Akranes - 01.10.1952, Side 24

Akranes - 01.10.1952, Side 24
ólafur B. Bjömsson: Þœttir úr sögu Akraness V. 39. HVERSII AKRANES BYGGÐIST 4. kafli. — 1870—1900. — Byggingar batna. Viðbætur við Marbakka o.f 1. 1 sambandi við Marbakka, á bls. 95 í siðasta blaði, er þess getið, að 4. barn Guð- mundar og Þórnýjar á Marbakka hafi heit- ið Stefán, og dáið uppkominn. Þetta er ekki rétt, sá drengur, sem þar er átt við hét Guðbjami, og var um tvítugt er hann dó. Þau munu og hafa átt dóttur, sem Guð- ný hét og dó ung. Hins vegar er ekki getið þarna yngsta bams þeirra hjóna, er Stfán heitir. Hann ó heima á Framnesveg 55 i Reykjavík og er kvæntur Soffíu Sigurðardóttur bónda í Akrakoti Sigurðssonar. Þeirra böm: 1. Guðbjartur, gjaldkeri hjá tollstjóranum í Reykjavík, kvæntur Svöfu Amórsdótt- ur Guðmundssonar, skrifsofustjóra hjá Fiskifélaginu. Þeirra böm: Amór, Ste- fán, Hulda og Einar. 2. Þómý Sigríður, gift Magnúsi Zakarí- assyni frá Bolungarvík. Þeirra böm: Soffía og Stefán. 3. Aðalsteinn Svafar, sem nú er í siglingu um heimshöfin, var m. a. nýlega í Ástra- líu. Stefán Guðmundsson frá Marbakka er f. 23. nóv. 1894, fór fyrst á skútu 13 ára gamall, en var svo síðar lengi á togurum. Stefán fluttist frá Akranesi 1914, en kvænt- ist í Reykjavík 6. jan. 1917 og hefur búið þar siðan. Stefán var afburðaduglegur sjó- maður, góður drengur og vinnusamur og langaði til að bjarga sér. Hann varð fyrir þeirri þungu raun að fá slag fyrir 7 árum, en lengst af þessum tima hefur hann ekk- ert getað unnið. Fyrir aðeins 5 vikum sið- an fékk hann svo annað slag, en er enn að rétta við þótt ótrúlegt megi virðast. Hann er að byrja að klæðast, en auðvitað verður hann ekki til neinnar áreynslu héðan af. Hann er þó velkominn þangað, sem hann hefur unnið siðan hann fór í land, vegna sérstakrar dyggðar og trúmennsku. Á sama stað var aðeins minnst á Guðjón Þórarinsson, er Marbakka hjón ólu upp. Við það get ég nú bætt þessum upplýsing- um: Guðjón þessi er sonur Þórarins skó- smiðs í Reykjavik', en faðir Guðjóns og móð- ir, vom bæði mállaus. Guðjón Knútsson, sem margir munu kannast við, kom svo drengnum fyrir þriggja vikna gömlum hjá þessum góðu hjónum, sem ólu hann upp sem sitt eigið bam. Guðjón hefur lengst af stundað sjó og er dugnaðarmaður. Hann er kvæntur Sigur- laugu Guðmundsdóttur, og eiga þau stórt hús í Reykjavik. Þeirra synir: Jónas, Hauk- ur og Sigurjón. 1 sambandi við Garðbæ i siðasta blaði skal þessa getið, að siðari kona Jóns Bjama- sonar er Þómnn Jóhannesdóttir, ættuð af Snæfellsnesi. Hún var áður gift manni þeim, er Bjami hét Bogason. Bjuggu þau allan sinn búskap að Neðra-Hóli í Staðarsveit. Þau áttu þessi böm: 1. Boga, lögregluþjón í Reykjavik, kvænt- ur Erlu Jónmundardóttur. Þau eiga einn son, er heitir Bjami Jóhann. 2. Sveinbjöm, einnig lögregluþjónn í Reykjavik, kvæntur Áslaugu Sigurðar- dóttur frá Hrísdal í Miklholtshreppi. Dóttir þeirra er Þórunn Hulda. 3. Páll Steinar, heima i Garðbæ. 1 sambandi við Gneistavelli í síðasta blaði á bls. 96, er talin vom böm Áma Helgasonar, hafði fallið niður nafn Helga sonar hans. Hann á heima í VVinnipeg- 86. Skuld I. Þar byggði fyrst.ur litinn torfbæ með timburgafli Sveinbjörn Þorvarðarson Öl- afssonar smiðs Péturssonar frá Kalastöð- um, en móðir Sveinbjarnar, og kona Þor- varðar, var Margrét Sveinbjamardóttir, prests Sveinbjarnarsonar á Staðahrauni á Mýrum. Þennan bæ byggði Þorvarður 1885. Kona Sveinbjarnar Þorvarðarsonar var Margrét, f. 9. nóv. 1862, Kristjánsdóttir, Símonarsonar