Ljósmæðrablaðið - 15.12.2003, Blaðsíða 19
Leitað var að öllum tvíburafæðingum
samkvæmt fæðingartilkynningum í
fæðingarskráningu og fengin voru nöfn allra
kvenna i úrtakinu í spjaldskrá Kvennadeildar
Landspítala - háskólasjúkrahúss. Leitað var
eftir sjúkdómsgreiningarnúmerum yfir
fyrmefnd 10 ár. Meðtalin voru öll tilvik tvíbura,
bæði lifandi og andvana fædd börn, þar sem
fæðing átti sér stað (eftir 22 fúllgengnar vikur
og/eða börnin vega 500g eða meira). Fæðingar
voru alls 28.537 á þessu tímabili, þar af fæddust
632 tvíburar. Alls fundust 617 skýrslur af 632
tvíburafæðingum á LSH, eða 97,6%. í þessu
úrtaki var tíðni tvíburafæðinga 2,2% af öllum
fæðingum á íslandi en á árunum 1980-1997
er tíðnin i Bandaríkjunum 1,9% til 2,7% af
öllum fæðingum (Martin og Park, 1999).
Bakgrunnsupplýsingar
Hér á eftir verður kynntur lýðfræðilegur
bakgrunnur úrtaksins, upplýsingar um
meðgönguna og heilsufarsútkoma eftir
fæðinguna.
Lýðfræðilegar upplýsingar
Aldursdreifing tvíburamæðranna var nálægt
því að vera í normalkúrfu. Tvíburamæður á
aldrinum 17-26 ára voru 145 talsins (23,5%),
27-36 ára voru 405 (65,6%) og 37 ára og eldri
voru 67 (10,9%). Tafla 2 sýnir nánari
upplýsingar um hjúskaparstöðu, atvinnu, og
reykingar mæðranna.
Tafla 4. Líkamleg heilsufarsútkoma
tvíburamæðra
Blæðing (ml)
Meðaltal (ml)
< 500 ml
>500< 1000 ml
>1000ml
100 til 5000
650,3
54,0%(323)
33,9%(209)
9,8%(58)
Blóðrauða mæling g/l
Fyrir fæðingu 78 til 166
Meðaltal 119,5
<100 3,9%(24)
>100 96,1 %(588)
Blóðrauða mæling g/l
Eftir fæðingu 54 01158
Meðaltal 102
< 100 49,0%(244)
>100 51,0%(254)
Tafla 3. Upplýsingar um heilsufar á meðgöngu % tíðni Heilsufarsvandamál á meðgöngu
Engin 62,7% (387)
Meðgönguháþrýstingur (PIH) 19,1% (118)
Blæðing 1,8% (11)
Vaxtarmisræmi tvíburanna 8,8% (54)
Grindarverkir 3,2% (20)
Önnur veikindi 4,4% (27)
Meðgöngueitrun: 10,8% (67)
Alvarleg 1,6% (10)
Upplýsingar um meðgönguna
Frumbyrjur voru 252, eða 40,8%. Þtjúhundruð
sextíu og fimm konur, eða 59,2%, höfðu fætt
áður en athyglisvert er að 5 konur höfðu fætt
tvíbura áður. Tvöhundruð og ein kona (32,6%)
átti eitt barn fyrir, 113 konur (19,1 %) áttu tvö
börn og 56 konur (7,5%) áttu þrjú eða fleiri
börn fyrir.
Meðalmeðgöngulengd var 254,8 dagar (± 23d)
eða 36,4 vikur. Meðgöngulengdin var frá 154
dögum (22 vikur) til 287 dagar (41 vika).
Fullburða tvíburar (> 37v) voru í 58,7% tilfella
(362/617) og fyrirburar (< 37v) í 41,3% tilfella
(255/617).
Náttúruleg þungun var hjá 62,9% kvennanna
(n = 388/617), en tæknifrjóvgun hjá 32,3%
þeirra (n = 199/617). í 3,4% tilfella (n = 21/617)
var þungun tilkomin í kjölfar frjósemislylja
(Chlomiphene/Pergotine), en upplýsingar vantar
í 9 tilfellum.
Niðurstöður og umræða
í þessum kafla verða niðurstöður um
meðgönguna og heilsufarsútkomu mæðra og
barna kynntar, en einnig verður rætt um
niðurstöður er varða fæðingarhjálp tvíbura,
legu og aðkomu, tegundir fæðinga, tímann á
milli barna og tengsl við útkomu þeirra.
Heilsufar á meðgöngu
Upplýsingum um heilsufar á meðgögnu var
safnað, tatla 3.
Líkamleg heilsufarsútkoma
tvíburamæðra
Líkamleg heilsufarsútkoma var skoðuð út frá
blæðingu í fæðingu og einnig var athugað hver
blóðrauðamæling var fyrir og eftir fæðingu,
tafla 4.
Lýsing á líðan eftir fæðingu
Þegar skoðuð er skráning á líðan móður eftir
Ljósmæðrablaðið i q
Desember 2003 1