Ljósmæðrablaðið - 15.11.2002, Side 32
Ljósmæðraráð
Vilborg Ingólfsdóttir
Hildur Kristjánsdóttir
Helga Gottfreðsdóttir
Ráðstefnunefnd vegna ráðstefnu
NJF 2004
Astþóra Kristinsdóttir
Sigífíður Inga Karlsdóttir
Margrét Hallgrimsson
Hildur Kristjánsdóttir
Hrefna Einarsdóttir
Sigríður Sía Jónsdóttir
Formaður fræðslunefhdar LMFÍ
Formaður LMFÍ
Rðalfundur LMFI 2002 haldinn að
Löngumýri í Skagafirði
Þetta árið var aðalfundur LMFÍ haldinn að
Löngumýri í Skagafirði. Allur undirbúningur
var í höndum norðurlandsdeildar LMFÍ og var
hann að sjálfsögðu með miklum myndarbrag.
Ljósmæður mættu margar að Löngumýri
föstudagskvöldið 10. maf og var þá tekið á
móti þeim með heitri súpu og brauði og síðan
var slegið á létta strengi áður en gengið var til
náða. Á laugardagsmorgni var síðan byrjað
strax eftir morgunverð og var byrjað á
fræðslufundi sem samanstóð af kynningu á
þjónusturýni sem unnið er að á FSA og miðar
m.a. að því að draga úr keisaraskurðum.
Ingibjörg Jónsdóttir yfirljósmóðir á FSA sá
um þá kynningu. Ólöf Ásta Ólafsdóttir lektor
fjallaði um ljósmæðrastörf á landsbuggðinni
árin 1954-2002 sem er hluti af doktorsverkefni
hennar. Rannveig Pálsdóttir læknir og Sigffíður
Inga Karlsdóttir lektor kynntu rannsókn, sem
þær unnu að, þar sem skoðaður var árangur af
notkun Fólinsýru fyrir og í byijun meðgöngu.
Þá komu nokkrar ljósmæður víðsvegar að af
landsbyggðinni og kynntu hvað er að gerast
hjá þeim og ræddu hvaða úrbætur þær vildu
sjá verða á barneignarþjónustunni á lands-
byggðinni. Fjörugar umræður urðu um þessi
mál. Eftir hádegisverðarhlé var gengið til
aðalfúndar. Auk hefðbundinnar dagskrár var
gengið til kosninga og var að þessu sinni kosinn
nýr formaður. Tvær ljósmæður gáfu kost á
sér til embættis formanns, þær Halla
Halldórsdóttir og Ólafía Margrét Guðmunds-
dóttir. Atkvæði féllu þannig að Halla hlaut
20 atkvæði og Ólafía 32.
Að loknum aðalfundarstörfum bauð
Heilbrigðisstofhunin á Sauðárkróki upp á léttar
veitingar. Glæsilegur kvöldverður var síðan
framboriim og tók síðan við skemmtidagskrá
sem Birgitta Pálsdóttir stjórnaði með styrkri
hendi. Þar söng Sigfús Pétursson, einn
Álftagerðisbræðra, nokkur lög auk þess sem
ljósmæður tóku lagið og sungu fram eftir
kvöldi.
Ekki var allt búið því á sunnudagsmorgunn
var haldið í óvissuferð og var góð þátttaka í
henni. Haldið var með rútu út í óvissuna.
Áfangastaðurinn reyndist vera sumarbústaður
Fjólu Þorleifsdóttur ljósmóður á Sauðárkróki,
en hún á sumarbústað í Sævarlandsvík,
yndislegri vík “úti á Skaga”. Þar voru veitingar
í boði Sauðárkróksbakarís. Eftir miðjan dag
á sunnudag kvöddu ljósmæður síðan
Löngumýri. Stjóm ljósmæðrafélagsins þakkar
norðurlandsdeild LMFÍ frábærar móttökur og
góðan undirbúning fundarins sem tókst vel í
alla staði. Sérstakleg þökkum við Birgittu
Pálsdóttur fyrir hennar frábæm skipulagningu
Vegna greina um fósturgreiningar í
1. tölublaði Ljósmæðrablaðsins 2002
Því miður láðist að geta þess að greinamar um
fósturgreiningar sem birtust í síðasta blaði eru áður
birtar í íylgiriti Læknablaðsins en við höfum fengið
góðfúslegt leyfi ritstjóra læknablaðsins til þessarar
birtingar sem við erum þakklátar fyrir. Við biðjumst
velvirðingar á þessari gleymsku.
Ritstjóri