Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2004, Qupperneq 48
Fréttaskot Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða
er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt. 550 5090
SKAFTAHLÍÐ24 105 REYKJAVÍK[STOFNAÐ 1910 ] SÍMI5S0S000
Yfrgeflð hreiðun öryggislns
Sigurviss til nóts viö óvissuna
• Guðbergur Bergsson rithöf-
undur var önnum kafinn í
Tvfadrid í allan gærdag því þá
sátu um hann
blaðamenn frá öll-
um helstu blöðum
á Spáni og tóku við
hann viðtöl vegna
útkomu bókarinn-
ar Faðir móðir og
dulmagn bernsk-
unnar. Á spænsku heitir hún
La magia de la ninez-, Töfrar
æskunnar. Hún er gefin út með
viðhöfn, sem dæma má af því
að Guðbergur hefur bækistöðv-
ar á Hotel Wellington sem þyk-
ir með fínni hótelum og frægt
fyrir að þar gista gjarnan
nautabanar. Gagnrýnendur
^iafa þegar sýnt bókinni áhuga
og t.d. vildi einn virtasti gagn-
rýnandi Spánar fá bókina á
undan öllum öðrum. Hann
skrifar fyrir eitt helsta blað
landsins, La Vanguardia.
KápuLa magia prýðir mál-
verk eftir Gunnlaug Scheving.
I'm the greatest!
Er yfirleitt lítið gefinn fyrir vit-
leysu. Nema í sjálfum mér þegar
þannig stendur á. Varð þó dáh'tið
hrifinn af ráðstefnu sem halda á í
Háskólabíói í næsta mánuði og
fjallar um hvers vegna sumir menn
eru betri en aðrir. Ekki dró úr áhug-
anum þegar ég frétti að aðgöngu-
miðinn kostaði tæpar 30 þúsund
krónur. Þarna er á ferð blökkumað-
urinn Dennis Kimbro en hann
skrifaði bókina What Makes The
Great Great.
Er sagt að Kimbro hafi mikinn
sannfæringakraft og breyti lífi fólks
með orðum einum. En hann veit
hvað hann syngur. Byggir kenning-
ar sýnar á rannsóknum Napoleon
Hill sem iðjuhöldurinn Andrew
Carnegie sendi út af örkinni til að
kanna hvers vegna sumum farnað-
ist betur en öðrum í viðskiptum.
Á bakinu með Eiríki Jónssyni
Fékk herra Hill persónulegan að-
gang að stórmennum samtímans
eins og Thomas A. Edison, John D.
Rockefeller, Henry Ford og Alex-
ander Graham Bell. Þeir höfðu allir
meikað það og Carnegie vildi fá að
vita hvað þeir ættu sameiginlegt.
Herra Hill rannsakaði málið í 20 ár
og komst að niðurstöðu.
Niðurstaðan var helst þessi: Þeir
sem ná langt í lífinu hafa tilhneig-
ingu til að yfirgefa hreiður öryggis-
ins og stíga sigurvissir til móts við
óvissuna. Allt of margir sætti sig við
Lincoln Ford
allt of lítið í lífinu og bessta öryggið
sé í raun það að eltast við drauma
sína.
Þetta þótti mér athyglisvert. Ekki
þótti mérm síður merkilegt að
heyra dæmisögu herra Hill um
Abraham Lincoln. En hún er í stut-
tu máli þessi: Lincoln varð gjald-
þrota 1831. Féll í þingkosningum
'32. varð aftur gjaldþota '34.
Rockefeller Edison
Misssti ástina sína '35. Fékk tauga-
áfall '36. Var aftur hafnað í kosn-
ingum '38, '43, '46, '48 og 1855.
Tapaði varaforsetaslag '56, þing-
kosningum '58 en var svo kjörinn
forseti Bandaríkjanna 1860.
Allir vita framhaldið. Er að hugsa
um að selja þvottavélina mína til að
eiga fyrir aðgöngumiðanum þegar
Kimbro mætir í Háskólabíó.
Verð: 2.000 fcr.
Miðasala hjá Olís f Garðabæ og f
Stjörnuheimilinu, sími 5651940
Netfang: ragnar@umfstjarnan.is