Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2004, Side 20
20 LAUGARDAQUR 3. APRÍL 2004
Fókus DV
Stúdentaleikhúsið frumsýndi leikritið 101 Reykjavík í gamla Grýtuþvottahúsinu á Keilugranda 1. Ýmis-
legt gekk á meðan á æfingum stóð, meðal annars fékk ein kona heilahristing við samfarasenu og það
þurfti að rífa leikmyndina og endurbyggja vegna brunahættu. DV ræddi við Hinrik og Vigdísi sem leika
aðalhlutverkin.
„Hlynur Björn er dauðyfli sem horfir á
klámmyndir til klukkan sjö um daginn og fer
svo á barinn að drekka bjór,“ segir Hinrik Þór
Svavarsson, sem fer með hlutverk samvisku
hans í leikgerð bókarinnar 101 Reykjavrk, sem
Stúdentaleikhúsið er nú að setja upp. „Ekki
það að hann hafi mikla samvisku," bætir hann
við. „Hann er samt mjög klár,“ skeytir Vigdís
Másdóttir inn í, en hún fer með hlutverk Lollu,
sem er ástkona bæði Hlyns og móður hans.
Friðgeir Einarsson fer svo með hlutverk Hlyns
sjálfs, en Hilmir Snær lék hann í bíómyndinni.
En hvernig kom það til að persónunni var
skipt í tvennt?
„f myndinni er einblínt á samband hans og
Lollu, og hlutirnir séðir utan frá, en hér er
hann skoðaður meira innan frá, og hvernig
hann bregst við þegar mömmu hans er rænt,"
segir Hinrik.
„Ég ræni ekkert mömmu hans,“ mótmælir
Vigdís."
„Ja, hann er kannski aðallega afbrýðissam-
ur út í mömmuna fyrir að fá að ríða þér,“ segir
Hinrik þá.
„Hann fer að uppgvötva tilfinningar sem
hann vissi ekki að hann hefði, og er búinn að
bölsóttast út í aðra fyrir að hafa," leggur Vigdís
til.
Oghvaöa tilfínningar eru þaö?
„Það að hann haft nokkrar tilfinningar yfir
höfuð," segir Vigdís.
„í upphafi er hann kvenhatari sem býr und-
ir hæl móður sinnar, og svo þarf hann að díla
við það að það flytur kona inn á heimilið sem
er kjaftfor tík, „tussa með tunguna á réttum
stað,“ eins og segir í leikritinu," segir samviska
Hlyns.
Lesbískar mömmur á sviði og utan
„Fólki sem þekkir myndina á eftir að
bregða mjög, en við reyndum að halda tryggð
við textann, enda Hallgrímur Helgason fárán-
lega orðheppinn maður,“ segir Vigdís.
„Það var ótrúlegustu hlutum sleppt úr
myndinni, og það vildi svo til að hún var orð-
in mjög söluvæn þegar upp var staðið. Bókin
er raunverulega Fóstbræðrahúmor dauð-
ans,“ segir Hinrik.
Hafði Hallgrímur einhver afskipti af upp-
færslunni?
“Hann kom á rennsli og kom með uppá-
stungur,“ segir Vigdís.
„Sem við sáum svo til hvort við fórum eft-
ir,“ segir Hinrik.
Leikararnir þurftu ekki að leita langt til að
fá innblástur fyrir hlutverkunum.
„Þegar maður fór að skoða Hlyn þekkti
maður að minnsta kosti 70 manns sem eru
nákvæmlega eins.“ Vigdís á einnig auðvelt
með að setja sig inn í aðstæður, þar sem
mamma hennar er, líkt og mamma Hlyns,
lesbía. Hún tekur þó fram að fátt annað sé
sameiginlegt með persónunum.
„Lesbíur eru jafn fjölbreytilegar og þær
eru margar. Ég á mjög góða fjölskyldu, en það
er ýmislegt að hjá Hlyn. En ég hef unnið við
áfengishjálp á geðdeild, og þekki þannig að-
eins til þeirrar hliðar mála."
