Ljósmæðrablaðið - 15.11.2002, Blaðsíða 15
Ljósmóðurstörf eru lífið sjálft
í huust var dr. Huguette Comerasamy, frá
háskólanum í Surrey iEnglandi, gestakennari við
Ijósmóðurfrœðinámiö um 2ja vikna skeið. En auk
þess að kenna Ijósmóðurfrœði við liáskólann
starfar hún sem Ijósmóðir i mœðravernd og sinnir
m.a. konum sem hafa verið umskornar.
Umfjöllunarefni hennar við Ijósmóðurfrœðinám
HÍ var hugmyndafrœði og saga Ijósmœðra. Hún
hélt einnig erindi á opnum fyrirlestri deildarinnar
sem hún byggði á doktorsritgerð sinni en þar
fjallar hún m.a. um Ijósmóðurfrceði i'it frá
vestrænum starfsháttum og starfsháttum
Ijósmœðra á eynni Máritius, þ.e. þeirra sem starfa
á annan hátt en gerist og gengur i vestrœnum
löndum. Blaðamaðurfylgdist meðfyrirlestri
Huguette og fékk hana síðan til viðtals um
viðfangsefni sín.
Inngangur
Huguette, sem er fædd á Máritíus, eyríki austur
af Madagaskar í Indlandshafi, aðila að breska
samveldinu, er glaðleg, fíngerð kona. Og af
fyrirlestri hennar og viðtalinu má ráða að hún
er mjög áhugasöm um starf sitt og annt um að
efla vitund um störf ljósmæðra. Lengst af hefiir
hún búið í Bretlandi og þar lærði hún og stundar
ljósmóðurstörf, eftir að hafa fyrst lært
hjúkrunarfræði. Hún segir að það hafi í raun
ekki verið fyrr en hún fór að vinna meistara-
verkefni sitt við háskólann í Surrey 1992 sem
hún fór að velta því fyrir sér hvort hægt væri
að líta á ljósmóðurfræði út ffá öðrum sjónarhóli
en þeim sem hún hafði kynnst í námi sínu og
störfum. Hún hafði hitt ljósmæður frá heima-
landi sínu, konur sem í raun voru ekki faglærðar
ljósmæður, sem voru í Bretlandi til að auka
við þekkingu sína. Hún fór að spyija þær hvað
ljósmæður lærðu á Máritíus og hvernig þær
stunduðu sín störf.
Margar spumingar vöknuðu hjá henni við það
að kynnast þessum óhefðbundnu ljósmæðrum
og hún ákvað að rannsaka ljósmóðurfræðina
enn frekar út frá þessum grunni og skrifa
doktorsritgerð um þá rannsókn. Spurningar
sem vöknuðu tengdust ljósmóðurfræði í nútíð
og þátíð, í vestrænum sem og öðrum
menningarheimum. Spurningarnar voru t.d.:
hvers vegna nú væri lögð svona mikil áhersla
á að konur fæddu á sjúkrahúsum - sjálf hefði
■ í f « .1 ■ i , , Huguelte héltfyrirlestur
hun íæöst heima, hvers vegna konumar lægju á vegum ijósmóðurfrœði-
í rúmum þegar komið væri að fæðingu, hvemig nams við Háskó,a tslands
ljósmóðurstörf heiðu verið áður fyrr og hvemig
væru þau nú? Einnig hvernig kirkjan hefði
blandast inn í ljósmóðurstörf.
Til að leita svara við einhverjum af þessum
spumingum fór hún m.a. til Máritíus árið 1996
til að kynna sér störf ljósmæðra á eynni og
skoða þau síðan í samhengi við störf ljósmæðra
í vestrænum löndum. Um leið ætlaði hún að
leitast við að skilgreina ljósmóðurfræðina.
Hlutverkið felst í lífinu sjálfu
Hún dvaldi því í sínu gamla heimalandi um
nokkurt skeið. Fljótt komst hún að því að á
Máritíus eru í raun stunduð tvenns konar
ljósmóðurstörf, þ.e. þau sem tíðkast hafa frá
alda öðli - og er þá talað um hefðbundna
fæðingarhjálp (traditional birth attendant) - og
svo ljósmóðurstörf á sjúkrahúsum, sem eru þá
sams konar og þekkjast í vestrænum löndum.
Ljósmæðrablaðið
Nóvember 2002