frá Akri, og konu hans Þóru Jónsdóttur frá Kópsvatni. Þau giftust 3. júní 1882. Þau Sveinbjöm og Margrét bjuggu ekki lengi í Skuld, en voru hér viðar, m. a. á Sýruparti, en eftir að Margrét missti mann sinn var hún nokkur ár í Teiga- koti. Sveinbjörn var sérstaklega glæsileg- ur maður og ágætur sjómaður. Gamall Akumesingur, sem um skeið var skips- félagi Sveinbjarnar, sagði mér, að hann teldi Sveinbjörn annan fallegasta mann, er hann hafi séð. Vínið mun hafa gert Sveinbirni mikinn óleik, eins og mörgum þá og síðar. Sveinbjörn varð ekki gam- all maður, því að hann drukknaði hinn 9. desember 1891 á leið héðan til Reykja- víkur á opnu skipi, ásamt systur sinni, Rannveigu og g öðmm mönnum, en hinn ungi, vaski sveinn, Jón Ámason frá Heima- skaga, sem einnig var með í þessari för, Margrét Kristjánsdóttir. var sá eini, sem komst lifs. af, en hann komst á kjöl, og bjargaðist eftir mikið volk í hörkuveðri og frosti. Þau Sveinbjörn og Margrét áttu 5 börn, sem flest voru kornung, er maður hennar féll frá, en hann mun þá hafa verið aðeins 34 ára, fæddur 1857. Margrét varð því að taka á því, sem hún átti til og hafði nóg um að hugsa. Þau voru bláfátæk, og fyrirfarandi oft hart í ári. Margrét var óvenjulega góð kona og mikil móðir. Hún rækti ekki aðeins móðurskyldurnar með hinni mestu prýði, heldur gat hún líka oft bætt úr sárustu neyð annarra, og auk þess veitt mörgum styrk og uppörvun í i erfiðum kringumstæðum. Margrét var greind kona. Hún tók alla ævi mikinn og virkan þátt i bindindis- starfinu, bæði hér á Akranesi og i Reykja- vik, eftir að hún fluttist þangað. Hún ver ein af þeim fyrstu hér á Akranesi, sem tók þátt í leikstarfseminni, og var þar sem annars staðar traust og heilsteypt. Margrét fluttist héðan til Reykjavik- ur árið 1903 ásamt börnum sínum og bjó þar síðan til æviloka. Elztur bamanna var Simon, og mæddi mest á honum að styðja móður sina í hennar örðuga móðurhlutverki. Gerði hann það og alla stund með mikilli prýði, því að þau skildu aldrei. Margrét var að allra dómi, er henni kynntust, óvenjuleg kona að manndómi og myndarskap og kærleiks- rík. Get ég ekki stillt mig um að birta hér nokkur minningarorð, er Sigríður Helgadóttir, sem lengi var hér i Lykkju og síðast á Elliheimilinu, skrifaði, er hún frétti andlát Margrétar. Af því má glögg- lega sjá hugarfar Margrétar og hjálpsemi og gjafmildi, þótt ekki væri ofmikið í eigin búi. Þessi kveðjuorð Sigríðar Helga- dóttur hljóða svo: örfá minningarord um Margréti Krist- jánsdóttur, Vesturgötu 34 í Reykjavík. Það er nú orðið alvanalegt að heyra að trúin sé einskisnýt í lífi mannanna, og jafn- vel verri en það. Ég hefi oft fundið það á langri og viðburðaríkri ævi, hve þetta er • alrangt, og fjarri öllum sanni. Kemur það og heim við reynslu fjölda fólks á öllum tímum, og enn þann dag í dag. Líf minn- t ar ágætu vinkonu, Margrétar Kristjáns- dóttur, er fullgild sönnun fyrir því, hverju trúin getur orkað í lífi vor mannanna, til að hughreysta og skapa þrautseigju, sem gerir það mögulegt að komast yfir þá örð- ugleika, sem frá sjónarmiði fjölda manna er lítt, eða ekki hugsanlegt að kljúfa. Og' þá er það vitað, að trúin er aðal aflgjafi og vermireitur hvers konar kærleiksstarf- semi, hjá einstaklingi, eða fjölda manns. Við Margrét vorum fermdar saman, og því æskuvinkonur. Var vinátta hennar þá strax svo traust, og ætið síðan, að hún dvínaði aldrei frá hennar hálfu, þrátt 132 AKRANES

x

Akranes

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.