Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2004, Page 22
22 LAUGARDAGUR 3. APRlL 2004
Fréttir DV
Það fór fiðringur um margan rokkarann þegar það fréttist að gömlu hetjurnar í Deep Purple væru
væntanlegar til að spila í Laugardalshöllinni í sumar. Trausti Júlíusson kynnti sér þessa áhrifamiklu
hljómsveit sem er gjarnan talin til frumkvöðla þungarokksins og sem komst í heimsmetabók Guinness
fyrir að vera háværasta hljómsveit heims.
Hin margrómaða útgáfa II af Deep Purple sem starfaði
frá júní 1969 tll júní 1973 Þoð var þess/ útgáfasem
gerði bestu plátur sveitarinnar, Deep Purple In Rock,
Fireball og Machine Head og slagara eins og Smoke On
The Water, Speed King, Black Nightog Highway Star. Pað
var lika þessi útgáfa sveitarinnar sem spilaði á enda-
slepptum tónleikum i Laugardalshöllinni IB.júni 7971...
abouts sína fyrstu tónleika í Tastrup í
Danmörku 20. apríl 1968. Skömmu
seinna höfðu þeir breytt nafninu í
Deep Purple (Ritchie kom með nafn-
ið, en Deep Purple var uppáhaldslag
ömmu hans) og í júlí 1968 kom fyrsta
platan þeirra, Shades Of Deep Purple
út í Bandaríkjunum. Tónlistin var
rokkað popp í anda bandarísku sveit-
arinnar Vanilla Fudge. Fyrsta smá-
skífan Hush sló í gegn í vestanhafs,
komst í 5. sæti Billboard listans.
Fyrsta sinfóníurokkverkið
Frumútgáfa Deep Purple gaf út
tvær aðrar plötur, en Ritchie, Jon og
Ian fannst sveitin ekki vera að gera
sig og án þess að láta hina vita fóru
þeir að leita að öðmm söngvara. Þeg-
ar þeir sáu Ian Gillan syngja með Ep-
isode Six þá buðu þeir honum að
ganga til Uðs við Purple. Honum
fylgdi bassaleikarinn Roger Glover
sem var góður lagasmiður og útsetj-
ari, en Rod og Nick vom reknir.
Þannig varð frægasta útgáfa Deep
Purple til. Fyrsta verkefni hinnar nýju
útgáfu var frekar óvenjulegt. Jon Lord
hafði fengið þá hugmynd að gera
tónhst fyrir rokkband og sinfóníu-
hljómsveit og viðraði hana við Tony
Edwards sem tók hann á orðinu og
bókaði Royal Albert HaU og Fílharm-
óníuhljómsveit Lundúna þá um
haustið. Jon (sem hafði lært á píanó
til 17 ára aldurs) lagðist í tónsmíðar
og verkið Concerto For Group And
Orchestra var flutt 24. september
1969. Það þótti takast vel og telst vera
fyrsta sinfóníurokkverkið.
Rafmagnið fór ítrekað
afHöllinni þetta kvöld
og meðlimir hljóm-
sveitarinnar létu það
fara í skapið á sér.
Ritchie mölvaði gítar á
sviðinu og Gillan gerði
gat á sviðsgólfið með
míkrófónstatífinu.
Þegar rafmagnið fór í
fjórða skiptið urðu
hljómsveitarmeðlimir
fúlir og gengu út.
Asamt Led Zeppelin og Black
Sabbath er breska hljóm-
sveitin Deep Purple talin tU
forfeðra þungarokksins.
Hljómsveitin hefur lifað af ótal
mannabreytingar og er á meðal elstu
starfandi rokkhljómsveita Bretlands.
Hún spUar í LaugardalshöU 24. júní
nk. Miðasala er þegar hafin, uppselt
er í stúku og almenn miðasala hefur
farið vel af stað þegar þetta er skrifað.
