Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1971, Síða 26
68
TlMARIT VFl 1971
Nú er því ekki að leyna, að fjár-
magnslegar ástœðnr geta verið þann-
ig, að þetta sé eina færa leiðin og
oft verður ekki fyrirfram vitað, hvar
þörf verður fyrir hvem nákvæmnis-
flokk. En nú horfir þannig við, að
verklegar framkvæmdir verða sífellt
yfirgripsmeiri og þörfin því æ vax-
andi fyrir meiri nákvæmni, og þegar
þar við bætist, að greiðandi allra
hinna misnákvæmu mælinga er sá
sami í raun, þ.e. sameiginlegur sjóð-
ur allra landsmanna, hlýtur sú spurn-
ing að vera mjög áleitin, hvort ekki
sé löngu tímabært að koma upp hæð-
arkerfi, sem fullnægi öllum skynsam-
legum kröfum hugsanlegra notenda
hvar sem er á landinu.
V. SAMHENGISÞÖRF 1 HÆÐAR-
MÆLINGUM A ISLANDI.
Áður hefur verið á það drepið, að
samhengi væri mjög ábótavant í þeim
hæðarmælingum, sem gerðar hafa
verið hérlendis, ef frá er talið það
grófa samhengi, sem fæst af sjávar-
borði og nægir til gerðar staðfræði-
legra korta i litlum mælikvarða. Ef
til vill er rétt að velta fyrir sér lítil-
lega þeirri spumingu, hversu nauð-
synlegt samhengi sé og borgar sig
í strjálbýlu landi að leggja nokkuð
í sölurnar til að koma því á? Þctta
er atriði, sem óhægt er að henda
reiður á eða lýsa með tölum. Víða
hérlendis eru aðstæðumar þannig:
Sveitarfélagið, oft sjávarpláss meira
eða minna einangrað með mjög stað-
bundnar þarfir, dm eða sm þarfir
í hæðarneti. Nágrennið t.d. víðáttu-
mikið fjalllendi með staðfræðilegar
kortaþarfir, þ.e. nákvæmni upp á
1-5 metra. Fyrir staði, sem em og
verða um fyrirsjáanlega framtíð
tæknilega og framkvæmdalega ein-
angraðir, þannig að til þeirra verða
ekki lagðir nema lélegir vegir eða
aðrar framkvæmdir gerðar er veru-
legu máli skipta, þar er ekki þörf á
samhengi. En hversu víða hagar
þannig til? Spyrja má t.d. hvort
nauðsynlegt sé, að Neskaupstaður sé
í sama kerfi og Eskif jörður Og Reyð-
arfjörður. Eins og sakir standa ekki,
samt em uppi kröfur um bættar sam-
göngur og jafnvel jarðgöng milli
staðanna. Sllkar kröfur kalla á kann-
anir, sem hagkvæmt er að tengja
við varanlegt hæðarkerfi, sem þyrfti
að vera hið sama báðum megin
f jallsins þó langt yrði í framkvæmd-
ir. En dæmin em nærtækari: 1
Borgamesi er sjálfsagt staðbundið
hæðarkerfi. En Vegagerð ríkisins er
nú í þann veginn að leggja af stað
þangað með hæðarkerfi allt frá
Reykjavík. Samhengið varð nauðsyn.
Lítum aftur til þeirrar myndar,
sem upp var dregin af hæðarkerfum
nú hér á landi. Og höfum í huga
þær hugmyndir, sem fram hafa kom-
ið um yfirgripsmiklar vatnsvirkja-
framkvæmdir norðan Vatnajökuls
með aðalvirkjun vatnsafls niður í
Fljótsdal hjá Valþjófsstað. Ef til vill
kalla undirbúningsrannsóknir ekki á
nákvæmar mælingar á þessum slóð-
um. En rannsóknirnar fela í sér
möguleika á framkvæmdum, sem
áreiðanlega krefjast meiri nákvæmni
en þau tvö ótengdu kerfi, sem að
svæðinu liggja, geta boðið upp á.
Samhengi verður þarna fyrr eða síð-
ar nauðsyn og því fyrr, því betra.
En það eru ekki einungis tækni-
legar kröfur, sem gera samhengið
nauðsynlegt. Það er einnig nauðsyn-
legt til að fjölnota, þ.e. nota til allra
hugsanlegra þarfa, hverja þá mæl-
ingavinnu sem gerð er í lanöinu. Hún
þarf að nýtast fleirum en þeim, er
að henni standa og vera nothæf á allt
öðrum tíma. Og ef samhengi er ekki
fyrir hendi, er alltaf meiri hætta á
skekkjum, misskilningi og hvers
lconar ruglingi, sem geta valdið ófyr-
irsjáanlegum töfum og fjárhagslegu
tjóni við framkvæmdir.
