Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2004, Side 47
IJV Síðast en ekki sist
Ólafur Elíasson er á allra vitorði þessa
helgina. Ekki vita þó allir að hann opn-
ar líka sýningu í Hafnarfirði.
Ólafur Elíasson. Setur upp sýhingu iHafnarborg tileinkaða minningu föður sins, Hafnfirð-
ingsins Elíasar Hjörleifssonar. Er hér við verk sitt í Hafnarhúsinu. DV mynd Hari
Hafnfirðingar
eiga Olaf Elíassnn
„Ég held að það sé alveg
borðleggjandi að vér Hafn-
firðingar eigum Ólaf Elías-
son,“ segir Jón Sverrir
Proppé heimspekingur og
listfræðingur sposkur og
vísar til þeirrar umræðu um
hvort það sé hreinlega við ^
hæfi að við íslendingar
séum að slá eign okkar á Mynd eftir Elías.
Ólaf Elíasson.
En, sem sagt, hinn hafnfirski
listamaður, Ólafur Elíasson, sem
hefur gert garðinn frægan á heims-
vísu að undanförnu, opnar á
sunnudaginn minningarsýningu í
Hafnarborg í Hafnarfirði á verkum
föður síns. Hann hét Elías Hjörleifs-
son og einnig má á sýningunni
finna verk sem þeir feðgar unnu
saman en náðu aldrei að sýna með-
an Elías lifði. „Elías bjó í
Hafnarfirði þar til hann
fluttist til Danmerkur ásamt
konu sinni Ingibjörgu sem
er af gamalli Hafnfirskri ætt.
Föðuramma Ólafs var líka
hafnfirsk og var af þeirri ætt
sem í Hafnarfirði er kölluð
Kassahúsættin - kennd við
hús sem ekki er lengur til en
stóð neðan við hamarinn,"
segir Jón.
Ólafur hafðj frumkvæði að sýn-
ingunni og á veg og vanda að upp-
setningu hennar. Á heimasíðu
Hafnarborgar segir meðal annars
að sýnd verði verk sem Elías vann
eftir að hann flutti heim til Islands
1989 og „er myndefnið oft náttúra
landsins þó listamaðurinn taki sér
fullt frelsi til framsetningar."
AugLýsmgumfasteignagjöld
í Reykjavík áríð 2004
Álagningarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík 2004 verða sendir út næstu
daga sem og greiðsluseðlar fyrstu greiðslu. Hægt verður að greiða með
boögreiðslum, og fylgir umsóknareyðublað vegna þess. Tollstjórinn í
Reykjavík sér um innheimtu gjaldanna.
Fasteignagjöldin skiptast í fasteignaskatt, lóðarleigu, holræsagjald,
vatnsgjald og sorphirðugjald.
Framtalsnefnd úrskurðaf um breytingar á fasteignaskatti og holræsagjaldi
eftir yfirferð skattframtala elli- og örorkulífeyrisþega. Þarf því ekki að sækja
sérstaklega um lækkun eða niðurfellingu þessara gjalda. Þeir sem fengu
lækkun á fasteignaskatti og holræsagjaldi á liðnu ári, fá að óbreyttum
aðstæðum einnig lækkun á árinu 2004, aö teknu tilliti til tekju- og
eignaviðmiðunar.
Borgarráð hefur ákveðiö að tekjumörk vegna lækkunar fasteignaskatts og
holræsagjalds á árinu 2004 hækki um 8°/o á milli ára og veröi eftirfarandi
miðað við tekjur liðins árs:
100% lækkun:
Einstaklingar með tekjur allt aó
Hjón með tekjur allt að
80% lækkun:
Einstaklingar meó tekjur á bilinu
Hjón með tekjur á bilinu
50% Lækkun:
Einstaklingar með tekjur á bilinu
Hjón meó tekjur á bilinu
kr. 1.405.000-
kr. 1.955.000-
kr. 1.405.000- til kr. 1.610.000-
kr. 1.955.000- til kr. 2.190.000-
kr. 1.610.000- til kr. 1.845.000-
kr. 2.190.000- til kr. 2.600.000-
Vinnslu þessari verður lokið í september 2004 og verða þá allar breytingar
tilkynntar bréflega.
Fulltrúar framtalsnefndar eru til viðtals alla þriðjudaga milli kl. 16.00 og 17.00 í
Ráðhúsi Reykjavíkur, frá 6. apríl til og með 27. apríl n.k. Á sama tímabili verða
upplýsingar veittar í síma 896-4300, alla þriðjudaga milli kl. 10.00 og 12.00.
Umhverfis- og heilbrigðisstofa Reykjavíkur, Skúlagötu 19, veitir upplýsingar
varöandi álagningu og breytingar á sorphirðugjaldi í sima 563-2700, og í
bréfasíma 563-2710.
Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, veitir upplýsingar sem snerta álagningu og
breytingar á vatnsgjaldi í síma 516-6000, og bréfasíma 516-6609.
Fjármáladeild, Ráðhúsi Reykjavíkur, veitir upplýsingar um álagningu annarra
fasteignagjalda og breytingar á þeim í síma 563-2062, og bréfasíma 563-2033.
Gjalddagar ofangreindra gjalda umfram kr. 20.000- fyrir árið 2004 eru:
1. febrúar, 1. mars, 1. apríl, 1. maí, 1. júní og 1. ágúst. Gjalddagi gjalda undir
kr. 20.000-, og gjalda þeirra gjaldenda er völdu eingreiðslu fasteignagjaldanna
í maí, er 1. maí.
Jafnframt er hægt að leita upplýsinga um ofangreind atriði á heimasíðu
Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is
Reykjavík, 18. janúar 2004
Borgarstjórinn i Reykjavík
AUKIN OKURETTINDI
Meiraprófið breytist!
Nú liggur fyrir ákvörðun um miklar breytingar á meiraprófinu sem gerir það bæði
erfiðara og dýrara. Búast má við a.m.k. 60-80% hækkun á verði en reiknað er
meö að breytingin taki gildi nú í sumar. Notaðu tækifærið og taktu meiraprófið
áður en breytingin tekur gildi því nú fer hver að verða síðastur. Hafðu samband
við okkur ef þú vilt fá nánari upplýsingar um þessar breytingar.
Taktu gainla meiraprófið á gamSa verðinu!
Námskeib á nœstunni
20. janúar- 20. febrúar
25. febrúar-26. mars
30. mars- 30. apríl
Skrábu þig núna!
Símar 581 1919, 892 4124 og 898 3810
ÖKUSKÓU
Sími 581 1919
LEIGUBIFREI
n U K I n ÖHURÉTTinDI
UÖRUBIEREI