Akranes - 01.10.1952, Side 14

Akranes - 01.10.1952, Side 14
ið leit að lausn margra vandamála, án þess að taka tillit til þess, sem aðrir hafa sagt og gert, eftir því sem slík aðferð er á mannlegu valdi. Meginmunurinn á eðl- isfræðilegum og andlegum sannleika er sá, að eðlisfræðilegan sannleika þarf ekki að uppgötva nema einu sinni, úr því get- ur hann gengið í arf frá einni kynslóð til annarrar, en þessu er allt öðruvísi far- ið í andans ríki, þar gengur ekki sann- leikurinn í erfðir á sama hátt og eðlis- fræðilegar uppgötvanir, heldur verður hver kynslóð og hver einstaklingur að finna sannleikann á nýjan leik ef hann á að vera nokkurs virði fyrir líf þeirra. Albert Schweitzer las hvern heimspek- inginn og trúmálahöfundinn eftir annan. Honum voru Vedabækumar jafnljósar og biblían, vissi jafngóð skil á Platon og Kant. Hann sökkti sér niður í sögu og bókmennt- ir og sterkur þáttur í sannleiksleit hans var hljómlistanámið. Vinnuþrek hans var ótrúlegt, aðra stimdina nam hann heimspeki og hljómlist i París, hina stund- ina lagði hann stund á guðfræði hjá þekkt- asta manni mótmælenda í Þýskalandi Ad- olf Hamach kennara við Berlínarháskóla. Samtímis skrifaði hann bókina um Johan Sebastian Bach, og það leikur ekki á tveim tungum, að frægð sú, sem Bach hefur hlot- ið, er að miklu leyti Albert Schweitzer að þakka, hann krýndi þetta mikla tón- skáld ódauðlegum heiðri með bók sinni um hann og skýringum á orgelverkum Bachs. Fáir núlifandi menn, hafa verið eins vel að sér í orgelbyggingu eins og Schweitzer, því ber bók hans um orgel- byggingu greinileg vitni. Þá er Albert Schweitzer hafði lokið embættisprófi i guðfræði og skömmu síðar doktorsritgerð bæði í guðfræði og heim- speki, varð hann prestur í Strassburg og samtímis prófessor við háskólann. Þar skrifaði hann bókina um Jesú, en sú bók olli þeim róttæku vonbrigðinn og setti ugg í þá, sem voru trúaðir á gamaldags- vísu. Albert áfellis kirkjuna fyrir það að hún hefur alltaf skotið sér undan því að taka tillit til nýjustu sögurannsókna en virðir niðurstöður þeirra að vettugi. Þar eð eðli andans er sannleikur þýðir það þegar öllu er á botninn hvolft, að sérhver sannleikur er ávinningin- þótt þeim frómu þyki harrn undarlegur og lítt skiljanleg- m, eigi að síður þroskar hann og styrkir allt andlegt líf. En Pascal segir: „Sannleik- ur án kærleika er ekki guð heldur aðeins skurðgoð, sem við hvorki megum elska né tilbiðja,“ og Grundtvig segir sömu hugs- un með þessum orðinn: „Ljós án hita er Helvítis kvalir.“ Maðurinn á að leita bæði um himinn og jörð, það sem hann öðlast er nokkrir sannleiksmolar eins og perlur á bandi, en aldrei sá vísdómur, sem felst í fullum sannleika. Allt þetta varð Schwet- zer að viðurkenna og þar eð eymd og þján- ingar mannanna sóttu mjög á hann jókst löngun hans til þess að framkvæma eitt- hvað af hugsjónum sínum með mannúðar- starfi. Hann segir: „Allt i þessum heimi verður að greiða. Þeir, sem hafa notið ham- ingjuríkrar bernsku verða að taka á sig skyldur gagnvart þeim, sem koma frá slæmum heimilum. Þeir, sem heilbrigðir eru og vinnufærir hafa skyldur gagnvart þeim sjúku, þeir gáfuðu og vel menntuðu eiga að þjóna þeim vitgrönnu á vissan hátt. Þeir, sem glaðir eru og liamingju- samir standa í skuld við þá, sem lifa í skugga. öllum að óvörum tilkynnti hann for- eldrum sínum eitt sinn þegar hann dvaldi í París, að hann hefði ákveðið að fara til Afríku sem trúboðslæknir, leið hans átti að liggja til Kongo. Undrun þeirra varð að vonum mikil. Að maður með eins glæsi- lega framtíðarmöguleika og hann skyldi láta sér detta þetta í hug. Hann ætlaði að nema staðar á vísindabrautinni og flytja út í frumskógana, slíkt háttalag skyldu þau alls ekki. Margir hafa reynt að skýra þessa óvæntu byltingu i lífi Schweitzers og þar eð enga skýringu hefur verið að finna í starfi hans hafa menn gizkað á sálræna baráttu. Sjálfur minnist hann ekki á neitt slíkt, segir aðeins, að þessi hugsun hafi lengi verið að þróast i huga hans, en sú ábyrgðartilfinning, sem hann hafði gagn- vart eymd og volæði heimsins hafði orðið þess valdandi, að hann gekk algerlega í þjónustu mannkærleikans. Hvað sem öllu þessu líður vitum við ósköp vel, að mestu afrek manna eru alltaf ávextir harðrar sálrænnar baráttu og þjáninga. Hetjur krappra kjara og vætlandi vonbrigðasára eru miklu fleiri en við höfum nokkra hugmynd rnn. Þrjátíu ára að aldri fór nú Albert Schweitzer að lesa læknisfræði, en sam- tímis vann hann sem prestur, háskólakenn- ari og að hljómlist. 