Akranes - 01.10.1952, Side 28
AXRA7l£SS
AT>Ól£X
Hjúkrunarvörur.
Hreinlætisvörur, og
alls konar
feguröarvörur.
GLEÐILEG JÓL.
Þökk fyrir viðskiptin.
FRÍÐA PROPPÉ.
Óska viðskiptavinum
gleðilegra jóla, heilla
og hamingju á komandi
ári, um leið og ég þakka
viðskiptin á hinu liðna.
Axel
Sveinbjörnsson
ANNÁLL AKPANESS
Gjafir og greiðslur til blaðsins,
sem það þakkar innilega:
Grimur Magnússon, bilstj., Görðum 100 kr.
Þórður Pálmason kaupfélagsstj. Borgarnesi 100
kr. Axel Kristjánsson, forstj. Hafnarfirði 200 kr.
Friðrik Þórðarson kaupm. Borgarnesi 200 kr.
Einar Ólafsson, kaupm. Akranesi 100 kr. sr. Sig-
urjón Guðjónsson Saurbæ 200 kr. sr. Leó Júliusson
Borg 100 kr. Guðmundur Ólafsson bóndi á Sáms-
stöðum 130 kr. sr. Jón Guðnason skjalavörður
100 kr. Bjarni Jónsson bóndi Gerði 100 kr. Sr.
Bergur Bjömsson Stafholti 100 kr. Þorvaldur Jóns-
son bóndi Hjarðarholti 100 kr. Sigurður Sumar-
liðason skipstjóri Akureyri 100 kr. Lúðvik Krist-
jénsson ritstjóri 100 kr. Guðmundur Einarsson
Stokkseyri 100 kr. Halldór Þorsteinsson útgm.
Gerðum 100 kr. Kristjón Kristjónsson fulltrúi
Rvik. 100 kr. Sigurður Þorleifsson póst- og sima-
stjóri Grindavik 100 kr. A. G. Rvík. 200 kr.
Hjónabönd:
27. sept ungfrú Sigrún Barðadóttir frá Isafirði
og Jón Óiafsson stýrim. i Mýrarhúsum.
8. nóv. ungfrú Jónina Ámadóttir Vesturgötu
70 og Óðinn Gunnar Þórarinsson Jaðarsbraut 7.
22. nóv. ungfrú Emilia Jónsdóttir (Árnasonar)
og Péur Ásbjöm Georgsson Melstað.
22. nóv. ungfrú Friðný Guðjónsdóttir Ármann
og Bjarni Aðalsteinsson (Ámasonar), málari,
Sunnubraut 15.
22. nóv. ungfrú Henny Þórðardóttir og Kristó-
fer Ásgrímsson (Eylífssonar), Suðurgötu 102.
Sr. Jón M. Guðjónsson gaf saman.
Dánardægur:
17. sept s. 1. andaðist Jón bóndi Simonarson
á Stóru-Fellsöxl, 72 ára að aldri, f. 23. des. 1879
á Geitabergi í Svinadal. Ekkja hans er Ólöf Elias-
dóttir frá Melkoti í Stafholtstungum.
24. sept. andaðist hér í sjúkrahúsinu Guðmund-
ur Norðfjörð skósmiður. Guðmundur hefur átt
hér heima um allmörg ár. Hann var fæddur ig.
nóv. 1874 í Steinsholti é Vatnsleysuströnd.
1. október andaðist í sjúkrahúsinu Helga Niels-
dóttir, Vesturgötu 24 nær 84 ára gömul, f. 11.
des. 1868.
26. okt. andaðist Sigurbjöm Jónsson Blómstur-
völlum, f. 29/8—i86g á Lundi í Þverárhlíð.
Hann flytur á Akranes 1906.
29. okt. andaðist öm Þorbergsson, Heiðarbraut
18 f. 4. des. 1944, sonur Þorbergs Jónssonar og
konu hans Jónu Guðmundu Jónsdóttur.
Skátafélögin hér sameinast.
Lítið líf mun hafa verið i þessum félagsskap
hér um hríð, en nú hefur verið gengið allrösk-
lega til verks um að sameina bæði kven- og
drengjaskáta-félögin. Þó þannig að í framkvæmd-
inni verður engin breyting á flokkaskipun og
starfsaðferðum hinna ýmsu flokka. Á næsta fundi
eftir að sameiningin átt sér sað gengu nokkrir
tugir ungmenna í félagið. Vonandi færist nýtt
líf í þennan ágæta félagsskap, sem vill vinnp
gott verk í mannbótaátt. Em allir hvattir til
þess að ganga i félagið og styðja það í sinu góða
starfi. Aðalskátaforingi verður Hans Jörgensson
kennari. Nú em félagar 100.