Varð til fyrir slysni
Eins og oft er raunin með hljóm-
sveitir sem ná langt þá var það röð
tilvUjana sem leiddi til stofnunar
Deep Purple. Forsaga sveitarinnar
hófst í London árið 1967 þegar kaup-
sýslumaðurinn Tony Edwards fékk
þá hugmynd að það væri sniðugt að
setja pening í popptónlist. Chris
nokkur Curtis sem hafði verið söngv-
ari og trommuleUcari The Searchers
sannfærði Tony um að hann væri
með nýja hljómsveit í bígerð sem
ætti eftir að slá í gegn. Tony gerðist
umboðsmaður og þeir hófu leit að
meðlimum tU þess að spUa með
Chris í hinni nýju sveit. Þeir fundu
fyrst orgelleikarann Jon Lord og
bassaleikarann Nick Simper. Fljót-
lega varð samt ljóst að Chris væri ekki
annað en skýjaglópur og sýruhaus og
hann hvarf út úr myndinnni. Tony
Edwards gekk samt enn með popp-
umba drauminn í maganum og í des-
ember 1967 ákvað hann að fjár-
magna nýja hljómsveit án Chris. Gít-
arleikarinn Ritchie Blackmore sem
hafði gert það gott með sveitum eins
og The Outlaws og The Three
Musketeers var fenginn til liðs og
sveitin var svo fullkomnuð með
tveimur fyrrum meðlimum The
Maze, trommuleikaranum Ian Paice
og söngvaranum Rod Evans.
Svona skipuð spilaði hljómsveitin
sem hafði fengið nafnið The Round-
Vinnuheitið Durh, durh, durh!
Þó að hinir meðlimir Deep Purple
hafi tekið vel í sinfóníurokkhugmynd
Jon Lord þá voru þeir sammála um
að þetta væri ekki sú tónlist sem þeir
vildu spila í framtíðinni. Til að leggja
áherslu á það hækkuðu þeir vel í
græjunum og ákváðu að rokka feitt á
næstu plötu. Það gekk eftir. Deep
Purple In Rock sem kom út 1970 er
sennilega kraftmesta plata sveitar-
innar og líka plata sem hafði ómæld
áhrif á komandi kynslóðir af þung-
arokkurum, hvort sem við tölum um
AC/DC, Judas Priest eða Iron
Maiden. Samspil stjarnanna tveggja i
bandinu, Ritchie Blackmore og Jon
Lord einkenndi tónlistina. Næstu
tvær plötur, Fireball og Machine
Head þóttu líka frábærar. Sú síðar-
nefnda innihélt þekktasta lag sveitar-
innar frá upphafi, Smoke On The
Water, lag sem upphaflega hafði
vinnuheitið Durh, durh, dúrh!...
Endasleppt í Höllinni
Deep Purple spilaði stanslaust á
tónleikum á þessum árum. 18. júní
1971 spiluðu þeir fyrir troðfulla
Laugardalshöll. Rafmagnið fór ítrek-
að af Höllinni þetta kvöld og meðlim-
ir hljómsveitarinnar létu það fara í
skapið á sér. Ritchie mölvaði gítar á
sviðinu og Gillan gerði gat á sviðs-
gólfið með míkrófónstatífmu. Þegar
rafmagnið fór í fjórða skiptið urðu
hljómsveitarmeðlimir fúlir og gengu
út.
Hjómsveitin þótti mögnuð tón-
leikasveit eins og heyra má á tón-
leikaplötunni Made In Japan sem
kom út 1972. Hún er oft nefnd sem
ein besta rokktónleikaplata sög-
unnar. En þrátt fyrir frábæra tón-
list var komin þreyta í samstarfið,
Ian Gillan sagði upp bréflega í des-
ember 1972, en „vann út uppsagn-
arfrestinn" og hætti eftir tónleika
29. júní 1973. Roger Glover sem var
orðinn úrvinda af þreytu eftir öll
þessi stífu tónleikaferðalög hætti á
sama tíma.
í stað þeirra komu söngvarinn
David Coverdale og bassaleikar-
inn Glenn Hughes. Sú útgáfa
starfaði til 1975 og gerði tvær
þokkalegar plötur, Burn og Storm-
bringer. Ritchie Blackmore hætti í
aprfl 75 og stofnaði Rainbow. Við
stöðu hans tók þá bandaríska
gítarundrið Tommy Bolin. Hann
þótti aldrei almennilega passa inn
í hljómsveitina og í maí 1976
ákváð Deep Purple að láta staðar
numið. David Coverdale stofnaði
Whitesnake árið eftir, en Tommy
Bolin dó úr of stórum skammd af
heróíni í desember 1976.
\
i
Deep Purple I dag Don Airey Ihljómborði, lan
GHtan (sþngur), Steve Morse <gitar), Roger
Glover (bassi) og lan Paice <trommuri.