skjólstæðingum hennar, fái umfjöllun félagsins
og athugasemdum er komið á framfæri. I
kjarasamningum Ljósmæðrafélagsins við
viðsemjendur sína frá árinu 2000, er komið á
svokölluðu framgangskerfi sem er að margra
mati tæki sem eykur á sjálfræði stétta (Howsam
o.fl. 1985). Umræða um frammistöðumat til
að viðhalda réttindum sínum til starfa hafa
einnig komið fram meðal ljósmæðra á íslandi
en það er einmitt annað tæki sem Howsam o.fl.
(1985) nefna sem tæki sem eykur á sjálfræði
fagstétta.
Veikur hlekkur ljósmæðra sem fagstéttar er
fyrst og ffemst sjálffæði stéttarinnar. Löng hefð
er fyrir því að læknar séu yfirmenn ljósmæðra
og náms þeirra. Stjómskipulag sjúkrahúsa þar
sem flestar ljósmæður starfa er þannig að þar
em tveir faglegir yfirmenn, ffamkvæmdastjóri
lækninga og ffamkvæmdastjóri hjúkrunar og
heyra ljósmæður í pýramída stjórnkerfi undir
þann síðarnefnda (sjá skipurit Landspítala
Háskólasjúkrahúss 2002). Þetta eiga ljósmæður
bágt með að sætta sig við ekki síst í ljósi þess
að framkvæmdastj óri hjúkrunar
(hjúkrunarforstjóri) er nánast aldrei menntuð
ljósmóðir. Hér er mikil tregða í stjórnkerfinu
og gjalda ljósmæður þess hversu fáar þær eru
miðað við til dæmis hjúkrunarfræðinga.
Astæður þess að þetta er svona em sjálfsagt
margar. Starfssvið hjúkrunarfræðinga er frá
upphafi umfangsmeira en ljósmæðra á
sjúkrahúsum og heilbrigðisstofnunum, en