Söngmót kirkjkóra.
Það er óvanalegt að hægt sé að selja á ein-
um og sama degi tvivegis húsfylli í Bíóhöllina
til þess að hlusta á samsöng, en þetta átti sér
sannarlega stað sunnudaginn 16. nóv. s. 1.
Þarna sungu kirkjukórar úr þrem sóknum í
Dalasýslu, úr tveimur prestaköllum á Snæfells-
nesi, svo og kirkjukór Borgarness og Akraness.
Hver kór um sig söng 4 lög, en sameiginlega
sungu kórarnir g lög, þar sem hver söngstjóri
stjómaði einu lagi. 1 öllum kómnum voru um
160 manns. Þessir voru söngstjórar: Sr. Pétur T.
Oddsson, sr. Þorsteinn L. Jónsson, sr. Þorgrímur
Sigurðsson, Halldór Sigurðsson úr Borgaraesi og
Geirlaugur Ámason Akranesi. Undirleikarar vom:
Kjartan Jóhannesson úr Dölum, Anna Þórðar-
dóttir og Björg Þorleifsdóttir af Snæfellsnesi.
Stefanía Þorbjamardóttir úr Borgarnesi og Bjarai
Bjamason af Akranesi. Einsöngvari var Halldór
Sigurbjömsson úr Borgamesi.
Söngurinn var í heild sinni furðulega góður,
þegar tekið er tillit til allra aðstæðna, og hjá
sumum afbragðsgóður. Það er auðséð að fólkið
hefur lagt sig fram, að það hefur æft mikið og
verið mikill sómi sýndur við góða þjálfun. Sumir
söngstjóramir eru mjög efnilegir söngstjórar.
Allir sem að þessu merka móti standa eiga
miklar þakkir fyrir þessa ágætu skemmtun. Von-
andi halda þeir áfram á sömu braut, sækja kirkjur
sinar og syngja þar til fordæmis fyrir aðra.
Allir voru þama „uppnumdir" enda létu margir
það óspart í ljós með ræðum, svo sem: Biskupinn
Sigurgeir Sigurðsson, sem hér var ásamt frú sinni,
sr. Jón M. Guðjónsson, Sigurður Birkis söngméla
stjóri og Petrea G. Sveinsdóttir. Auk þess talaði
þarna og þakkaði, sr. Þorgrimur Sigurðsson á
Staðastað, sem mestan þétt mun hafa átt i þvi
að koma þessari ágætu söngskriðu af stað.
Bæði kórfólk og áheyrendur virtust ánægðir,
enda mátti vera það.
Frá leikfélaginu.
Fyrsta verkefni leikfélagsins á þessu leikári var
Grœna lyfían, enskur gamanleikur. Um hann
segir svo í leikskránni: „Græna lyftan" er gam-
anleikur af léttara taginu, og er ekki um neinar
„æðri bókmenntir að ræða þar sem hún er. Aðal-
tilgangurinn er að vekja hjá áhorfendum græsku-
laust gaman. En öllu gamni fylgir nokkur alvara.
f leiknum má t. d. finna ísmeygilega ádeilu á inn-
antómt skemmtana- og lausungarlíf."
Leikendur voru: Bjamfriður Leósdóttir, Sigurð-
ur Guðjónsson, Sólrún Ingvadóttir, Alfreð Einars-
son, Baldur Ólafsson, Sigriður Sigmundsdóttir,
Þorvaldur Þorvaldsson og Jóhannes Gunnarsson.
Leikurinn var mikið fremur vel leikinn í heild,
én auðvitað dálítið misjafnlega, og er um fram-
för að ræða.
Leikur þessi hefur nú verið leikinn fimm
sinnum og alltaf vel sóttur. Ef til vill eru Akur-
nesingar með því að byrja að sýna „innlendum"
skemmtikröftum nokkum sóma og uppörvun, sem
ekki er óviðeigandi; þvi þeir áhugamenn sem
sinna slikum verkefnum eyða þar oft miklum tíma
til þess að geta sem bezt skemmt bæjarbúum.
Leikstjóri var Ragnar Jóhannesson, og virðist
hans þáttur vera all góður.
136
AKRANES