Akranes - 01.10.1952, Blaðsíða 3
AKRANES
Slippfélagið í Reykjavík stofnað.
Fyrsta bókun í fundargerðabók Slipp-
félagsins í Reykjavík hljóðar svo:
„Arið 1901 hinn 28. desember mánað-
ar kom til umræðu á fundi útgjörðar-
mannafélagsins, eins og oft áður var bú-
ið að hreyfa, að nauðsynlegt væri fyrir
skipaeigendur að eignast „Slipp,“ til þess
að geta dregið skip á land, þegar gjöra
þyrfti við þau. Eftir nokkrar umræður
bar formaður útgjörðarmannafélagsins,
Tryggvi Gunnarsson, upp þá tillögu, að
félag skyldi stofnað til að koma upp setn-
ingaráhöldum, og var það samþykkt í
einu hljóði, því næst lofuðu þessir menn
„aktíum“ eður fjárframlagi til félagsþarfa:
Tryggvi Gunnarsson ............ goo kr.
Jes Zimsen .................... 100 —
Björn Guðmundsson ............. 400 —
Ásgeir Sigurðsson ............ 1000 —
Jóhannes Jósepsson............. 300 —
I5orsteinn Þorsteinsson ....... 300 —
Helgi Helgason................. 600 —
Brynjólfur Bjarnason .......... 200 —
Th. Thorsteinsson ............. 700 —
Pétur Sigurðsson .............. 300 —
Runólfur Ölafsson ............. 200 —
Sigurður Jónsson............... 300 —
Jón Guðmundsson, Bakka .... 100 —
Ingjaldur Sigurðsson........... 100 —
Þórður Jónsson, Ráðag.......... 100 —
Samtals kr. 5,200 —
Þá var ákveðið, að félagið skyldi vera
hlutafélag og hver hlutur 100 kr. Var þá
umræðum frestað og tekið fyrir annað
mál til umræðu.
Tr. Gunnarsson.“
II. grein Ól. B. Björnssonar.
Allir þeir, sem nokkuð þekkja til sögu
Reykjavíkur og útvegsins hin síðari ár,
munu kannast við þessi nöfn, svo tengd
sem þau voru honum. Af þessum mönn-
um eru nú aðeins tveir á lífi, Þorsteinn
Þorsteinsson, skipstjóri í Þórshamri, og
Sigurður Jónsson, skipstjóri í Görðunum.
Enn kom málið til umræðu á fundi
tJtgerðarmannafélagsins hinn 25. janúar
1902. Þar er aðallega rætt um, hvort kaupa
eigi frá útlöndum tilbúinn „slipp,“ eða
efni í hann, og svo smíðað hér heima.
„Dálítið sýnishorn var framlagt, sem smíð-
að var eftir „slipp“ á Önundarfirði, en
það var eigi álitið fullnægjandi, og var
því samþ. með öllum atkv. að senda kaup-
mann Helga Helgason — smið, — næsta
dag með „Lauru“ til Vestfjarða til að
skoða þá „slippa,“ sem þar voru.“
Við þessar umræður og ákvarðanir er
ýmislegt einkennilegt. Fyrst það, að
Tryggvi leggur fram „sýnishom af slipp.“
Að horft er svona rikt á Vestfirði, bendir
til að þeir hafi haldið að þar væri að
XI. árg. ★ Okt.—des. 1952. * 10.—12. tbl.
Útgefandi, ritstjóri og ábyrg'ðarmaSur:
ÓLAFUR B. BJÖRNSSON
Afgreiðsla: MiSteig 2, Akranesi
PBENTAÐ 1 PRENTVERKI AKRANESS H. F.
finna fullkomna fyrirmynd, eða það sem
mætti átta sig eftir. Þó skilst mér að þar
hafi verið um að ræða tæki, sem voru
ekkert, eða lítið betri en þau tæki hér
í nágrenninu, sem hér hefur verið lýst.
Hvað sem þessu líður, bendir viðbragðs-
flýtir þeirra um sendiförina til, áð þeir
vilji flýta málinu sem mest, og að þeir
vilji kynna sér málið til hlitar.
Á fundi útgerðarmannafélagsins hinn
11. febrúar, „skýrir Helgi Helgason frá
för sinni vestur, og lagði fram lista yfir
það, sem hann áliti nauðsynlegt að panta
til „Slippen“ frá útlöndum, og var hann
samþykktur, og formanni félagsins falið
að panta.“
Stofnfundur „Slippfélagsins við Faxa-
flóa“ er svo haldinn hinn 15 marz 1902.
(I fyrstu fundargerðinni heitir félagið
svo, en breytist fljótlega og fær nafnið,
sem það heldur enn i dag). Fundarstjóri
var Tryggvi Gunnarsson, bankastjóri.
„Skýrði hann frá þvi, að foringinn á björg-
unarskipinu norska, sem lægi á Reykja-
víkurhöfn, hefði átt tal við sig um „Slipp-
rnálið." Hann hefði gefið ýmsar nýjar
upplýsingar um „slippa i Noregi, og boð-
izt til að útvega mann frá Arendal, sem
væri æfður „Slippsmiður,“ til þess að
smíða „Slippen“ hér, og var samþ. með
öllum atkvæðum að taka því boði. Á
þessum sama fundi var rætt um, hvort
taka ætti landssjóðslán til þess að stand-
ast kostnaðinn við „Slippbygginguna.“
Þá voru 3 menn kosnir í stjóm félags-
ins: Tryggvi Gunnarsson, með 12 atkv.
Ásgeir Sigurðsson, kaupm., með 8 atkv.
og Walg. O. Breiðfjörð, kaupm. með 7
atkv. (sem þá hefur verið orðinn félagi,
þótt ekki hafi hann gerst það á fyrsta
fundinum). Varamaður í stjórn var kos-
inn Jóhannes Jósepsson, trésmiður, með
6 atkvæðum. Að lokum var stjóminni
falið að semja frumvarp til laga fyrir fé-
lagið, og skyldi það lagt fyrir fund.
Næstu framkvæmdir.
Á fundi 29. marz tilkynnir Tryggvi, að
timburskip sé á leiðinni frá Halmstað i
Sviþjóð, með efni til fyrirtækisins í slipp-
inn, og þurfi þvi að útvega peninga til
ÁKRANES
111