Ljósmæðrablaðið - 15.11.2002, Page 21
Skemmtilegt, fræðandi og mannbætandi
Óhætt er að segja að námskeiðið hafi tekist
vel og þær ljósmæður sem það sóttu voru
sammála um að það væri skemmtilegt,
fræðandi, nytsamlegt í starfi og mannbætandi.
Lilleba var ánægð með hvað íslenskar
ljósmæður eru fljótar að tileinka sér nálastungur
og eru óhræddar við að nota það sem þær eru
búnar að læra. Henni fannst gaman að vera á
íslandi og fann vel ákafann hjá ljósmæðrunum.
Þar sem mikill áhugi er hérlendis eftir þetta
námskeið er stefnt að því að halda annað
námskeið í febrúar og maí 2003. Hugsanlega
verður einnig framhaldsnámskeið í maí 2003
fyrir þær ljösmæður sem sóttu námskeiðið s.l.
sumar, en þá verður farið nánar í kínverska
hugmyndafræði og nálastungur við
kvensjúkdómum.
Undirritaðar tóku viðtal við Guðlaugu og
Lilleba til að forvitnast um bakgrunn þeirra.
Hér verður tæpt á því helsta sem fram kom.
Guðlaug María Sigurðardóttir átti
hugmyndina að þessu námskeiði, hún hafði
samband við fræðslunefnd Ljósmæðrafélags
íslands og ljósmæðranám HÍ sem tóku vel í
þessa hugmynd og námskeiðið varð að
veruleika. Guðlaug lærði nudd í Nuddskóla
íslands auk þess sótti hún námskeið í
svæðanuddi. Eftir það lá leið hennar til
Danmerkur þar sem hún lærði ljósmóðurfræði
og útskrifaðist sem ljósmóðir 1998. Skömmu
eftir útskrift fór Guðlaug á nokkur námskeið
í nálastungum sem Lilleba hélt. Eftir þessi
námskeið og þá reynslu sem hún fékk í starfi
sem ljósmóðir ákvað hún að fara í fullt nám
í nálastungum, sem hún mun ljúka í desember
2002. Guðlaug stefnir að því að flytja heim
til íslands næsta sumar og ætlar hún að opna
nuddstofú þar sem hún mun einnig bjóða upp
á nálastungur. Hún er með heildsölu með
nálastungunálar og fleiri hluti tengda
nálastungum eins og plaköt og dúkkur. Nafnið
á fyrirtækinu hennar er 9 mánuðir ehf og
netfang Guðlaugar er gull@worldonline.dk.
Lilleba Anckers lærði fyrst hjúkrunarfræði.
Hún flutti til Japans og bjó þar frá 1981-1982.
í Japan lærði hún nálastungur, jurtalækningar
(herbal medicin) og shiatzu nudd. Eftir það
lá leið hennar til New York þar sem hún lærði
kínverska hugmyndafræði ásamt kínverskri
læknisfræði (medicin). Þar rak hún nuddstofu
þar sem hún fór heim til viðskiptavinanna og
gaf shiatzu nudd, nálastungur og kínverskar
lækningar. Á árunum sem hún bjó í New York
Ljósmœður á jyrsta nálastungunámskeiðinu ásamt Lilleba Ankers og
Guðlaugu Mariu Sigurðardóttur
fór hún til Peking í 3 mánuði til að læra meira
í nálastungum. í Peking var kennt 6 daga
vikunnar í 3 mánuði og þar segist Lilleba hafa
lært mest. Eftir það nám fór hún að vinna á
móttöku fyrir fíkla, þar sem hún beitti
nálastungum í eyru með góðum árangri. Hún
flutti svo aftur til Svíþjóðar í lok árs 1984 þar
sem hún fór að vinna á klínik í Stokkhólmi.
Það ár var samþykkt að heilbrigðisstarfsfólk
notaði nálastungur til að lina verki. Árið 1987
byrjaði hún að kenna hjúkrunarfræðingum
nálastungur og grunn í kínverskum lækningum.
Lilleba hafði alltaf haft áhuga á
ljósmóðurstarfinu. Fyrsta konan sem hún gaf
nálastungur í fæðingu var vinkona hennar sem
var frumbyrja og var að fæða barn í
sitjandastöðu. Fæðingin gekk eins og í sögu
og konan þurfti enga aðra verkjameðferð. Eftir
þessa reynslu fékk hún áhuga á að nota
Rósa Bragadóttirí höndum Aslugar Valsdóttur og
Ágústu Þ. Kristjánsdóttur
Ljósmæðrablaðið
Nóvember 2002
* ■