Þrjár óléttur
Þau segja söguþráð leikritsins spinnast í
kringum þrjár óléttur, en verkið sækir
einmitt í þrjá mismunandi brunna.
„Þetta er byggt á sögusviðinu sem er 101
Reykjavík, Hamlet, þaðan sem hugmyndin
að persónunum er fengin, og svo Halldóri
Laxness, en persónur ópa „Heilagur Kiljan"
í gríð og erg.“
Vigdís Másdóttir hefur áður leikið í Götu-
leikhúsinu og Brúðubílnum, og hefúr orðið
fýrir aðkasti aðdáenda. „Stundum öskra börn
upp „þetta er Rebbi Blárefur," þegar maður
er staddur úti í búð.“ f enskumælandi leik-
húsum er það til siðs að segja „break a leg“
fýrir sýningar, og á það vel við þegar kemur
að Vigdísi. Þegar hún var með Brúðubilnum
handleggsbrotnaði hún og þurfti að stjórna
brúðunum einhent, en á æfingum nú datt
hún úr rúminu við samfarasenu og fékk
heilahristing. Hún er ekki sú eina sem fór illa
út úr þeim samförum, því í annað skipti
brotnaði rúmið við hamaganginn.
Ekki nóg með að það þyrfti að laga rúmið,
heldur smíðaði leikhópurinn allt leikhúsið
meira og minna frá grunni. „Við fréttum að
það væri laus þvottastöð úti á Nesi, svo við
fengum aðgang að henni og innréttuðum
fyrir leikhús með timbri. Svo kom brunaeftir-
htið með aðfinnslur og við þurftum að rífa
allt aftur, og endurbyggja með stillönsum."
„Sviðsmyndin er mjög skftug, það er ekk-
ert hreint í 101 Reykjavík," bætir Hinrik við.
„Sem hentaði okkur vel. Það er heppilegt að
þetta skuli ekki vera gamanleikur sem gerist
á tannlæknastofu þar sem allt er hreint."
Hinrik Þór hefur áður leikið með Stúd-
entaleikhúsinu, en hann fór með hlutverk
Winstons- Smith í 1984 fyrir jól. „Með Þor-
láki, sem leikstýrði þeirri sýningu, ríkti
heragi frá fyrsta degi. Allir voru reknir út að
skokka, og svo þurftu allir alltaf að vera
mættir tímanlega. Hjálmar Hjálmarsson,
gráhærða goðið frá Dalvík, gerði þetta tals-
vert öðruvísi. Til dæmis fengum við að velja
okkar texta að einhverju leyti sjálf. Að lokum
hvet ég alla til að koma og finna Hlyninn í
sjálfum sér."
valur@dv.is
Góöi hirðirinn fluttur í gamla World Class-húsið
Stækkaði um 300
fermetra á einum degi
Góði hirðirinn flutti sig um set í
gær eftir að hafa búið við Hátún til
fjölda ára. Gamla húsnæðið var
löngu búið að sprengja utan af sér
og því var ákveðið að finna nýtt og
hentugt húsnæði fýrir Hirðinn.
Það fannst þegar World Class við
Fellsmúla flutti sig um set. Góði
hirðirinn er sem kunnugt er nytja-
markaður Sorpu og líknarfélaga á
landinu en þar er verslað með
gömul húsgögn og annað nytsam-
legt. Allur ágóði af rekstri Hirðisins
rennur svo til líknarmála. Með til-
komu nýja húsnæðisins, sem er
um 300 fermetrum stærra en það
gamla, gefst kostur á að stækka
starfsemina og í framtíðinni verða
þar starfsmenn í að laga gömul raf-
tæki. Þannig verður hægt að nýta
enn meira af því
sem til fellur en
áður. Á síðasta ári
tók Hirðirinn við um
500 tonnum af end-
urnýtanlegum hús-
búnaði og vonir
standa nú til að það
magn verði aukið enn
frekar.