1 hjáverkum skrifaði hann á þeim árum bókina um Pál postula. Að sex árum liðnum lauk hann prófi í læknisfræði og eigi alllöngu síðar varði hann doktorsritgerð í sömu grein. Að öllu þessu loknu fór hann að týgja sig til ferð- ar. Haim átti að vinna í þjónustu fransks trúboðsfélags, en þessu félagi var um og ó að láta hann prédika, þar eð það var á allra vitorði, að hann var ekki rétttrúað- ur, þótt enginn efaðist um, að hann myndi vinna vel í þágu mannúðarmála. Engan þarf að undra á því, að eins frjáls og mik- ill andi, sem hafði drukkið í sig næringu úr ótal mismunandi þekkingarlindum ætti erftt með að fallast á ýmsar erfðakenn- ingar kirkjunnar. Loks varð það að sam- komulagi, að hann skuldbatt sig til þess að prédika ekki. Á föstudaginn langa 1913 kvaddi hann og húsfreyja hans, sem er hjúkrunarkona, ættingja og vini. Hann hafði meðferðis áhöld í lítið sjúkrahús og lyfjabúð og þar að auki konsertslaghörpu, sem Bachfélagið hafði gefið honum. t>eg- ar hann kom með alla þessa kassa til Afríku héldu tollþjónarnir, að hann væri umboðssali og kröfðust þess, að hann skrif- aði nafn verzlunarfélagsins, sem liefði sent hann. Skýringar Schweitzers vildu þeir ekki fallast svo hann lét þá skrifa, að hann væri sendur af Johan Sebastian Bach & Co. Oft hefur verið um það rætt hversvegna Albert hafi gert Afríku að athafnasvæði sínu. Voru ekki nóg verkefni í Evrópu? Hann svarar þannig: Hvergi voru hjálpar- ópin eins óskapleg og þar. Hvergi áttu hvítu mennirnir eins hroðalegar skuldir að greiða og þar. Hvergi úr eins miklum misrétti að bæta. Kristnu, hvítu þjóðirn- ar tóku landið og sölsuðu undir sig nátt- úruauðæfi þess. Þeir gerðu ibúana að þræl- um og seldu þá í milljónatali í nafnlausa eymd og niðurlægingu. Þeir höfðu kennt íbúunum að neyta áfengis, sem er mesta bölvun Afríkuþjóðanna. Hvítu mennirnir fluttu með sér sjúkdóma, sem komu Af- ríkubúum algerlega í opna skjöldu. Ágirndin hefur ráðið gerðum hvítu mann- anna svo þeir hafa ekki sinnt þeim skyld- um, sem á þeim hvila gagnvart þjóðum, er standa á lægra menningarstigi. Albert Schweitzer segir að níðingsverk hvítu mannanna séu svo óttaleg, að ef þeim yrði safnað saman í eina bók myndi enginn endast til að lesa hana til enda. Það er því ekki að ófyrirsynju, að Livingstone kallar Afríku „blæðandi heimssár." Löng- unin til þess að bæta fyrir eitthvað af þvi, sem hvítu mennirnir höfðu illa gert, olli miklu um það að Schweitzer fór til Afriku. Næst hittum við hann inni í Miðafríku við Kongofljótið, þar sem hann á í höggi við óteljandi tálmanir og örðugleika, sem flestir hefðu gefist upp við að sigrast á. Hitinn er óþolandi, hérumbil 30 stig allt árið og þetta raka óheilnæma loft hefur svo lamandi áhrif, að fæstir hvítir menn þola það lengur en tvö ár í senn. Hér er náttúran allt, maðurinn ekkert. Rán- dýr, slöngur og eitruð skorkvikindi eru á hverju strái, þeir innfæddu, sem kveðja verður til aðstoðar eru latir, óáreiðanlegir og þjófgefnir. Þrátt fyrir þetta allt hefur hreysti Schweitzers, þolgæði og langlund- argeð aldrei bugast. Hugsjónir hans og mannkærleikur hafa ekki haggast né geng- ið úr sér við þreytandi störf inni í frum- skógunum. Óþreytandi hefur hann barizt við erfiðustu náttúruskilyrði, sem hægt er að bjóða Evrópubúa og við ill öfl, sem enginn kemst hjá að komast í kynni við i Afriku. Bækumar, sem hann hefur skrif- að bera vitni um, að andríki hans hefur ekki dvínað, þeirra á meðal er bókin um öll heimsins trúarbrögð og um hnignun og endurfæðingu menningarinnar, þessar bækur eru fullar af djúphyggju. 122 AKRANES

x

Akranes

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.