Ljósmæðrablaðið - 15.11.2002, Blaðsíða 25
Þyngdaraukning
á meðgöngu
-hjá konum í kjörþyngd fyrir þungun.
Ahrif á útkomu meðgöngu og heilsu móður.
Jóhanna Eyrún Torfadóttir
N æringarfræðingur
Inngangur
Meðganga veldur í langflestum tilvikum þyngdaraukningu hjá hinni verðandi móður.
Rannsóknir undanfarinna ára benda til að ráðleggingar um þyngdaraukningu á meðgöngu hafi
verið of strangar m.t.t. hættu á offitu og íylgikvillum. Bandarískar ráðleggingamar sem Institut
of Medicine (IOM) setti árið 1990 mæla með þyngdaraukningu á bilinu 11.5 til 16.0 kg íyrir
konur sem eru í kjörþyngd fyrir þungun. Á íslandi var oft miðað við töluna 12.5 kg en það
var meðalþyngdaraukning í skoskri rannsókn sem gerð var á árunum 1950-65.
Þar sem ofþyngd og oífita er vaxandi áhyggjueíhi, þá var gerð rannsókn á þyngd eftir meðgöngu
á Islandi, til að rannsaka líkur á ofþyngd eða ofFitu meðal kvenna sem vom í kjörþyngd fyrir
þungun. Rannsóknin sýndi að 89% kvennanna höfðu náð kjörþyngd aftur einu og hálfu til
tveimur ámm eftir fæðingu, óháð hversu mikið þær þyngdust á sjálfri meðgöngunni (sem var
allt að 24 kg).
Jóhanna Eyrún
Torfadóttir vann
meistaraverkefnið
undir leiðsögn
Ingu Þórsdóttur
prófessors í
nœringarfrœði
Markmið
Eftir að þessi rannsókn var gerð þá vöknuðu
spurningar um hvort há þyngdaraukning á
meðgöngu væri í lagi m.t.t. fylgikvilla á
meðgöngu og í fæðingu. Markmið
meistararannsóknar þeirrar sem hér er kynnt,
var að kanna tengsl milli þyngdaraukningar
hjá konum sem vom í kjörþyngd fyrir þungun
og fylgikvilla á meðgöngu eða í fæðingu.
Einnig voru skoðuð tengsl milli
þyngdaraukningar og fæðingarþyngdar bama.
Þar að auki var markmiðið að greina við hvaða
þyngdarmörk líkur ykjust á fylgikvillum á
meðgöngu og í fæðingu. Okkur þótti líka
mikilvægt að rannsaka heilbrigðar konur í
kjörþyngd til að sjá hvort núverandi
ráðleggingar væm raunhæfar fyrir þennan hóp
kvenna.
Einnig átti að bera niðurstöður rannsóknarinnar
við IOM ráðleggingarnar sem taka mið af
þyngd fyrir þungun hjá verðandi mæðrum.
Stuðst er við þessar bandarísku ráðleggingar
þar sem ekki er að finna neinar opinberar
ráðleggingar hér á Norðurlöndunum. Nokkuð
hefur borið á því að fræðimenn hafi verið
ósammála um IOM ráðleggingamar og því var
áhugavert að sjá hvaða niðurstöður við fengjum
m.t.t. þess.
Aðferð
Þátttakendur í rannsókninni voru valdir með
slembiúrtaki meðal kvenna sem voru í
kjörþyngd fyrir þungun. Þetta var gert fyrir
fæðingar á tímabilinu júlí til desember árið