Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1894, Blaðsíða 24
Nýjar tímaákvarðanir.
Á jieim stöðam, sem liggja undir sama hádegisbaugi, sýna
rjett stilltar stundaklukkur ætíð sama tíma; á stöðum sem austar
liggja eru stundaklukkur þar á mtíti á undan og á vestlægari
stöðum á eptir, svo að munar 4 mínútum á hverju lengdarstigi.
Hádegisbaugur Reykjavíkur liggur 22 0 fyrir vestan hádegisbaug
Lundúna (hádegisbauginn yfir Greenwich), og klukkan í Reykjavík er
þessvegna 1 stundu og 28 mínútum á eptir klukkunni í Lur.dúnum.
Fyrir hinar fljótu samgöngur nú á dögum, einkum á járn-
brautum, var það mjög óhentugt að hver staður fór eptir sxnum
eigin tíma (staðtíma), og menn tóku þessvegna víða upp á því að
stilia allar klukkur í sama landi eptir einhverjum vissum tíma
(þjtíðtíma); þannig var Kaupmannahafnartími lögleiddur um alla
Danmörku 6. Febr. 1880; síðan 1878 er tíminn f Svíþjóð mið-
aður við hádegisbaug þann er liggur 12 0 fyrir vestan Stokkhólm.
Jxetta hefur þó ekki þtítt allskostar fullnægjandi. Á járn-
brautinni milli Parísarborgar og Miklagarðs höfðu œenn níu
mismunandi tímamælingar að fara eptir; gufuskipin á Boden-
vatninu fimm, og líkt átti sjer stað víðar, þar sem fleiri lönd
liggja saman. I Norðurameriku höfðu menn jafnvel fengið 75
ólíka járnbrautartíma. Til þess að ráða btít á þessu hafa menn
nú víða tekið upp svonefndan reimatíma.
Jicir staðir, sem liggja undir hádegisbaugum þeim, sem dregn-
ir eru 15 0 fyrir austan eða vestan Greenwich, hafa staðtíma,
sem er rjettri stundu á undan eða eptir Greenwich tíma. Ondir
hádegisbaugutn þeitn, sem liggja 300 fyrir austan eða vestan
Greenwich er munurinu tvær stundir o. s. frv. Ef þannig eru
dregnir 24 hádegisbaugar með 15 0 millibili, og allir þeir staðir,
sem Hggja milli hádegisbauga þessara færu eptir tíma einhvers
þeirra, ^helst þess sem næst liggur, en annars eptir ástæðum),
hefðu menn alls ekki nema 24 mismunandi tímamælingar á jörðinni,
og muuurinn milli þeirra væri þá allt af heilar stundir, en mínútur
og sekúndur þær sömu alstaðar. Norðurameríka kom þegar þessu
lagi á 1883; henni er frá Atlantsliafi til Kyi-rahafs skipt í fimm
reimar og í þeim er klukkan 4, 5, 6, 7 og 8 stundum á eptir
klukkunni í Greenwich. Síðan 1888 er klukkan í Japan 9
stundum á undan klukkunni í Greenwich. Á Stóra Bretlandi,
Hollandi og í Belgíu sýna nú allar klukkur sama tíma sem
klukkan i Greenwich (Vesturevrtíputíma). í nokkrum af
Balkanríkjunum eru klukkurnar 2 stundum á undan klukkunni t
Greenwich (Austurevróputími), og járnbrautartíma Vestur-
rússlands (Pjetursborgartíma) munar ekki nema einni mínútu við
Austurevróputíma. Miðevrtíputími, sem er einni stundu a
undan Greenwichtíma, er fyrir skömmu komið á á öllu þýskalandi
og í Austurríki, og þennan tíma á að innleiða í Danmörku 1, Jan.
1894; sænskum tíma munar ekki nema nokkrum sekúudum við
hann, og að öllum líkindum verður honum innan skamms komið
á á Svissaralandi og Italíu. þá verður klukkan í Danmörku 2
st. 28 m. á undan klnkkunni í Reykjavík í staðinn fyrir 2 st.
18 m. sem hingað til.