Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2004, Qupperneq 14
14 FLAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004
Fréttir DV
Grímuklæddir
í innbroti
Maður í austurborginni
varð fyrir óskemmtilegri
reynslu er hann kom heim
til sín í fyrrinótt. Voru tveir
grímuklæddir menn að
róta til í íbúðinni.
Að sögn lögregl-
unnar í Reykja-
vík lögðu inn-
brotsþjófarnir á
flótta er maður-
inn opnaði útidyr
sínar en annar hinna
grímuklæddu mun hafa
ráðist á hann. Hlaut
íbúðareigandinn þó ekki
meiðsli af þeim sökum.
Innbrotsþjófarnir komust
undan með fartölvu. Máhð
er í rannsókn.
Þriðji hver
fór í Ijós
Samkvæmt könnun
Gallups fór fjórði hver
unglingur á aldrinum 12
til 15 ára í
ljósa-
bekk
síðustu
tólf
mánuð-
ina. í aldurs-
hópnum 16 til 75 ára fór
þriðjungur í ljós. Karlar
fóru að meðaltali 1,9
sinnum í ljós en konur
4,3 sinnum. Tæplega 40
prósent kvenna fóru í
ljós síðustu tólf mánuð-
ina en 22 prósent karla.
Svo virðist sem íslend-
ingar fari meira í ljós en
aðrar þjóðir, en erlendis
hafa víða verið settar
strangar reglur um ljósa-
bekkjanotkun. Athygli
vekur að fleiri fóru í ljós
á landsbyggðinni en höf-
uðborgarsvæðinu. Al-
þj ó ð aheilbrigðismála-
stofnunin hefur ráðlagt
þeim sem eru yngri en
18 ára að fara ekki í
ljósabekki.
Vilja tryggan
lágmarks-
lífeyri
Þingmenn Frjálslynda
flokksins hafa lagt fram
þingsályktunartillögu um
tryggan lágmarkslífeyri.
Þeir telja að bæta eigi þjóð-
félagsstöðu lífeyrisþega
sem fá minni lífeyri en 50
þúsund krónur á mánuði
greiddan úr lífeyrissjóði
sínum með því að breyta
bótareglum almannatrygg-
inga þannig að lífeyris-
greiðslur undir þessari
upphæð skerði ekki grunn-
lífeyri, tekjutryggingu,
heimilisuppbót eða aðrar
samsettar lágmarksbætur
lífeyrisþegans.
Hugmynd þeirra er að
fyrir hverjar 10 þúsund sem
greiddur lífeyrir úr lífeyris-
sjóði er umfram 50 þúsund
verði skerðing 20% þess
sem nú er, fyrir hverjar 10
þúsund sem lífeyrir er um-
fram 60 þúsund verði
skerðing 40% þess sem nú
er, fyrir hverjar 10 þúsund
umfram 70 þúsund verði
skerðing 60% þess sem nú
er og fyrir hverjar 10 þús-
und umff am 80 þúsund
80% þess sem nú er.
Eigendur Græna hússins á Siglufirði hafa sótt um að fá að flytja húsið til Reykja-
víkur. Þeir segja húsið ekki þjóna tilgangi á Siglufirði. Unnar Már Pétursson bæj-
arfulltrúi segir engan vilja sjá húsið fara, en sterk rök þurfi til að hafna beiðninni.
Græna húsið, fornfrægt hús á Siglufirði, verður hugsanlega flutt
til Reykjavíkur ef beiðni eigenda þess til bæjaryfirvalda verður
samþykkt. Húsið á sér langa sögu, var forðum frægt kaffihús
undir nafninu Borgarkaffi, en síðar í eigu Alþýðuflokksins. Nú-
verandi eigendahópur tók við húsinu fyrir nokkrum árum og
myndaði einkahlutafélagið Græna húsið utan um húsið.
Þórir Hákonarson, stjórnarfor-
maður Græna hússins, segir hópinn
hafa bjargað húsinu frá því að vera
rifið. „Mikil vinna og fjármagn hefur
farið í uppbyggingu þess en ákvörð-
un um uppbyggingu var einungis
tekin til þess að bjarga húsinu frá því
að verða rifið, enda sögufrægt hús á
Siglufirði," segir hann.
Unnar Már Pétursson, bæjarfull-
trúi og nefndarmaður í tækni- og
umhverfisnefnd, segist hafa fundið
fyrir almennri andstöðu meðal bæj-
arbúa um flutning hússins. Hins
vegar þurfi sterk rök fyrir því að
hafna flutningnum. „Það vill enginn
sjá þetta hús fara. Bón hefur komið
frá eigendunum um flutning og hún
er í eðlilegum farvegi. Það þurfa að
„Það þurfa að vera
sterk lagaieg rök fyrir
þviað hafha þessu."
vera sterk lagaleg rök fyrir því að
hafna þessu," segir Unnar.
