Ljósmæðrablaðið - 15.12.2003, Síða 21
Tafla 7. Fæðingarþyngd tvíburabarna
Tvíburi A Tvíburi B
Fæðingarþyngd (g) 520^1190 248^4175
Meðaltal (g) 2590 2560
Staðalfrávik 680 707
Þyngd flokkuð
<lOOOg 4,7%(29) 4,4%(27)
1001—1500g 3,4%(21) 5,9%(36)
1501—2000g 7,0%(43) 7,8%(48)
2001-2500g 22,3%( 137) 21,1 %(130)
2501-3000g 35,5%(218) 35,3%(217)
> 3001g 27,0%( 166) 25,5%( 157)
Alls 614 615
á fæðingarþyngd og útkomu barnanna.
Lega tvíbura og aðkoma í fæðingunni
Legu tvíbura í móðurkviði og aðkomu
barnanna í fæðingunni má meta eftir stöðu
þeirra. Stöðu barnanna var skipt í þrjá flokka
yið upphaf fæðingar. Höfuðstaða A-
barn/höfuðstaða B-barn var í 47,5% tilfella
(293/617); 2) Höfuðstaða A-barn/ekki
höfuðstaða hjá B-barni var í 29,2% tilfella
(180/617); 3) A-barn ekki í höfuðstöðu/allir
möguleikar í fósturstöðu hjá B-barni, voru í
22,0% tilfella (136/617) (staða barna var ekki
skráð í 1,3% tilfella (8/617), sjá mynd 1.
Lega og staða sem börnin velja sér fyrir
fæðinguna er svipuð víðast hvar í heiminum
(Chauhan og Roberts, 1996) en niðurstöður
lannsókna geta verið mismunandi eftir
úrtaksstærð.
Lega B-tvíbura eftir fæðingu A-tvíbura. í
hofuðstöðu voru 57,4% B-barna (349/617). í
sitjandi stöðu með fætur upp með búk voru
1,1% B-barna (189/617). í sitjandi fótstöðu
voru 5,3% B-bama (32/617) og í þverlegu voru
6,2/0 B-barna (38/617). Ekki var skráð staða
P.'^arns ' 1,5% tilfella (9/617), oftast þegar
ömin fæddust andvana, sjá mynd 2. Af þessu
sést að hlutfall höfuðstöðu hjá B börnum er
tiltölulega hátt miðað við óheppilegri stöður
fyrir fæðingu barnsins.
Tegund fæðinga og staða barna
Sjálfkrafa fæðing var hjá 53,2% A-bama (328).
Með sogklukku/töng fæddust 6,5% A-barna
(40). Bráðakeisaraskurður var í 23,7% tilfella
(146) og valkeisaraskurðir voru gerðir í 16,4%
tilvika (101). Framhjálp/framdráttur á sitjanda
vom 0,3% tilfella (2) á ámnum 1991 og 1992,
sjá mynd 3.
Mynd 2. Staða B-tvíbura eftir fœðingu A-barns
Mynd 3. Fœðingarhjálp við A-tvíbura
Ljósmæðrablaðið
Desember 2003