VI. VERKEFNI FRAMTlÐAR-
INNAR.
Óhætt er að fullyrða að allar kröf-
ur til nákvæmni, bæði við undirbún-
ing og framkvæmd mannvirkjagerð-
ar fara ekki minkandi. Verklegar
framkvæmdir munu verða víðáttu-
meiri, einkum í vegagerð og virkj-
unum, en verið hefur hingað til. 1
orkuframkvæmdum munu ítarlegar
undirbúningsrannsóknir verða nauð-
synleg forsenda skynsamlegrar og
skjótrar ákvarðanatöku. Þar þarf
að vera hægt að velja um fleiri kosti
með litlum fyrirvara. Framtíðin, já,
meira að segja nútíðin, heimtar af
okkur ítarlega könnun á landinu
sjálfu og hafinu umhverfis það og
þeim möguleikum, sem það býr yfir.
Eitt af skilyrðum fyrir því, að hægt
sé að standa með skynsemi að slík-
um könnunum, er að tii sé í landinu
traust og nákvæmt grundvallarhæð-
arkerfi.
Ég minntist áðan á könnun á
hreyfingu jarðlaga hér á landi.
Fleiri en einn erlendur vísindaleið-
angur hefur sinnt því verkefni und-
anfarið, en litið hefur farið fyrir
rannsóknum Islendinga sjálfra.
Naumast er vansalaust, að við skul-
um ekki leggja þar eitthvað af mörk-
um. Og væri ekki möguleiki á, að
þeir sem kosta þessar rannsóknir,
væru fúsir til að leggja eitthvað fé
í víðáttumeiri kannanir á öllu land-
inu ? Og ekki ætti að saka, þótt það
hefði líka raunverulegt hagnýtt gildi
fyrir landsmenn.
Ég tel því, að við getum naumast
dregið lengur að hefjast handa um
gerð aðalhæðanets fyrir Island —
með fallmælingu, sem hefði ná-
kvæmni allt að 1 mm/km. Þetta er
alidýrt fyrirtæki, en að því myndi
þó verða mikill sparnaður og marg-
víslegur ávinningur á löngum tíma.
— Slíkt aðalhæðanet þarf rækilegan
undirbúning, sem hlyti að taka 1-3
ár, en mikilvægt er, að mæling að-
allínanna, sérstaklega lokaðra hringa,
tæki helzt eigi lengri tíma en 5 ár.
Það er ekki á mínu valdi að gera
neinar rökstuddar tillögur um legu
slíks nets eða nánari uppbyggingu.
Til þess þarf mikla vinnu, m.a. jarð-
fræðileg sérálit. Þær hugmyndir, sem
hér eru fram settar, ber fremur að
skoða sem lauslegar hugdettur til að
fjörga ímyndunarafl viðstaddra og
hvetja til umræðna. Þó að ég hafi
nefnt hér allmikla nákvæmni, þá er
skoðun mín sú, að það sé ekki sjálf
nákvæmni mælinganna, heldur skipu-
leg vinnubrögð, vönduð merking og
eftirlit Og prófun kvarða að ógleymdu
heppilegu vali leiða, sem mestu
skipta fyrir gæði sliks hæðanets.
Vegna fámennis og dreifðrar
byggðar verðum við að sætta okkur
við, að ýmsir hlutir séu hér með ó-
fullkomnari hætti en með öðrum
þjóðum. Allir þekkja t.d., hvernig
ástatt er í vegamálum landsmanna og
hvernig það verður enn um langa
hríð. Svipað mun verða, ef lagt yrði
í gerð aðalhæðanets fyrir landið allt.
Það yrði gisið mjög og einungis hlut-
ar þess nákvæmir. En sé sameigin-
legur viðáttumikili grundvöllur eitt
sinn lagður, má jafnframt við hann
auka og á honum byggja með tím-
anum. Þá má hafa mikil not af þeim
mælingum, sem þegar hafa verið
gerðar til uppbyggingar hinna óná-
kvæmari hluta netsins. T.d. virðist
mega tengja Blöndukerfi, Hvítár-
kerfi og Þjórsárkerfi inn í aðal-
hæðanet, e.t.v. endurtaka veika
hlekki, en nota þó að meginstofni
hina miklu vinnu, sem af hendi hef-
ur verið leyst Veikasti hlekkurinn I
þeim mælingum, sem þegar hafa