Akranes - 01.10.1952, Síða 31
EKKI ER ÞAR OFLOF
UM fSLENDINGA.
Framhald af /25. síSu.
ára tímabil, hafa náð fram að ganga. Og
enn í dag verjum við stórfé til snjómokst-
urs á þessari leið og fylgjum „hestabraut-
unum“ hvað vegarstæðið snertir.
Það væri fróðlegt að sjá einhversstað-
ar, hversu miklu fé er búið að verja til
viðhalds og snjómoksturs á þessari leið.
Ég sé hvergi í ályktunum höf. neitt um
tillögu Bjöms Kristjánssonar um yfir-
byggðan veg á versta kaflanum, en fljótt
á litið er engu siður réttlætanlegt að byggja
nokkra km. yfirbyggðan veg á fjölförn-
ustu leið landsins, eins og að byggja kiló-
meters langt hús á Grandagarðinuni í
Reykjavíkurhöfn, aðallega til þess að fyrir-
byggja brimlöður yfir garðinn. Að ekki
sé talað um að verja milljónum til að
fylla upp höfn hraðvaxandi höfuðborg-
ar, sem á sama tíma er talin að vera orð-
in oflítil, og þess vegna rætt um að byggja
aðra höfn og á öðrum stað, þar sem engin
nauðsynleg mannvirki eru, og allt vérður
að byggjast frá grunni. En allt eru þetta
„vísindi“ hinna vitru. Þeirra, sem um
nærfelt hálfa öld hafa ekki komið sér
saman um legu Austurvegar. Það hefði
þurft einhvern Tryggva Gunnarsson til að
leysa þetta vegarmál, á svipaðan hátt og
þegar Tryggvi var orðinn leiður á bolla-
leggingum um ölfusárbrúna á sínum tíma.
Það vekur og athygli, að höf. hefur ekki
við samningu bókar sinnar stuðst við hið
merka rit próf. Guðmundar Finnbogason-
ar Iðnsaga Islands, en rit það er mjög
itarlegt og nákvæmt og snertir líkt efni.
Olíumálin.
Ekki get ég gert mér ljóst, eftir að hafa
lesið bókina spjaldanna á milli, hvernig
það má ske, að höf. sleppir með öllu að
minnast á hinar stórfelldu og mjög þýð-
ingarmiklu framfarir og umbætur, sem
att hafa sér stað frá einokunartímabilinu
og reyndar síðar, á innflutningi og öllu
fyrirkomulagi á sölu olíu í landinu, en
þær breytingar, sem hér hafa orðið, hafa
haft svo djúptæka þýðingu fyrir alla af-
komu þjóðarinnar, að vert er að minnast.
Meðan Danir réðu verzluninni, var all-
ur innfl. olíu á trétunnum, og má nærri
geta hversu slíkt var hagkvæmt. Lengi
vel var olian seld og verðlögð pr. tunnu,
' °g það var því kaupandans hagur eða tjón
hvort tunnan var full. Það var ekki fyrr
en að Alþingi setti lög um að selja olíu
eftir vigt, — 1. m. 55, 1915, — en það
leiddi til þess, að innflytjendur fóru að
lita í kringum sig, og í annan stað fóru
heimilin, — en þá var olían notuð til ljósa
og nokkuð til suðu, — að reyna að eignast
akranes
Takmark okkar er að standast samanburð á þeim erlendu vörum,
sem fluttar eru inn í landiö.
Þessar vörur eigum viö ávallt fyrir liggjandi:
PARKET-bón: Fyrir Parket gólf
og
Gólfgljái:
SkóáburSur:
eikarhúsgögn.
BlLA-bán:
Fljótandi bón:
Húsgagnabón:
Ver bílinn yðar bezt,
fallegur gljái létt að
bóna, endist vel.
Fyrir Gúmídúka, Terr-
aso-gólf og Linoleum,
þar sem mikið er geng-
ið. Hreinsar vel og skil-
ur eftir áferðarfallegan
gljáa.
Bónið húsgögn yðar með
þessu bóni. Hreinsið alls
konar þiljur, hurðir og
gluggakistur með þessu
bóni. — Leiðarvísir með
hverri flösku.
Fyrir alls konar dúka,
gefur dúkunum þá nær-
ingu, sem nauðsynleg er
fyrir þá. Ódýrt, ending-
argott og þægilegt að
vinna með þvi.
5 mismunandi litir.
Kaupmenn! hafiö vörur frá okkur
ávallt í verzlunum yÖar.
Neytendur! fíiöjiö kaupmann yö-
ar um vörur frá okkur, þæ.r
tryggja yöur ódýrar vörur. Góöar
vörur.
139