Ljósmæðrablaðið - 15.11.2002, Page 22
Lilleba Ankers leiðbeinir Önnu Eðvaldsdóttur við að stinga Höllu Ósk Halldórsdóttur
þekkingu sína við fæðingar. Fyrsta námskeiðið
um nálastungur við fæðingar hélt Lilleba árið
1992. Á þeim tíma var mikill áhugi fyrir
nálastungum í Svíþjóð og var orðið leyfilegt
að beita þeim.
Lilleba útskrifaðist sem ljósmóðir árið 1998
og hefur eftir það haldið fjölda námskeiða fyrir
ljósmæður og lækna. Nú er boðið upp á
nálastungur sem valkost í fæðingum á nánast
öllum fæðingadeildum í Svíþjóð.
Lilleba vann á fæðingadeild í 1 1/2 ár eftir
útskrift, en hefur síðan unnið á ljósmæðrastofu
þar sem hún starfar við meðgönguvernd og
getnaðarvarnaráðgjöf. Þar meðhöndlar hún
konur meðal annars með hyperemesis,
grindarverki, svefnörðugleika, höfuðverk,
þunglyndi og streitu. Hún þróaði að mestu
sjálf þá punktanotkun sem hún kennir á
námskeiðunum sínum.
Lilleba hefur skrifað fjölda greina um
nálastungur auk þess sem hún hefur skrifað
bók um nálastungur ásamt Christer Carlsson,
bókin heitir Akupunktur och TENS inom
obstetriken og kom út árið 1997.
Við hlökkum til að fá þessa orkumiklu og
skemmtilegu konu hingað aftur til að kenna
okkur meira.
Rétt er að ljúka þessari umQöllun á orðum
Lilleba um nálastungur í fæðingu: "Konan
slakar betur á, er í meiri tengslum við eigin
líkama og hefur meiri stjórn á fæðingunni.
Legið vinnur betur, konan vinnur betur með
fæðingunni og er sáttari sem leiðir oft til styttri
fæðingar og jákvæðari upplifunar konunnar".
Halla Hersteinsdóttir
Jenný Inga Eiðsdóttir
Frá starfsmenntunarsjóði BHM
STRIB
Starfsmenntunarsjóður LMFÍ var nýlega sameinaður Starfsmenntunarsjóði BHM og geta ljósmæður nú þegar
sótt um styrki í hann. Til þess að eiga rétt á úthlutun úr sjóðnum þarf viðkomandi að hafa greitt félagsgjöld í eitt
ár til LMFÍ. Reglur sjóðsins er að finna á heimasíðu Bandalags háskólamanna www.bhm.is. Umsóknir eru
afgreiddar fjórum sinnum á ári, í janúar, apríl, júlí og október og rennur umsóknarffestur út síðasta dag mánaðarins
á undan. Hámarksstyrkur er kr. 70.000 á tveggja ára fresti. Rétt er að geta þess að við úthlutanir styrkja til
ljósmæðra er tekið tillit til úthlutana úr Starfsmenntunarsjóði LMFÍ síðustu tvö árin þannig að hafi ljósmóðir
fengið styrk á þeim tíma kemur sú upphæð til lækkunar á þeim styrk sem viðkomandi getur fengið frá STRIB.
Tökum sem dæmi ljósmóður sem fékk 30.000kr. styrk í júní 2001. Sú Ijósmóðir á nú þegar rétt á 40.000kr. styrk
úr Starfsmenntunarsjóði BHM. Kysi hún að nýta sér þann rétt t.d. í janúar á næsta ári ætti hún næst rétt á
hámarksstyrk í janúar 2005. Ef hún hins vegar ákveður að nýta ekki styrkinn íyrr en í júlí 2003 eru liðin tvö ár
frá síðustu úthlutun og þá á hún rétt á 70.000kr. styrk. Ljómæður sem koma nýjar inn í LMFÍ þurfa eins og allir
nýjir félagar að hafa greitt til STRIB í eitt ár áður en hún á rétt á úthlutun og verður og þá eingöngu til verkeíha
sem heQast a.m.k. eftir að þetta eina ár er liðið.
Bryndís Jónsdóttir
Deildarstjóri styrkveitinga BHM,
Lágmúla 7,108 Reykjavík.
'i') Ljósmæðrablaðið
Nóvember 2002