Að sögn Þóris er ekki útséð um að
húsið verði flutt jafnvel þó leyfi fáist.
„Stjórn Græna hússins ehf. tók ein-
faldlega ákvörðun um að skoða
þennan möguleika og ekkert liggur
fyrir um framhaldið. Við reyndar
lentum í ákveðnum vandræðum
þegar búið var að gefa út viljayfirlýs-
ingu af félagsmálayfirvöldum um að
leigja húsnæðið undir ákveðna
starfsemi en síðan hreinlega gátu fé-
lagsmálayfirvöld ekki staðið við það
og því sátum við meðal annars eftir
með lán sem tekið hafði verið út á
viðkomandi viljayfirlýsingu."
Hann segist opinn fyrir öðrum
möguleikum en að flytja húsið suð-
ur. „Við erum tilbúin að skoða öll til-
boð ef einhver hefur áhuga á því að
eignast húsnæðið."
Hálfdán Sveinsson, einn eigenda
hússins, segir húsið ekki hafa hlut-
verk á Siglufirði. „Aðalmálið er að
finna eitthvað hlutverk fyrir húsið og
koma því í einhverja vinnu. Það
finnst ekki hér í bili. Málið er ekki
komið lengra en þetta, en augljóslega
reynum við að koma á því á þannig
stað að það sómi sér vel. Til dæmis í
litla Skerjafirði eða vestur í bæ."
jontrausti@dv.is
Arnold Schwarzenegger í endurmenntun
Sjallar á móti því að Bjöggi fái slotið
Kennt að þukla ekki á konum
Arnold Schwarzenegger, rflds-
stjóri Kaliform'u, fór fyrr á þessu ári á
námskeið um kynferðislega áreitni á
vinnustöðum. Námskeiðið stóð í
tvær klukkustundir og tók ríkisstjór-
inn háttsetta embættismenn í Kali-
forníu með sér.
Schwarzenegger var sem kunn-
ugt er ásakaður um að hafa áreitt
konur kynferðislega þegar hann
háði kosningabaráttu sína síðastlið-
ið haust. Meintum fórnarlömbum
Schwarzeneggers fjölgaði eftir því
sem kosningarnar nálguðust; voru
sex talsins fimm dögum fyrir kosn-
ingar en á kjördag voru þær orðnar
sextán. Rfldsstjórinn þurfti að taka á
honum stóra sínum vegna málsins
og kom fram á blaðamannafundi
þar sem hann sagðist hafa „hegðað
sér illa" gagnvart konum. Hann neit-
aði að tjá sig frekar um málið og
sagðist myndu ráða einkaspæjara til
Ríkisstjórinn Arnold Schwarzenegger, rikis-
stjóri Kaliforníu, ávarpar stuðningsmenn
sína. Eiginkonan, Maria Shriver, stendur hon-
um við hlið.
að rannsaka eigin hegðun. Mánuði
eftir að Schwarzenegger náði kjöri
skipti hann um skoðun og sagðist
hættur við rannsóknina.
Hafna Thorshöll
sem íbúðarhúsi
„Við viljum ekki að borgin selji Frí-
kirkjuveg 11 til einhvers sem ætlar að
hafa það sem íbúðarhús. Það er að okk-
ar mati lakari kostur en lausn sem felur
í sér að almenningur geti áfram fengið
að koma inn í þetta stórmerkilega hús
og njóta þess. Þetta hús á ekki að vera
bara fyrir einhvem sem á peninga,"
segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, um þá
ósk Björgólfs Thors Björgólfssonar að
fá Thorshöllina - Fríkirkjuveg 11 -
keypta. Vilhjálmur segir að sjálfstæðis-
menn vilji heldur ekki íyrirtækjarekstur
í húsinu.
„Við sjáum miklu frekar fyrir okkur,
úr því að borgin vill selja húsið á annað
borð, að efnt verði til samstarfs borgar-
innar og afkomenda Thors Jensen um
að húsið verði minnisvarði um afrek
Thors. Þetta er ekki uppboðsvara, held-
ur mikið menningarverðmæti, þar sem
vel færi á því að minnast atorku þessa
merka manns. Ég held að það verði
ekki gert með því að húsið verði íbúð-
arhús eða hálflokað skrifstofúhús á
vegum einkaaðila. Þá væri betra að
borgin nýtti það áfram undir sína starf-
semi. Ef vilji er fyrir því meðal afkom-
enda Thors að varðveita húsið og koma
þar upp minningarsafni
um Thor, sem almenn-
ingur getur noúð, þá
styðjum við það,“ segir
Vilhjálmur.
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
Thorshúsið ekki
uppboðsvara.