Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1887, Page 76
»Guð launi yður fyrir, heilla maðurinn«, sagði betlarinn, og
fjekk honum aptur 4 dollara.
»|>ú ímyndar þjer, að þessi kall hafi verið blindur«, sagði
sá, sem með manninnm var, »Hann, sem sá, að það var 5 dollara
seðill, sem þú fjekkst honum«.
»Já, nærsýnn var hann að minnsta kosti, fyrst hann gat
ekki sjeð, að seðillinn var falsaður*.
A. pað er undarlegt, hvað sumir gera i leiðslu. Jeg hefl
þekkt mann, sem var svo utan við sig, að þegar hann kom
heim eitt kveld, lagði hann frakkann sinn kirfilega í rúmið, og
breiddi ofan á hann,' en hengdi aptur sjálfan sig upp á snaga.
B. Læt jeg það vera; en jeg pekkti annan mann, sem kom
heim að kveldi dags einu sinni sem optar. |>egar hann var af-
klæddur, lagði hann seppa sinn upp í rúmið, en sjálfum sjer
sparkaði hann niður stigann.
A. Einu sinni þekkti jeg mann, sem var svo hár, að hann
mátti til að ganga með grindaverk utan um axlirnar. Annars
hefði hann sundlað af að sjá niður fyrir fæturna á sjer.
B. Já, hvað er það? þú hefðir átt að sjá hann Jón kunn-
ingja minn. Hann var svo vaxinn úr grasinu, að þegar hann óð
í fæturna á mánudag og kvefaðist af, þá var kvefið ekki komið
upp í nefið fyrr en á laugardags kvöld. Svo langt var upp-
eptir honum.
GÓÐ RÁÐ.
Jpegar kviknar í steinolíu, sem helzt hefur niður, ætti aldrei
að reyna, að slökkva eldinn með vatni. Olían flýtur ofan á vatninu,
svo því meira sem hellt er af því, því meir breiðist út olían
og eldurinn. Heppilegra er að reyna, að slökkva eldinn með því,
að kasta á hann sandi eður þó helzt Salmiaki, ef það er við hendina.
— Sje blandað saman 91 pd. af vanalegu matarsalti, 6 pd. af
hvítasikri og 3 pd. af saltpjetri, og kjöt saltað með þessu, verður
það bæði bragðgott og litfallegt.
— Gott járn;kítti er sett saman af 2 lóðum af Salmiaki,
1 lóði af brennisteini, og 1 lóði af járnsvarfi. þegar á að nota
kíttið, verður að bæta við í það dálitlu afjárnsvarfi, oghræraþað
saman við í vatni, þar til þetta mauk er orðið líkt þykkum graut,
þá má strjúka því í sprúngur á pottum og öðrum jámílátum; það
verður á stuttum tíma hart eins og járn, og uppleysist ekki við
vætu nje bráðnar við hita.
— Jpegar maður misstígur svo að liðaböndin togna, er gott
að setja fót.inn í kalt vatn og halda honum þar í, minnst hálfan
kl. tíma. Á eptir verður að hlífa fætinum við áreynzlu um tíma.
Gáturáðning: 1. íjaðrapenni. 2. mór. 3. Dalur. 4. Reizla.